Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 50
50 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021
England
Chelsea – Brighton................................... 0:0
Staðan:
Manch. City 32 23 5 4 67:23 74
Manch. United 32 19 9 4 64:35 66
Leicester 31 17 5 9 55:37 56
Chelsea 32 15 10 7 50:31 55
West Ham 32 16 7 9 53:42 55
Liverpool 32 15 8 9 54:38 53
Tottenham 32 14 8 10 54:37 50
Everton 31 14 7 10 43:40 49
Arsenal 32 13 7 12 44:36 46
Leeds United 32 14 4 14 50:50 46
Aston Villa 30 13 5 12 43:33 44
Wolves 32 11 8 13 32:41 41
Crystal Palace 31 10 8 13 33:52 38
Southampton 31 10 6 15 39:56 36
Newcastle 32 9 8 15 35:53 35
Brighton 32 7 13 12 33:38 34
Burnley 32 8 9 15 26:45 33
Fulham 33 5 12 16 25:43 27
WBA 31 5 9 17 28:59 24
Sheffield Utd 32 4 2 26 17:56 14
West Ham – Aston Villa .......................... 0:0
- Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn
með West Ham.
B-deild:
Brentford – Cardiff .................................. 1:0
Norwich – Watford................................... 0:1
Preston – Derby ....................................... 3:0
Sheffield Wed. – Blackburn .................... 1:0
Swansea – QPR ........................................ 0:1
Staða efstu liða:
Norwich 43 27 9 7 66:32 90
Watford 43 25 10 8 60:28 85
Swansea 43 22 10 11 52:34 76
Brentford 42 20 15 7 72:41 75
Bournemouth 42 21 11 10 69:41 74
Barnsley 42 21 8 13 54:46 71
Reading 42 19 10 13 57:46 67
QPR 43 17 11 15 51:51 62
C-deild:
Rochdale – Blackpool.............................. 1:0
- Daníel Leó Grétarsson lék ekki með
Blackpool vegna meiðsla.
D-deild:
Forest Green Rovers – Exeter............... 0:0
- Jökull Andrésson varði mark Exeter.
Þýskaland
Eintracht Frankfurt – Augsburg .......... 2:0
- Alfreð Finnbogason kom inn á eftir 65
mínútur hjá Augsburg og brenndi af víti.
Köln – Leipzig........................................... 2:1
Arminia Bielefeld – Schalke.................... 1:0
Bayern München – Leverkusen ............. 2:0
Staða efstu liða:
Bayern München 30 22 5 3 85:38 71
RB Leipzig 30 18 7 5 53:25 61
Eintr.Frankfurt 30 15 11 4 61:44 56
Wolfsburg 29 15 9 5 51:29 54
Dortmund 29 15 4 10 62:42 49
Leverkusen 30 13 8 9 48:34 47
M’gladbach 29 11 10 8 52:43 43
B-deild:
Würzburg – Darmstadt .......................... 1:3
- Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik-
inn með Darmstadt.
Svíþjóð
B-deild:
Helsingborg – Örgryte ........................... 4:1
- Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með
Helsingborg.
Pólland
Lech Poznan – Lechia Gdansk............... 3:0
- Aron Jóhannsson var ónotaður varamað-
ur hjá Lech Poznan.
4.$--3795.$
Undankeppni HM kvenna
Umspil, seinni leikir:
Hvíta-Rússland – Svartfjallaland ....... 24:26
_ Svartfjallaland á HM, 55:47 samanlagt.
Þýskaland – Portúgal........................... 34:23
_ Þýskaland á HM, 66:50 samanlagt.
Pólland – Austurríki............................. 26:29
_ Austurríki á HM, 58:55 samanlagt.
Rússland – Tyrkland............................ 45:24
_ Rússland á HM, 80:47 samanlagt.
Sviss – Tékkland................................... 22:28
_ Tékkland á HM, 55:49 samanlagt.
Evrópudeild karla
8-liða úrslit, seinni leikir:
Magdeburg – Kristianstad ................. 39:31
- Ómar Ingi Magnússon skoraði 9 mörk
fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Krist-
jánsson er frá vegna meiðsla.
- Ólafur Guðmundsson skoraði tvö mörk
fyrir Kristianstad og Teitur Einarsson eitt.
_ Magdeburg áfram, 73:59 samanlagt.
Wisla Plock – GOG .............................. 31:26
- Viktor Gísli Hallgrímsson varði 10 skot í
marki GOG.
_ Wisla áfram, 58:56 samanlagt.
RN Löwen – Medvedi.......................... 37:27
- Ýmir Örn Gíslason komst ekki á blað hjá
Löwen.
_ RN Löwen áfram, 69:60 samanlagt.
Füchse Berlín – Montpellier ............... 31:23
_ Füchse áfram, 60:55 samanlagt.
