Fréttablaðið - 15.09.2021, Blaðsíða 48
frettabladid.is 550 5000RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf.DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is
Láru G.
Sigurðardóttur
n Bakþankar
Hvern einasta dag rata um átta
milljónir plasthluta í sjóinn og
áætlað hefur verið að plast þeki 1,6
milljónir ferkílómetra á sjávar-
botni. Það samsvarar að Þýskaland,
Frakkland, Ítalía og Spánn væru
alþakin plasti. Plast er orðið svo
útbreitt að það var nýlega uppgötv-
að inni í jöklum Norður-Íshafs.
Ár hvert eru framleidd um 400
milljónir tonna af dauðagildru,
en plast drepur um 100 milljónir
sjávardýra – það eru 30-falt fleiri líf-
verur en látist hafa af völdum Covid
á ársgrundvelli.
Plast herjar líka á manns-
líkamann. Við öndum því að okkur,
berum það á húðina með snyrti-
vörum, étum það með matnum
og drekkum það. Þarmar skelfisks
innihalda til dæmis plast og þegar
fæða er pökkuð í plast færðu plast-
agnir í kaupbæti. Sýnt hefur verið
að plastagnir finnast í blóði, svita
og þvagi.
Fyrir ári síðan kynnti umhverfis-
og auðlindaráðherra áætlunina Úr
viðjum plastsins, til að sporna gegn
plastmengun, en við þurfum öll að
taka þátt. Þegar þú þværð polýester-
flík sendirðu plastagnir í vistkerfið.
Þegar þú drekkur úr plastflösku
rennur plast í líkamann. Þegar þú
hendir plasti leggurðu dauðagildru.
Plast er allsstaðar og það er átak að
hætta að nota það, en með aðgerða-
leysi erum við að menga allt lífríkið.
Plastlaus september ætti að vera
alla daga. Sjálf er ég farin að nota
glerílát og glerrör í stað plasts, sem
ég vaska upp. Ég hætti að kaupa
vatn í plastflösku og drekk heldur
vatn úr krana eða sodastream-
tæki. Ég set ekki plastpoka utan
um grænmetið og næsta skref er
að kaupa ekki matvöru í plast-
umbúðum. Best væri að geta sótt
matvöru með eigin íláti, eða fengið
hana í pappírsumbúðum. Þó þetta
kosti smá vesen þá er það vel þess
virði. Bæði fyrir okkar eigið líf og
lífríki jarðar. n
Plöstuð tilvera
SKANNAÐU
KÓÐANN
NÝR BÆKLINGUR
Askja býður glæsilegt úrval 100% rafbíla, tvinn- og tengiltvinnbíla frá
Mercedes-Benz, Kia og Honda. Við erum sérfræðingar í rafbílum og
svörum öllum þínum spurningum um allt sem þeim tengist.
Kíktu í heimsókn — við tökum vel á móti þér.
Yfir 30 gerðir rafmagnaðra bíla
Skoðaðu úrvalið á
syningarsalur.askja.is
Straumurinn
er í Öskju!
Askja • Krókhálsi 11-13, 110 Reykjavík • 590 2100 • askja.is
Sýningarsalur nýrra bíla Öskju á vefnum er alltaf opinn.
Þar má sjá bíla sem eru til á lager eða eru væntanlegir.
KAUPTU ARMBANDIÐ
STYÐJUM STÚLKUR Á FLÓTTA
LÍNA OKKAR TÍMA
Skannaðu QR kóðann og
fáðu upplýsingarnar beint í
símann.