Fréttablaðið - 15.09.2021, Blaðsíða 25
Hárvandamál eru
algeng en talað er
um að allt að 60 prósent
kvenna upplifi óeðlilega
mikið hárlos einhvern
tíma á lífsleiðinni.
Þegar hár Ástu Þóreyjar
Ragnarsdóttur fór að þynn
ast fyrir nokkrum árum
reyndi hún ýmis ráð. Það
var ekki fyrr hún kynntist
Nourkrin hárbætiefninu
sem hárið tók við sér. Eftir
að hafa notað Nourkrin í eitt
ár finnur Ásta mjög mikinn
mun á hári sínu.
Undanfarin 3-4 ár hefur hár Ástu
Þóreyjar Ragnarsdóttur þynnst
mjög mikið. Því má að mestu leyti
kenna að hún er með sjálfsofnæm-
isjúkdóm í maga og fyrir vikið fær
hárið ekki þá næringu sem það
þarf segir hún. „Hár mitt hefur
alltaf verið sæmilega gott þótt það
hafi ekki verið neitt sérstaklega
þykkt. Meira bara ósköp venju-
legt og viðráðanlegt. Þegar árin
fóru að færast yfir mig fór hárið að
þynnast smátt og smátt en síðan
jókst það mjög mikið undanfarin
ár í tengslum við sjálfsofnæmisjúk-
dóminn. Auk hans hafa ýmis áföll
aukið enn frekar á hármissinn.“
Áður en Ásta kynntist Nourkrin
hárbætiefninu var hún búin að
reyna ýmsar leiðir. „Ég var búin að
reyna nánast allt sem mér datt í
hug. Auk þess voru vinir og vanda-
menn búnir að benda mér á ótal
tegundir af sjampóum og hárnær-
ingu utan alls kyns ráðlegginga
varðandi ýmsar töflur og mat.
Þetta var í raun komið á það stig
að ég baðst undan að vera með á
myndum þegar verið var að taka
myndir heima og á ferðalögum.“
Frábært tilboð
Ásta var búinn að kaupa fyrsta
pakkann af Nourkrin þegar vin-
kona hennar frá Hveragerði, þar
sem Ásta einmitt býr, benti henni á
að verið væri að auglýsa eftir þátt-
takendum í prófanir á Nourkrin
hjá ÍSAM. „Við stukkum saman
á þetta frábæra og heillaríka
tilboð og það er sko engin eftirsjá
heldur bara eintóm gleði hjá okkur
báðum.
Eftir að hafa notað Nourkrin í
eitt ár finnur Ásta mjög mikinn
mun á hári sínu. „Hárið á mér er
allt annað í dag en fyrir ári síðan.
Þótt ég sé ekki með fléttur get ég
verið með á fjölskyldumyndum
og öðrum myndum. Ég hefði ekki
trúað því fyrir ári síðan hversu
öflugt Nourkrin yrði eða gleðitöfl-
urnar mínar eins og ég kalla efnið.
Það var svo gaman þegar hár-
greiðslukonan mín sagði mér fyrst
að það væru komin fullt af nýjum
hárum. Það fannst mér sannarlega
gaman að heyra enda er hárið stolt
hverrar konu.“
Mælir með Nourkrin
Hún mælir eindregið með
Nourkrin. „Ég get svo sannarlega
mælt með Nourkrin. Það er ekki
bara að hárið vaxi og verði þéttara
heldur vaxa neglurnar líka. Ég hef
meira segja verið spurð hvort ég
sé með gervineglur. Þegar hárið er
komið í lag þá líður manni betur
og sjálfstraustið eykst. Það er ekki
lítils virði. Sjálf er ég 76 ára og bara
nokkuð sátt með mig og mitt hár.
Það þakka ég að öllu leyti Nour-
krin hárbætiefninu.“
Ásta heldur því brosandi og kát
inn í veturinn. Hún ætlar að halda
sínu striki og vera glöð með vinum
og vandamönnum. „Það er svo
mikið um að vera hjá eldri borg-
urum í Hveragerði þar sem eru
starfræktir fjöldi hópa með góðu
og glöðu fólki. Rauði krossinn er
öflugur með frábærum konum og
körlum og svo er boðið upp á leik-
fimi og göngur í Hamarshöllinni
undir stjórn sjúkraþjálfara sem
er alveg meiriháttar lúxus. Einnig
má nefna myndlistarfélagið sem
er með öfluga starfsemi í bænum.
Það er því allt á fullu hjá mér og
sálartetrið er gott. Ég brosi framan
í veturinn með fallegt hár, þökk sé
Nourkrin.“ n
Brosir framan í veturinn með fallegt Nourkrin hár
Eftir að hafa notað Nourkrin í eitt ár finnur Ásta Þórey Ragnarsdóttir mjög
mikinn mun á hári sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Hér má sjá hár Ástu Þóreyjar áður en
hún hóf að nota Nourkrin.