Þýskaland
B-deild:
Hamburg – Aue ................................... 28:24
- Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði tvö
mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson
varði 10 skot í marki liðsins. Rúnar Sig-
tryggsson þjálfar Aue.
%$.62)0-#
OFURDEILD
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Félögum í hinni svokölluðu „of-
urdeild“ evrópska fótboltans fækk-
aði í gærkvöld úr tólf í tíu, tveimur
sólarhringum eftir að tilkynnt var
um stofnun hennar. Ensku félögin
Chelsea og Manchester City til-
kynntu í gærkvöld að þau hefðu
ákveðið að hætta við þátttöku.
Þar með standa eftir fjögur ensk
lið, Manchester United, Liverpool,
Tottenham og Arsenal, sem eru að-
ilar að „ofurdeildinni“ ásamt
spænsku og ítölsku félögunum sex.
Ljóst er að stoðirnar undir deildinni
eru að hrynja sem spilaborg og þeg-
ar þetta var skrifað í gærkvöld hafði
verið boðað til neyðarfjarfundar full-
trúa félaganna sem átti að hefjast
laust fyrir miðnætti að evrópskum
tíma. Deildin gæti því hafa verið
slegin af strax í nótt.
Mikil mótmæli hófust við Stam-
ford Bridge, leikvang Chelsea í
London, nokkrum tímum áður en
leikur liðsins við Brighton hófst í
gærkvöld, og stuðningsmenn töfðu
fyrir liðsrútunni þegar hún kom að
vellinum með leikmenn liðsins. Um
það bil klukkutíma fyrir leik kvis-
aðist út að Chelsea væri hætt við að
taka þátt í „ofurdeildinni“
Stuttu síðar bárust fréttir af því
að Manchester City hefði tilkynnt
skipuleggjendum deildarinnar að fé-
lagið ætlaði ekki að vera með og
formleg yfirlýsing kom frá City síð-
ar í gærkvöld.
Komið hefur í ljós að Chelsea og
Manchester City voru tvö síðustu fé-
lögin sem samþykktu aðild að deild-
inni. Þau létu undan þrýstingi og
skrifuðu undir af ótta við að vera
skilin útundan og myndu missa af
stóru tækifæri en hin hörðu við-
brögð frá stuðningsfólki og almenn-
ingi á Englandi urðu til þess að eig-
endur þeirra skiptu um skoðun.
Í gærkvöld var tilkynnt að Ed
Woodward myndi hætta störfum
sem stjórnarformaður og fram-
kvæmdastjóri hjá United strax í vor
en til stóð að hann myndi gegna
starfinu til næstu áramóta. Hann
var lykilmaður United í ákvarð-
anatöku varðandi ofurdeildina.
Jordan Henderson fyrirliði Liver-
pool boðaði í gær til neyðarfundar
meðal fyrirliða allra liða í ensku úr-
valsdeildinni til að ræða málið. Sjálf-
ur setti hann afdráttarlausa tilkynn-
ingu á Twitter í gærkvöld fyrir hönd
leikmanna Liverpool:
„Okkur líkar þetta ekki og við vilj-
um ekki að það gerist. Þetta er af-
staða okkar allra. Hollusta okkar við
þetta knattspyrnufélag og við stuðn-
ingsfólk þess er algjör og afdrátt-
arlaus. Þú gengur aldrei einn.“
Þar með virtist í raun bara forms-
atriði hvenær Liverpool myndi
hætta við þátttöku.
Stór félög fordæma
Mörg af stærstu knattspyrnu-
félögum Evrópu hafa fordæmt áætl-
anir um „ofurdeildina.“ Þar eru Bay-
ern München, París SG, Borussia
Dortmund, Benfica, Roma og Porto
fremst í flokki. Þessi félög hafa öll
lýst fullum stuðningi við áætlanir
UEFA um breytingar á Meist-
aradeild Evrópu og útiloka þátttöku
í „ofurdeildinni“ sem brjóti öll gildi í
heiðarlegri íþróttakeppni þar sem
árangur innan vallar eigi að ráða för.
Florentino Peréz, forseti Real
Madrid og stjórnarformaður „of-
urdeildarinnar“, hefur verið einn um
að tala fyrir henni opinberlega.
Hann sagði í sjónvarpsþætti á Spáni
í gærmorgun að deildin myndi
bjarga fótboltanum sem væri ekki
vinsæll lengur meðal ungs fólks.
Ummæli hans virðast ekki hafa
hjálpað málstaðnum.
Ofurdeildin
var spilaborg
- Áformin runnin út í sandinn?
AFP
Mótmæli Stuðningsfólk Chelsea mótmælti fyrir utan Stamford Bridge,
heimavöll félagsins í London, í gærkvöld þegar liðið mætti Brighton.
