Morgunblaðið - 21.04.2021, Qupperneq 14
Á sumardaginn fyrsta hafa skát-
arnir jafnan verið í aðalhlutverki við
hátíðahöld, sem í ár verða lág-
stemmd af skiljanlegum ástæðum.
Sitthvað verður þó til gamans gert
og boðskapur dagsins er að leika og
lifa. „Lítið er mikið, í einföldu atrið-
unum felast ævintýri,“ segir Marta
Magnúsdóttir, skátahöfðingi Ís-
lands.
Grípur í öll möguleg störf
Marta býr í Grundarfirði og þar í
bæ efnir skátafélagið til ratleiks
fyrir krakkana. Á hæðum og hólum
verða settir upp baukar þar sem
fólk getur sett miða með nöfnum
sínum. Um kvöldið verður svo dreg-
ið úr innsendum nöfnum og vinn-
ingar afhentir. Í fyrra voru meðal
annars tómataplöntur í vinning,
sem Marta segir undirstrika hve
göfugt sé að rækta og lifa í anda
sjálfbærni.
„Ég sjálf stússa í mörgu
skemmtilegu hér heima í Grund-
arfirði,“ segir Marta. „Gríp í öll
möguleg störf sem bjóðast og hef að
undanförnu tekið vaktir í sundlaug-
inni, á dvalarheimili aldraðra, sinnt
liðveislu við fatlað fólk og sitthvað
fleira. Þá starfræki ég klifurhús hér
í bænum, sem er frábær staður fyr-
ir krakka sem finnst gaman að príla
og þurfa að fá útrás fyrir orkuna.
Meðfram þessu er ég að koma í
kring innflutningi á ýmsum vörum
frá Kólumbíu, meðal annars mat-
vörum, og vonandi kemst sá rekstur
af stað nú með vorinu.“
Í harðfisk á Grænlandi
Margt spennandi er á dagskrá
skátahreyfingarinnar í sumar. Í þrí-
gang verða hóflega stór skátamót
sem fengið hafa titilinn Skáta-
sumarið á Úlfljótsvatni. Þá verða
skátafélögin á höfuðborgarsvæðinu
með útilífsskóla fyrir börn á aldr-
inum 7-11 ára og margvíslega aðra
dægradvöl, sem er í senn lærdóms-
rík og þroskandi. „Inntak skáta-
starfsins er meðal annars að fólk
læri að bjarga sér og takast á við
óvæntar áskoranir. Sjálfri finnst
mér gaman að glíma við slíkt,“ segir
Marta sem í júní verður nokkrar
vikur við störf í harðfiskverkun á
austurströnd Grænlands. Aðstæður
þar eru afar frumstæðar en að
sama skapi spennandi, eða svo
finnst Mörtu sem hræðist ekki hið
óþekkta. Raunar þvert á móti; þykir
gaman að ganga á hólm við eitthvað
ófyrirséð og spennandi og leysa
þrautirnar án hiks.
Skátar bjarga sér og
takast á við áskoranirnar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skáti Ævintýri eru í einföldum at-
riðum, segir Marta Magnúsdóttir.
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021
Ferðafélag Íslands • Mörkinni 6 • www.fi.is • 568-2533
SUMARLEYFISFERÐIR FÍ • skráðu þig inn og drífðu þig út!
Sjáumst á fjöllum
Hvernig verður sumarið?
Þótt veturinn sem nú er
að líða hafi verið snjó-
léttur og frekar mildur, í
samanburði við fyrri ár,
er einlægt fagnaðarefni
allra að sumarið sé að
ganga í garð. Skemmti-
legir tíma eru handan
við hornið með skemmt-
unum og ferðalögum um
byggð og ból, upp til
heiða og dala. Viðmæl-
endur láta jafnvel að því
liggja að á tímum veir-
unnar hafi fólk jafnvel
lært að njóta betur
augnabliksins og lítilla
ævintýra á líðandi
stundu. Hver veit. Gleði-
legt sumar! sbs@mbl.is Morgunblaðið/Ófeigur
Sumargleði Leikir og lífsgleði skapa stemningu sumarsins.
„Snork í Silfru á Þingvöllum og flug-
ferðir í Zip-line í aparólunum sem
settar hafa verið upp yfir gljúfur og
gil í Vík í Mýrdal eru á óskalista mín-
um þetta sumarið. Í fyrra prófaði ég
að róa á kajak á Jökulsárlóni á
Breiðamerkursandi, og ég vil meira
af slíku. Ævintýri og upplifun,“ segir
Laufey Guðmundsdóttir sem starfar
hjá Markaðsstofu Suðurlands.
Á síðasta ári ferðuðust Íslendingar
mikið um eigið land, enda ekki annað
í boði. Straumurinn lá á best þekktu
staðina, svo sem Stuðlagil, Húsavík
og á tjaldsvæðin til dæmis í upp-
sveitum Árnessýslu. „Í fyrra voru
margir að kynnast landinu sínu í
fyrsta sinn eða alveg upp á nýtt. Fóru
því á þessa algengustu staði en fara í
sumar á þá sem eru afskekktari og
fáfarnari, til dæmis á hálendinu. Ein-
hverjir munu svo sjálfsagt gefa sér
tíma til þess að vera í einhverja daga
á áhugaverðum stöðum. Sjálfri fannst
mér til dæmis mjög gaman að vera í
Skaftafelli og víðar í Öræfasveit. Í
sumar langar mig að vera einhverja
daga við til dæmis Kirkjubæjar-
klaustur og Vík í Mýrdal, stórbrotið
svæði Kötlu – jarðvangs. Þar eru
áhugaverðir staðir sem mig langar til
þess að skoða betur.“
Ævintýri og upplifun
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ferðlangur Kynnast landinu upp á
nýtt, segir Laufey Guðmundsdóttir.
„Baráttan við veiruna virðist orðin
viðráðanlegri en áður. Landið er að
rísa og því vænti ég að sumarið
verði gott,“ segir Erlingur Krist-
ensson í Hafnarfirði. „Í átta ár
samfleytt fórum við hjónin til
Costa Blanca á Spáni og vorum þar
í nokkrar vikur á sumri. Vonandi
komumst við út í sumar og staðan
virðist góð, því í næstu viku stend-
ur til að bólusetja hálfa milljón
fólks á Valencia-svæðinu. Vonandi
deyja smitin út nú þegar svo stór
hópur hefur fengið sprauturnar
eftirsóttu. Mér finnst mjög eft-
irsóknarvert og gott að komast í
heita sólina svolítinn tíma á sumr-
in.“
Í Íslandsferðum á sumrin segir
Erlingur Snæfellsnesið alltaf eiga
sess í hjarta sínu. Ferðirnar þang-
að voru fimm – og dvalist ýmist í
Stykkishólmi, Langaholti eða á
Búðum. „Mesta ævintýrið er samt
að dveljast á Malarrifi, þar sem
fjölskyldan hafði aðgang að húsi.
Að sjá kraftmikið brimið þar berja
klettana og finna orkuna frá Jökl-
inum er engu öðru líkt. Já, ég
hlakka svo sannarlega til sumars-
ins og vonandi verða guðir veðrátt-
unnar okkur velviljaðir.“
Spánarsól eftirsóknarverð
Ljósmynd/Úr einkasafni
Sumarfrí Veðurguðirnir verði okk-
ur velviljaðir, segir Erlingur.