Fréttablaðið - 02.10.2021, Page 16

Fréttablaðið - 02.10.2021, Page 16
11. september: Ekki í hópnum hjá Everton Everton sendir frá sér staðfestingu á leikmanna- hópi liðsins fyrir komandi keppnistímabil í ensku úrvalsdeildinni 1. september og var hópurinn birtur á vefsíðu félagsins laugardaginn 11. september. Þar er nafn Gylfa Þórs ekki að finna á meðal leikmanna í hópi liðsins. Þar af leiðandi liggur fyrir að hann muni ekki spila með félags- liði sínu fyrr en í upphafi næsta árs í fyrsta lagi. 25. ágúst: Ekki í landsliðshópnum Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen tilkynna landsliðshóp sinn fyrir komandi leiki í undankeppni HM 2022. Gylfi Þór er ekki í leik- mannahópnum og Arnar Þór segist ekki hafa rætt við Gylfa Þór síðan hann var handtekinn. Á fimmtudaginn síðastliðinn var svo sömu sögu að segja. Gylfi Þór var ekki valinn í næstu leiki liðsins gegn Armeníu og Liechtenstein sem spilaðir verða á Laugardalsvelli í október. Arnar Þór hefur ekki verið í sambandi við hann síðustu vikurnar. 16. júlí: Gylfi Þór handtekinn í Manchester Föstudaginn 16. júlí var Gylfi handtekinn af lög- reglunni í Manchester vegna gruns um kynferðis- brot gegn ólögráða einstaklingi. Eftir skýrslutöku hjá lögreglunni var Gylfi látinn laus gegn trygg- ingu. Tvær vikur eru eftir af tímanum sem kveðið var upp um að Gylfi væri laus gegn tryggingu. Laus gegn tryggingu til 16. október Gylfi Þór er laus gegn tryggingu til 16. október en talið er að málið verði tekið fyrir hjá dómara þann daginn, eða tilkynnt að málið hafi verið leyst utan dómstóla. Ekkert hefur hins vegar verið staðfest í þeim efnum af lögregluyfirvöldum í Manchester. 11. ágúst: Málið ennþá til rannsóknar Lögreglan í Manchester staðfestir að mál Gylfa Þórs sé enn til rannsóknar hjá embættinu. Rætt hafði verið um að hann myndi mæta fyrir dómara 12. eða 13. ágúst en ekkert varð úr því. Næsta dag- setning í málinu er þá 16. október. 20. júlí: Nafnið birt í íslenskum fjölmiðlum Íslenskir fjölmiðlar segja frá því að Gylfi Þór sé til rannsóknar hjá lögreglunni í Manchester vegna kynferðisbrots gegn barni. Gylfi Þór hefur ekkert tjáð sig um ásakanir í sinn garð. Breskir fjölmiðlar vitna í þá íslensku hvað nafngreininguna varðar. Ekkert hefur skýrst meira í málinu síðan þá. 19. júlí: Settur í leyfi hjá félagsliði sínu Everton staðfestir að leikmaður liðsins hafi verið settur í ótímabundið leyfi hjá félaginu vegna lög- reglurannsóknar. Skömmu síðar greinir Everton frá því að um sé að ræða 31 árs gamlan leikmann liðsins. Hringurinn þrengdist síðan enn frekar þegar Fabian Delph sagði að hann væri ekki um- ræddur leikmaður. Þá var Gylfi eini leikmaðurinn sem gat komið til greina í leikmannahópi liðsins. 17. júlí: Samfélagsmiðlar byrja að slúðra Netverjar gera því í skóna á samfélagsmiðlum að Gylfi Þór Sigurðsson hafi verið handtekinn af lög- reglunni í Manchester vegna gruns um kynferðis- brot gegn barni. Húsleit hafi verið gerð á heimili Gylfa Þórs samhliða handtökunni. Gylfi Þór lék ekki með Everton í æfingaleik þá helgi. 16 Íþróttir 2. október 2021 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 2. október 2021 LAUGARDAGUR Íslenska fótboltasamfélagið var slegið þegar fregnir bárust af því í júlí að skærasta stjarna samfélagsins, Gylfi Þór Sigurðsson, hefði verið hand- tekinn vegna kynferðisbrots. hjorvaro@frettabladid.is FÓTBOLTI Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í fótbolta og leik- maður enska knattspyrnufélags- ins Everton, er laus gegn tryggingu vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni til 16. október næstkomandi. Ekkert hefur heyrst frá Gylfa Þór síðan hann var handtekinn í júlí síðastliðnum en meint brot átti sér stað árið 2017. Þá hefur lögreglan í Manchester ekkert sagt um fram- gang rannsóknarinnar utan þess að hún sé enn í gangi. Hér til hliðar má sjá tímalínu í máli Gylfa Þórs en vænta má að frekari fregnir af málinu komi um miðjan októbermánuð. ■ Gylfi laus gegn tryggingu í hálfan mánuð í viðbót Þess er að vænta að innan tíðar dragi til tíðinda í máli Gylfa Þórs Sigurðssonar sem handtekinn var vegna gruns um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi um miðjan júlí. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY « « « « « « Gylfi Þór mætir til vinnu hjá Ever- ton í upphafi síðasta sumars. Gylfi Þór ræðir við liðsfélaga sinn hjá Everton, Fabian Delph, í sumar. Gylfi Þór hefur reglulega borið fyrir- liðabandið hjá Everton síðustu árin.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.