Rannsóknir sýna að Nour
krin bætiefnið vinnur gegn
hárlosi og stuðlar að eðlileg
um hárvaxtarhring. Hárlos
getur haft ýmsar orsakir en
Nourkrin nærir hársekkina
svo þeir geti viðhaldið eðli
legum hárvaxtarhring.
Hár er mikilvægur partur af útliti
okkar og sjálfstrausti. Þetta kemur
enn frekar fram þegar upp koma
hárvandamál eða hármissir og
þá gera sérstaklega konur sér
enn frekar grein fyrir mikilvægi
hársins. Hárvandamál eru algeng
en talað er um að allt að 60 prósent
kvenna upplifi óeðlilega mikið
hárlos einhvern tímann á lífsleið-
inni. Oft er þetta mikið feimnismál
og því lítið rætt og reynt að láta
sem minnst á því bera. Það er því
gaman að geta sagt frá Nourkrin
hárbætiefninu, sem hægt er að
sýna með klínískum rannsóknum
að virki.
Byltingarkennt bætiefni
Eðlileg hringrás hárvaxtar
líkamans kallast hárvaxtarhringur.
Í eðlilegum hárvaxtarhring eru
85-90% háranna á vaxtarstigi á
meðan 10-15% þeirra eru á hvíldar-
stigi eftir að hafa náð fullum vexti.
Þegar hárlos á sér stað brenglast
hinn hefðbundni hárvaxtar-
hringur vegna þess að hársekkirnir
fá ekki réttu næringarefnin. Helstu
ástæður hárloss eru meðal annars
stress, veikindi, sykursýki, lyf,
reykingar, meðganga, fæðing, hár-
meðhöndlun og fleira.
Nourkrin hárbætiefni fyrir
konur og karlmenn hefur verið
selt á Íslandi síðan 2018, en verið
til á heimsvísu síðan 1986 og er
margverðlaunað hárbætiefni, það
vinsælasta í Bretlandi. Nourkrin
hárbætiefnið er 100% lyfjalaust
og eina hárbætiefnið sem byggir
á fjölda klínískra rannsókna sem
birtar hafa verið í ritrýndum
vísindatímaritum. Nourkrin
inniheldur hið byltingarkennda
Marilex bætiefni sem er einka-
leyfisvarið efni, unnið úr þykkni
úr fiskbeinum og inniheldur rétt
hlutfall af svokölluðum próteóglý-
könum, sem næra hársekkina svo
þeir geti viðhaldið eðlilegum hár-
vaxtarhring.
Nourkrin er algjörlega öruggt
og allir mega nota það, nema
þeir sem hafa ofnæmi fyrir fiski
og skelfiski, þar á meðal ófrískar
konur og konur með barn á brjósti.
Hefðbundin meðferð er tvær töflur
daglega í sex mánuði. Ástæðan
fyrir lengd meðferðarinnar er sú að
það tekur hárvaxtarhringinn sex
mánuði að ná jafnvægi. Hársekk-
irnir geta verið á misjöfnum stað í
sínum hring þegar meðferð hefst og
því tekur þetta þennan tíma.
Góður árangur í prófun
Árið 2020 var farið af stað með
fyrsta prófanahópinn á Íslandi fyrir
Nourkrin. Sextán einstaklingar á
aldrinum 26-75 ára, fimmtán konur
og einn karlmaður, voru valin
til að prófa vöruna í sex mánuði.
Meðalaldur þátttakenda var 50 ár.
Ástæður hárloss hjá þátttakendum
voru misjafnar en flest höfðu glímt
við hárlos í töluverðan tíma og
prófað margt til að minnka það.
Niðurstöður rannsóknarinnar voru
mjög ánægjulegar og sýndu að allir
þátttakendur fundu mun á hárinu
eftir að hafa tekið inn Nourkrin.
Helstu ástæður hárloss þátttak-
enda í rannsókninni voru:
n Vanvirkur skjaldkirtill
n Sjálfsofnæmi (Alopecia)
n Legslímuflakk
n Sykursýki 2
n Skortur á B12
n Psoriasis, psoriasis gigt
n Lyf
n Álag, stress í kjölfar veikinda,
dauðsfalla eða annarra persónu-
legra ástæðna
Einnig hafa nýleg gögn sýnt fram á
að Nourkrin virkar mjög vel á fólk
sem hefur lent í hárlosi í kjölfar
Covid-19. n
Nourkrin fæst í öllum helstu apó-
tekum. Nánari upplýsingar á isam.
is/ nourkrin
Nourkrin virkar vel gegn hárlosi
Nourkrin-bætiefnið hentar öllum kynjum. MYND/AÐSEND
ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 15. september 2021