Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 1. A P R Í L 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 92. tölublað . 109. árgangur .
Melóna
Græn
384KR/KG
ÁÐUR: 549 KR/KG
GIRNILEG TILBOÐ Í NÆSTU NETTÓ!
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 22.—25. apríl
Lambaframpartur
Grillsagaður
699KR/KG
ÁÐUR: 999 KR/KG
Kjúklingabringur
Grilltvenna
1.679KR/KG
ÁÐUR: 2.665 KR/KG
-37%-30% -30%
HÖRÐ BARÁTTA
VERÐUR Á
FLUGMARKAÐI
OFURDEILDIN
SEM ENGINN
BAÐ UM
KLÚBBURINN
GREINIR KRÍSUNA
Í AKADEMÍUNNI
AÐDÁENDUR AFAR ÓSÁTTIR 24, 50 AFHJÚPUN SEM HAFÐI ÁHRIF 56VIÐSKIPTAMOGGINN
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Stefnt er að því að aflétta öllum tak-
mörkunum vegna kórónuveirufar-
aldursins innanlands fyrir 1. júlí. Þá
er áætlað að bólusetningu allra yfir
16 ára verði lokið, að því er fram kom
á blaðamannafundi ríkisstjórnarinn-
ar í gær. Dómsmálaráðherra segir
gleðiefni að bólusetningar gangi vel
svo líf landsmanna gæti færst í eðli-
legt horf. Þá voru einnig kynntar
hertar aðgerðir á landamærunum og
leggur heilbrigðisráðherra fram
frumvarp þess efnis á Alþingi í dag. Í
því felst heimild til þess að skylda
ferðamenn frá skilgreindum áhættu-
svæðum í sóttvarnahús en hægt
verður að sækja um undanþágu, sýni
ferðamaður fram á að hann geti klár-
að sóttkví á viðunandi stað.
Stjórnvöld leggja einnig til að lög-
fest verði heimild dómsmálaráð-
herra til þess að banna ónauðsynleg-
ar ferðir til landsins, komi
ferðamenn frá skilgreindum áhættu-
svæðum.
Þórdís Kolbrún Gylfadóttir, ferða-
mála- og nýsköpunarráðherra, segir
að ferðavilji bólusettra sé mikill.
Ferðaþjónustan sæki á bandarískan
markað, þar sem bólusetning þar
gengur vel.
Öllu aflétt fyrir 1. júlí
- Stjórnvöld herða tímabundið aðgerðir á landamærunum
MStefna að afléttingu … » 4
„Ég kom vegna nýja eldgossins og held að ég
hafi náð einu myndinni þar sem norðurljósin
virðast stíga upp úr eldfjallinu,“ sagði Max Milli-
gan, ljósmyndari frá Bretlandi. „Ég var við að
leggja af stað en sneri mér við og þá voru
norðurljósin komin. Klukkuna vantaði eina mín-
útu í þrjú um nóttina. Ég hef séð myndir af eld-
lituðum gosmekkinum og norðurljósum, en ekki
eldjallinu sjálfu og norðurljósum.“ »10
Ljósmynd/Maxmilliganphoto á Instagram
Stórkostleg litbrigði á kaldri vetrarnótt
Bæta þarf aðgengi að íslensku hand-
ritunum sem varðveitt eru í Kaup-
mannahöfn og æskilegt væri að fá
fleiri þeirra hingað til lands. Þetta
segir Lilja Alfreðsdóttir mennta-
málaráðherra í samtali við Morgun-
blaðið í tilefni af því að í dag, 21. apr-
íl, er liðin hálf öld síðan fyrstu
handritin úr vörslu Dana voru feng-
in Íslendingum að nýju.
Í handritamálinu börðust Íslend-
ingar fyrir menningu sinni og sjálfs-
mynd segir menntamálaráðherra og
leggur áherslu á hve mikilvæg þessi
barátta hafi verið. „Þjóðum sem eiga
sína sögu vegnar betur en öðrum,
enda hafa þær til framtíðar litið góð-
an grunn til að byggja á,“ tiltekur
Lilja sem segir aðkallandi að koma
fornsögunum íslensku í stafrænt
form. Nýta verði möguleika fjórðu
iðnbyltingarinnar til þess að efla ís-
lenskt mál og bókmenntir.
„Handritin eru sál íslensku þjóð-
arinnar, skilið okkur þeim til baka,“
segir íslenski menntamálaráðherr-
ann í viðtali um helgina við Kriste-
ligt Dagblad sem gefið er út í Kaup-
mannahöfn. »16
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Handritadagurinn 21. apríl 1971.
Handritin
sál Íslands
- Lilja vill að Danir
skili fleirum til baka
Bjarg íbúðafélag nær ekki að endur-
fjármagna nærri þriggja milljarða
skuldbindingar sínar sem stendur
þar sem Húsnæðis- og mannvirkja-
stofnun hefur stöðvað allar lánveit-
ingar að sinni. Ástæða stöðvunar-
innar er alvarlegur ágreiningur
stofnunarinnar við fjármála- og
efnahagsráðuneytið um hvernig
fjármögnun stofnunarinnar skuli
háttað. Heimildir ViðskiptaMoggans
herma að dráttur á endurfjár-
mögnun Bjargs valdi því að félagið
getur ekki lækkað leiguverð gagn-
vart skjólstæðingum sínum eins og
stefnt hafi verið að. »Viðskipti
Bjarg nær ekki að
endurfjármagna
_ Eyþór Arnalds,
oddviti sjálfstæð-
ismanna í
borgarstjórn,
segir að vegfar-
enda í Reykjavík
bíði stórkostlegt
vinnutap og tafir
gangi tillögur
Dags B. Eggerts-
sonar borgar-
stjóra eftir um stórfellda lækkun á
ökuhraða. Alls muni ríflega eitt
þúsund mannár fara í súginn á ári
hverju fyrir vikið, samkvæmt tölum
borgarinnar. »33
Þúsund ár tapast á
götum Reykjavíkur
Eyþór Arnalds