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu verður í öðrum styrk-
leikaflokki þegar dregið verður í
riðla í undankeppni HM 2023 sem
hefst í september. HM 2023 fer
fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi en
þátttökuþjóðirnar á HM verða 32
talsins í fyrsta sinn. Íslenska liðið
freistar þess að komast í fyrsta sinn
í lokakeppni mótsins en dregið
verður í riðla fyrir undankeppnina
föstudaginn 30. apríl. Nánar er
fjallað um styrkleikaflokkana fyrir
undankeppnina á mbl.is/sport/
efstadeild.
Ísland í öðrum
styrkleikaflokki
Morgunblaðið/Eggert
Mark Leikmenn liðsins fagna marki
gegn Ítalíu í vináttuleik á dögunum.
Ísland átti tvo fulltrúa í liði umferð-
arinnar í sænsku úrvalsdeildinni í
kvennaknattspyrnu hjá sænska
miðlinum Aftonbladet í gær. Glódís
Perla Viggósdóttir átti góðan leik í
hjarta varnarinnar hjá Rosengård
þegar liðið vann 1:0-útisigur gegn
Linköping. Þá var Keflvíkingurinn
Sveindís Jane Jónsdóttir á skot-
skónum í sínum fyrsta deildarleik
fyrir Kristianstad þegar liðið heim-
sótti Eskilstuna en leiknum lauk
með 1:1-jafntefli. Sveindís er samn-
ingsbundin Wolfsburg en mun leika
á láni í Svíþjóð út tímabilið.
Tvær sköruðu
fram úr í Svíþjóð
Ljósmynd/@FCRosengard
Vörn Glódís hefur verið í lykilhlut-
verki hjá Rosengård undanfarin ár.
Chelsea þurfti að sætta sig við
jafntefli þegar liðið fékk Brighton
í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni
í knattspyrnu á Stamford Bridge í
Lundúnum í gær.
Leiknum lauk með markalausu
jafntefli en Chelsea tókst ekki að
sýna sitt rétta andlit í leiknum
sem var frekar bragðdaufur.
Þrátt fyrir jafnteflið er Chelsea
komið í fjórða sæti deildarinnar
og er nú með 55 stig, jafn mörg
stig og West Ham, og tveimur
stigum meira en Liverpool sem er
í sjötta sætinu.
Chelsea-menn hefðu hins vegar
getað skotist upp í þriðja sæti
deildarinnar með sigri og upp
fyrir Leicester en það stefnir í
ansi harða baráttu um síðustu tvö
Meistaradeildarsætin. Brighton
er sem fyrr í sextánda sæti deild-
arinnar, sjö stigum frá fallsæti,
en liðinu hefur gengið illa að
nýta marktækifæri sín á tíma-
bilinu.
AFP
Jafntefli Olivier Giroud og Thomas Thuchel takast í hendur í leikslok.
Chelsea missteig sig í
baráttunni á toppnum
Ómar Ingi Magnússon átti stórleik
fyrir Magdeburg þegar þýska liðið
tryggði sér sæti í undanúrslitum
Evrópudeildarinnar í handknatt-
leik með sigri gegn Kristianstad frá
Svíþjóð í Magdeburg í Þýskalandi í
gær.
Ómar Ingi skoraði níu mörk í
leiknum og var markahæsti leik-
maður vallarins en leiknum lauk
með 39:31-sigri þýska liðsins.
Magdeburg vann fyrri leik lið-
anna í Svíþjóð með sex marka mun,
34:28, og einvígið því samanlagt
73:59.
Ólafur Andrés Guðmundsson
skoraði tvö mörk fyrir Kristianstad
og Teitur Örn Einarsson eitt mark.
Þá eru Ýmir Örn Gíslason og liðs-
félagar hans í þýska liðinu Rhein-
Neckar Löwen komnir áfram í und-
anúrslitin eftir 37:27-sigur gegn
Medvedi í Þýskalandi.
Fyrri leik liðanna í Rússlandi
lauk með 33:32-sigri Medvedi og
Rhein-Neckar Löwen vann því ein-
vígið samanlagt 69:60.
Viktor Gísli Hallgrímsson var
með 27% markvörslu þegar lið hans
GOG tapaði með fimm marka mun
fyrir Wisla Plock í Póllandi.
Viktor Gísli varði tíu skot í mark-
inu en fyrri leik liðanna í Dan-
mörku lauk með þriggja marka
sigri GOG, 30:27. GOG er því úr leik
í keppninni en pólska liðið vann ein-
vígið samanlagt 58:56.
Þá er Füchse Berlín komið áfram
í undanúrslit eftir samanlagðan
60:55-sigur gegn Montpellier frá
Frakklandi.
Það verða því þrjú þýsk lið í und-
anúrslitum keppninnar í ár en úr-
slitahelgin er 22.-23. maí á heima-
velli Rhein-Neckar Löwen í
Mannheim í Þýskalandi.
Tvö Íslendingalið
í undanúrslitum
Morgunblaðið/Eggert
9 Ómar Ingi Magnússon fór á kost-
um í leiknum gegn Kristianstad.