Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.10.2021, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 02.10.2021, Qupperneq 6
Samkvæmt nýrri vísindagrein er parasetamól, algengasta verkjalyf Vesturlanda, hættu- legt fyrir börn í móðurkviði. Lyfjastofnun mun í samráði við Lyfjastofnun Evrópu skoða málið en samkvæmt íslenskum leiðbeiningum er engin skráð áhætta af notkun lyfsins fyrir þungaðar konur. kristinnhaukur@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Í ljósi nýrrar yfir- lýsingar vísindamanna um áhrif parasetamóls á fóstur hyggst Lyfja- stofnun skoða hvort breyta þurfi leiðbeiningum. Verður það gert í samráði við Lyfjastofnun Evrópu. Samkvæmt yfirlitsgrein, eftir vís- indamenn við Kaupmannahafnar-, Árósa-, Massachusetts- og f leiri háskóla sem birt var í tímaritinu Nature, hefur parasetamól áhrif á heilsu fósturs á ýmsan hátt. Svo sem á taugakerfið, þvagfæri, frjósemi og hegðun. Kalla rúmlega 90 vísinda- menn og heilbrigðisstarfsfólk eftir því að þungaðar konur verði var- aðar við því að nota parasetamól og sérstakar merkingar verði settar á pakkningar. Pa ra set a mól er a lgenga st a verkjalyfið á Íslandi og í mörgum ef ekki f lestum öðrum löndum Evrópu. Er það selt hér í lausasölu undir ýmsum merkjum, svo sem Paratabs, Panodil og Pinex, og gegn lyfseðli undir Parkódín, Dolorin og f leiri heitum. Í leiðbeiningum með til dæmis Paratabs, einu mest selda lyfi lands- ins, segir að engin þekkt áhætta sé við notkun þess á meðgöngu. Þó er þunguðum konum almennt ráðlagt frá því að nota nokkur lyf á fyrstu þremur mánuðunum nema í sam- ráði við lækni. Hrefna Guðmundsdóttir, yfir- læknir Lyfjastofnunar, segir atriði í greininni sláandi. „Hingað til höfum við litið á parasetamól sem öruggt lyf. Það hefur verið notað í áratugi og þess vegna höfum við kannski ekki gefið því gaum,“ segir hún. „Þessi grein bendir á atriði sem er ekki hægt að líta fram hjá. Það þarf að skoða það sem liggur að baki í kjölinn og hugsanlega gera breytingar á fylgiseðlinum.“ Einkum þurfi að kanna þær rannsóknir sem liggi að baki, sem eru annars vegar faraldslegar rann- sóknir á mæðrum og börnum og hins vegar dýratilraunir. Eitt af því sem verði skoðað sé skammtastærðir, hugsanlega gæti verið í lagi fyrir þungaðar konur að nota parasetamól í stuttan tíma en ekki við langvarandi verkjum. Lyfið komist hins vegar yfir fylgjuna til fóstursins. „Það eru aðrar leiðir fyrir þungaðar konur að takast á við verki, svo sem með öðrum lyfjum eða hjá sjúkraþjálfara,“ bendir hún á. Sveinbjörn Gizurarson, prófess- or í lyfjafræði við Háskóla Íslands og helsti sérfræðingur landsins í eitrunum í móðurkviði, segir áhrif ýmissa lyfja á fóstur enn hulin og því almennt ekki mælt með því að þungaðar konur taki lyf komist þær hjá því. „Hvorki framleiðendur, lyfjafræð- ingar, læknar né annað heilbrigðis- starfsfólk vilja að lyfin sem þau nota hafi áhrif á fóstur, sem er dýrmæt- asta gjöf sem foreldrar fá. Því þarf að fara mjög vandlega yfir rannsóknir á borð við þessa,“ segir hann. Sveinbjörn segir apótekin bundin af fyrirmælum sem fylgja hverju lyfi þegar það er skráð hjá Lyfjastofnun og koma fram á fylgiseðli eða merk- ingum. Stundum séu viðvaranir settar utan á lyfjapakkningar eins og vísindamennirnir fyrrnefndu vilja. „Við vitum að ofneysla paraseta- móls getur valdið lifrarskaða í full- orðnum, sérstaklega ef áfengis eða fituríks matar er neytt með,“ segir hann. „Það sama gæti átt sér stað í fóstri og því þarf að passa upp á skammtana þegar um þungaðar konur er að ræða.“ n Þessi grein bendir á atriði sem er ekki hægt að líta framhjá Hrefna Guð- mundsdóttir, yfirlæknir Lyfjastofnunar Lyfjastofnun skoðar hvort að breyta þurfi leiðbeiningum um parasetamól Lyfjastofnun íhugar að breyta leiðbeiningum um parasetamól vegna mögulegra áhrifa á fóstur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR kristinnhaukur@frettabladid.is NEYTENDUR Klippingar á Íslandi eru þær áttundu dýrustu í heimi og kosta að meðaltali rétt rúmlega 8 þúsund krónur. Danir tróna á toppi listans en þar kosta klippingar að meðaltali 9.800 krónur. Í öðru sæti koma Norðmenn og þá Bandaríkja- menn. Þetta kemur fram í grein- ingu viðskiptatímaritsins Ladders. Ódýrustu klippinguna má finna í Argentínu, aðeins 675 krónur, en upplýsingar frá fjölmörgum ríkjum þriðja heimsins vantar. Á