Fréttablaðið - 15.09.2021, Side 34
Eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Sveinbjörnsson
prófessor emeritus,
Ártúnsbrekku við Elliðaár,
sem lést 1. september,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 16. september kl. 13.00.
Einnig verður streymt frá athöfninni.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd.
Guðrún Magnúsdóttir
Sveinbjörn Jónsson Sigrún Kristjánsdóttir
Þórunn Bergþóra Jónsdóttir Birgir Bachmann
Magnús Bjarni Jónsson Lucia Amoros Ribera
Halldór Jónsson Anna Dóra Helgadóttir
Ingibjörg Jónsdóttir Richard Fraser Yeo
afa- og langafabörn.
Elsku systir okkar, mágkona og frænka,
Gígja Guðfinna Thoroddsen
Starengi 6, Reykjavík,
sem lést 8. september,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju,
þriðjudaginn 21. september kl. 15.
Ásta St. Thoroddsen Bolli Héðinsson
Einar Gunnar Guðmundsson Sverrir Bollason
Atli Bollason Brynhildur Bolladóttir
Ólafur E. Thóroddsen
Ólöf Jónína Thoroddsen Hrafnhildur Thoroddsen
Faðir okkar,
Einar Guðlaugsson
lést á heimili sínu þann 30. ágúst.
Útför fer fram frá Bústaðakirkju,
fimmtudaginn 16. september kl. 13.00.
Athöfninni verður streymt frá
www.streyma.is
Margrét Bóthildardóttir og Guðlaug Einarsdóttir
Ástkær sonur minn, bróðir okkar,
mágur og frændi,
Bjarni Guðmundsson
frá Brekku í Dýrafirði,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Eyri, Ísafirði, sunnudaginn 12. september.
Útför verður auglýst síðar.
Kristín Gunnarsdóttir, systkini hins látna
og fjölskyldur þeirra.
Eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristján Ólafsson
(1928)
áður til heimilis að
Hraunbraut 43 í Kópavogi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund 7. september.
Þökkum hlýhug og vinsemd og sérstakar þakkir til
starfsfólks V3 á Grund. Útförin fer fram í kyrrþey.
Edda Bergmann Guðmundsdóttir
Gróa Kristjánsdóttir Þorvaldur Þorvaldsson
Kristján og Helena Sif – Edda Sif og Guðmundur Hreinn
Gróa Mjöll, Róbert Ingi, Gísli Þór og Óliver Ingi
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Haraldur Ólafsson
Víðilundi 20, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri
12. september. Útför hans fer fram
frá Akureyrarkirkju mánudaginn
20. september kl. 10.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri.
Hermann Haraldsson Elín Guðmundsdóttir
Ólafur Örn Haraldsson Sigríður Björnsdóttir
Guðrún María Haraldsdóttir Ólafur Sigurðsson
afa- og langafabörn.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Sigtryggs Sveins Bragasonar
Elísabet Jóhannsdóttir
Ragnheiður Valgerður Sigtryggsdóttir Ágúst Loftsson
Ingibjörg Sigtryggsdóttir Niclas Jessen
Vilhjálmur, Kjartan, Loftur, Nói, Leó, Rúrik og Dagbjört
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ingimundur Magnússon
ljósmyndari,
lést sunnudaginn 12. september
síðastliðinn. Útför verður auglýst síðar.
Magnús Ingimundarson Brynhildur Ingvarsdóttir
Gunnar Ingimundarson Hrund Sch. Thorsteinsson
Bolli Þór Bollason Hrefna Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar yndislegi og ástkæri
Grettir Grettisson
rafiðnfræðingur,
Ólafsgeisla 20a,
lést í faðmi fjölskyldunnar mánudaginn
6. september á líknardeildinni í Kópavogi.
Útförin fer fram fimmtudaginn
16. september frá Langholtskirkju, kl. 13.
