Fréttablaðið - 15.09.2021, Blaðsíða 44
Á mánudagskvöldið fór fram
einn stærsti tískuviðburður
ársins, Met-galakvöldið.
Stjörnurnar skarta oft fram-
sæknari flíkum þetta kvöld.
Galakvöldið fer vanalega fram
í maí ár hvert en var frestað
vegna heimsfaraldursins.
steingerdur@frettabladid.is
Met-galakvöldið fór fram á mánu-
dag en viðburðurinn er sann-
kölluð tískuveisla. Galakvöldið er
haldið á vegum bandaríska Vogue
til styrktar Metropolitan-safninu í
New York, þá sérstaklega deild sem
varðveitir tískumuni.
Miði á kvöldið kostar tæpar fjórar
milljónir króna.
Kim Kardashian vakti sérstaka
athygli þar sem margir héldu að
hún væri mætt með fyrrverandi
eiginmanni sínum, Kanye West.
Kom það af stað orðrómi um að
þau hefðu sæst og tekið aftur saman.
Síðar kom í ljós að Demna Gvasalia,
hönnuður hjá Balenciaga, var í fylgd
með Kardashian, en það er hefð
að hönnuðir fari með stjörnum á
galakvöldið sem klæðast þeirra
hönnun. n
Stærsti
tískuviðburður
ársins
Billie Eilish var
glæsileg í kjól
Oscar de la
Renta.
FRÉTTABLÐIÐ/GETTY
Tónlistarmaðurinn Lil Nas X lét sig
ekki vanta, eftir að hafa slegið í gegn
á VMA-verðlaununum á sunnudag.
Raunveruleikastjarnarn Kim Kar-
dashian var í fylgd gests sem margir
töldu vera Kanye West, fyrrverandi
eiginmann hennar. Í ljós kom að um
var að ræða Demna Gvasalia, sem er
hönnuður hjá Balenciaga.
Natalia Bryant, dótti Kobe og Van-
essu Bryant, klæddist þessum sér-
staka kjól sem vakti mikla athygli.
Frank Ocean
tók með sér
skemmtilega
öðruvísi gest.
Leikarinn
Elliott Page
mætti í jakka-
fötum frá
Balenciaga,
skreyttum
grænni rós.
Justin Bieber
mætti í jakka-
fötum frá
eigin merki,
Drew House.
Eiginkona
hans Hailey
Bieber mætti
í kjól frá Saint
Laurent.
Leikkonan
Rose Leslie
geislaði í
gulum kjól
frá Oscar de
la Renta.
28 Lífið 15. september 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 15. september 2021 MIÐVIKUDAGUR