eftir Arg- entínu koma Sambía og Filipps- eyjar. Þó nokkur munur er á karla- og kvennaklippingum hér á landi sem annars staðar. Meðalverð dömu- klippingar hér á landi er 9.200 krónur en verð herraklippingar er aðeins um 6.600 krónur. Það er rúmlega 39 prósenta munur. Langoftast eru dömuklippingar dýrari en herraklippingar, sama hvar er gengið inn á stofu. Mesta jafnræðið mældist í örrík- inu Andorra, aðeins 5 prósent, en þar borga karlmenn meira. Mesti munurinn mældist í Nígeríu, 634 prósent, en þar eru klippingar almennt með þeim ódýrari í heim- inum. Í Kólumbíu kostar herra- klipping tæpar 1.400 krónur en en dömuklipping 8 þúsund. n Mikill verðmunur á herra- og dömuklippingum kristinnhaukur@frettabladid.is SLYSAVARNIR Í dag fer fram lands- æfing björgunarsveitanna á stór- höfuðborgarsvæðinu. Verða æfingar víðs vegar, bæði á landi og láði, frá klukkan 9 um morguninn til 17 um kvöldið og taka alls um 200 björg- unarsveitarmenn þátt í þeim. Davíð Már Bjarnason, upplýs- ingafulltrúi Landsbjargar, segir að ýmsar æfingarnar verði nokkuð krefjandi. Meðal annars sjóbjörgun og tæknilega f lókin línuvinna við Hallgrímskirkju. Alls eru verkefnin um 30 talsins. „Fólk mun taka eftir þessu og gott að fólk viti að þarna sé um æfingar að ræða,“ segir Davíð. „Annars fer fólk gjarnan að hringja út um allar trissur.“ n Björgunarsveitin æfir í Reykjavík Útkall í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 8 Meðalverð klippingar á Íslandi er átta þús- und krónur.  benediktboas@frettabladid.is SKÓLAMÁL Bæjarráð Árborgar hefur skorað á stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga að beita sér fyrir fullri viðurkenningu ríkisvaldsins á leik- skólastiginu sem menntastofnun. Í ályktun bæjarráðs í vikunni er mælt með því að ríkisvaldið skil- greini tekjustofn til sveitarfélaga til að standa straum af kostnaði við rekstur leikskóla frá lokum fæð- ingarorlofs. Jafnframt þurfi að tryggja leiðir til að fjármagna þjónustu við fötluð börn á leikskólum og þau börn sem hafa annað móðurmál en íslensku, til dæmis með jöfnunarframlögum. Að sama skapi skorar bæjarráð á nýja ríkisstjórn Íslands að taka frumkvæði í þessu verkefni. Í ályktuninni segir einnig að til þessa hafi sveitarfélög á eigin spýtur byggt upp og fjármagnað leikskóla- stigið, án þess að skilgreindir hafi verið tekjustofnar í verkefnið. n Leikskólinn verði menntastofnun Fram til þessa hafa sveitarfélögin fjármagnað leikskólastigið. benediktboas@frettabladid.is KOSNINGAR Í skýrslum yfirkjör- stjórna kjördæmanna sex til lands- kjörstjórnar í vikunni, má sjá ýmsar ástæður fyrir því að atkvæði telst ógilt, eins og krot, punkta, rauð pennastrik og allt þar á milli. Atkvæði til Viðreisnar í Reykja- víkurkjördæmi suður var metið ógilt, þar sem vilji kjósanda var ekki skýr. Reiturinn við listann var skyggður en þó mátti hugsan- lega greina kross en óvíst hvort vilji kjósanda stóð til að kjósa Viðreisn eða hætta við. Umboðsmenn allra f lokka kíktu á atkvæðið og töldu vilja kjósanda koma skýrt fram þar sem ungt fólk lærir að fylla út reiti með þessum hætti í skóla. Þeir skólastjórnendur sem Frétta- blaðið ræddi við könnuðust ekki við þessar skýringar og sögðu unga kjósendur vel kunna að gera x í kjörklefanum. Þó hafi þurft að fylla í reiti með þessum hætti í krossa- prófum í Háskólanum þar sem vélar lesa niðurstöðurnar. Í Reykjavíkur- kjördæmi norður voru þrjú atkvæði skyggð með sama hætti. Yfirkjör- stjórn mat þau ógild en umboðs- menn mátu þau góð og gild. Á Akureyri reyndust 22 atkvæði ógild. Þar hafði einn kjósandi fyllt reitinn við J með rauðum lit og var atkvæði hans dæmt ógilt. Engir aðrir hnökrar voru á seðlinum segir í andmælum. „Að dæma ógilt þar eð rauður penni er notaður í stað blý- ants er ómálefnalegt því að hræðsla við Covid getur ýtt fólki til þess að nota eigin skriffæri,“ segir í and- mælum umboðsmanns Sósíalista- flokksins. Hann bendir enn fremur á að kjósendur Sósíalistaflokksins hafi verið hvattir til að skila rauðu sem væri hægt að skilja bókstaf- lega. n Atkvæðin sem dæmd voru ógild fyrir rauð pennastrik og krot Í kennslu um kosningu á áttavitinn.is segir að inni í kjörklefa sé blýantur sem notist til þess að setja X fyrir framan bókstaf lista. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 6 Fréttir 2. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.