Jenný Stefanía Jensdóttir
Jens Grettisson Kolbrún Eva Sigurðardóttir
Íris Rut Grettisdóttir Mosi
Jenný Stefanía Jensdóttir og Benjamín Darri Jensson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigurrós Unnur
Sigurbergsdóttir
(Rósa)
Lindargötu 57,
áður Laugarásvegi 60, Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi þann 6. september
síðastliðinn. Alúðarþakkir færum við starfsfólki Vitatorgs,
Múlabæjar og bráðaöldrunarlækningadeildar B4 á
Landspítalanum í Fossvogi, fyrir kærleika, stuðning og
umönnun. Útförin fer fram frá Áskirkju, fimmtudaginn
16. september klukkan 13.00.
Guðmundur Gunnarsson Margrét María Þórðard.
Oddný Sigurborg Gunnarsdóttir
Gunnar Steinn Gunnarsson Berit Solvang
Einar Örn Gunnarsson Margrét Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Landmælingar Íslands og Stofnun
Árna Magnússonar standa fyrir
átaki um afmörkun og skráningu
örnefna um land allt.
arnartomas@frettabladid.is
Í dag hefst landsátakið Hvar er? á vegum
Landmælinga Íslands og Stofnunar Árna
Magnússonar. Um er að ræða átak um
afmörkun og skráningu örnefna um
landið.
„Við erum að reyna að fá sem flesta
sem eru kunnugir staðháttum til að
aðstoða okkur við að staðsetja örnefni,“
segir Eydís Líndal Finnbogadóttir for-
stjóri Landmælinga Íslands. „Í dag er
um hálf milljón örnefna skráð í svoköll-
uðum örnefnalýsingum sem hafa verið
gerðar aðgengilegar á Stofnun Árna
Magnússonar.“
Átakið hefst í Borgarbyggð í dag þar
sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
umhverfis- og auðlindaráðherra, mun
skrá örnefni í sinni heimabyggð, Brúar-
landi.
„Um 1930 var gert átak í að skrá
örnefni á jörðum landsins og sá listi
hefur verið gerður stafrænn. Það sem
við höfum gert núna er að tengja þetta
saman við kortagrunninn okkar,“
útskýrir Eydís. „Það þýðir að ef þú eða
afi þinn þekkið eitthvert svæði getið þið
staðsett örnefni úr þessu örnefnasafni
og sagt okkur hvar það er.“
Skírnarfontur þúfnanna
Þannig bar það til að það boð kom, að
skrásetja skyldi alla landsbyggðina. En
hvar dregur maður mörkin um hvað sé
örnefni?
„Við ætlum sko aldeilis að fara niður
í minnstu þúfur, en í þessu átaki erum
við að einbeita okkur að því að staðsetja
þau örnefni sem þegar hafa þegar verið
skráð,“ segir Eydís. „Ef fólk hins vegar
þekkir fleiri örnefni sem eru ekki á list-
anum þá má bæta þeim við, og þá skiptir
ekki máli hversu stórt kennileitið er. Ef
einhver steinn heitir eitthvað, þá heitir
hann það.“
Aðspurð segir Eydís að jarðir landsins
séu misjafnlega nafnríkar.
„Það er eitthvað af svæðum þar sem
ekki er búið að skrá mikið af örnefnum.
Það er búið að skrá um tvö þúsund jarðir
nú þegar en það eru um fimm þúsund
jarðir eftir sem á eftir að staðsetja
örnefni á,“ segir hún. „Við vitum líka að
hálendið er ekki jafn nafnríkt og mörg
láglendissvæði þar sem fólk hefur búið
lengi.“
Athöfnin í Borgarbyggð hefst klukkan
17.30 í dag í félagsheimilinu Lyngbrekku.
Allir sem hafa góða staðbundna þekk-
ingu á örnefnum eru velkomnir í hóp
skráningaraðila og skiptir þá engu
hversu tölvufær viðkomandi er. n
Hvað á fjallið að heita?
Láglendið, þar
sem fólk hefur
búið um aldaraðir,
er öllu nafnríkara
en hálendið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VILHELM
Við erum að reyna að fá
sem flesta sem eru kunn-
ugir staðháttum til að
aðstoða okkur við að
staðsetja örnefni.
Eydís Líndal Finn-
bogadóttir, for-
stjóri Landmælinga
Íslands.
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 15. september 2021 MIÐVIKUDAGUR