Fréttablaðið - 02.10.2021, Síða 30
Það er ekki fyrr en á
síðustu árum sem
okkur hefur tekist að
vinna með erfðaefnið
úr sjávarsetlögum.
Þetta var
virkilega
gaman og
svo er ansi
framandi
að vinna
með hern-
um.
Þörungafræðingurinn Sara
Harðardóttir lauk nýlega vís
indaleiðangri undan vestur
strönd Grænlands á dönsku
herskipi. Hún segir leiðangur
inn hafa verið ævintýralegan
og bíður spennt eftir að greina
niðurstöður hans.
Sara Harðardóttir er einn vísindamanna sem luku nýlega rannsóknarleiðangri upp með vesturströnd Grænlands á dönsku herskipi.
Um borð var fjölbreyttur hópur
fræðimanna sem unnu saman að
því markmiði að rannsaka lofts
lags tengdar breytingar síðastliðin
tólf þúsund ár.
„Ég er kannski helst kölluð þör
ungafræðingur,“ segir Sara spurð
hvernig sé best að titla hana, en
hún starfar við dönsku jarðfræði
rannsóknarstofnunina GEUS og
Lavalháskólann í Quebec í Kanada.
Sara er lærður verkfræðingur frá
Tækniháskólanum í Danmörku og
er með doktorspróf í erfðafræði frá
Náttúrusögusafni Danmerkur við
Kaupmannahafnarháskóla.
„Á hverju ári eru nokkrir rann
sóknarleiðangrar farnir í sam
vinnu við danska sjóherinn og í ár
var okkar hópur valinn til að fara
í leiðangur um borð í herskipinu
HDMS Lauge Koch,“ segir Sara. „Við
sigldum frá Aasiaat til Thule og svo
suður til Nuuk og sinntum sýnatöku
úr hafi og sjávarjarðkjörnum.“
Splunkuný tækni
Til að ákvarða hvort hafís hafi
verið á svæðinu á tilteknum tíma
nýtir Sara sér sjávarsetlögin sem
eins konar tímavél. „Sjávarsetlögin
varðveita erfðaefni úr þörungum
sem ég get greint og sagt til um
hvort hafi verið hafís á svæðinu á
þeim tíma sem þeir voru lifandi,“
útskýrir hún.
Sara bætir við að rannsóknir af
Tímavél á hafsbotni
HDMS Lauge Koch dregur nafn sitt af danska jarðfræðingnum og heimskautakönnuðinum Koch.
Hermennirnir gegna mörgum skyldum og stundum þurfti
að víkja frá leiðangrinum til að sinna björgunarstörfum.
Niðurstöður rannsóknar Söru gætu varpað ljósi á útbreiðslu eiturþörunga. MYNDIR/FREDERIK WOLFF
Þessi stóri bor
er notaður til að
taka setlagasýni
að sex metra
dýpt. Borinn
er eitt tonn að
þyngd og grefst
með þyngd-
arafli í sjávar-
botninn.
Sara vonast eftir að getað klárað leiðangurinn á næsta ári.
Arnar Tómas
Valgeirsson
arnartomas
@frettabladid.is
ville Bay og fram fyrir Cape York
sem er auðvitað sögufrægur staður,
og þaðan upp til Thule,“ segir hún.
„Þetta var virkilega gaman og svo
er ansi framandi að vinna með
hernum.“
Herinn sinnir f jölbrey ttum
skyldum og segir Sara að nokkrum
sinnum hafi komið fyrir að skipið
þurfti að víkja af leið til að sinna
björgunarleiðöngrum. „Arktisk
Kommando hefur þrjú lykilverk
efni,“ segir Sara. „Þeir sinna land
helgisgæslu, aðstoða vísindamenn
við rannsóknir og eftirlit og sinna
björgunarstörfum. Plönin áttu
þess vegna til að breytast ansi oft.
Við höfðum upprunalega ætlað að
sigla alla leiðina til Qaanaaq og yfir
til Kanada, en vonandi getum við
klárað leiðangurinn á næsta ári.
Þegar unnið er með hafís þarf alltaf
mikinn undirbúning, skipin þurfa
að geta siglt í, og helst í gegnum,
hafís og undirbúningurinn er því
oft að minnsta kosti heilt ár.“ n
þessu tagi séu spánnýjar af nálinni.
„Áður fyrr höfðum við aðallega
verið að rannsaka lífverur sem
skilja eftir sig sýnilega slóð, eins
og til dæmis götunga, sem eru ein
fruma sjávardýr sem mynda skeljar
úr kalki, og kísilþörunga sem hafa
um sig glerskel. Það er ekki fyrr en
á síðustu árum sem okkur hefur
tekist að vinna með erfðaefnið úr
sjávarsetlögum sem gefur okkur
tækifæri á að sjá allar þær lífverur
sem hafa fallið til botns í hafinu.“
Með Söru um borð var fjölbreytt
ur hópur fræðimanna frá fjórum
fræðistofnunum, meðal annars haf
fræðingar sem unnu að því að skoða
hafstrauminn við VesturGrænland,
og jarðeðlisfræðingar sem unnu að
því að rannsaka hafsbotninn. Þá
tók áhöfnin sjálf einnig þátt í sýna
tökunni.
Leiðangrinum lauk 3. september
en það mun þó líða nokkur tími
áður en nokkrar niðurstöður liggja
fyrir.
„Það tekur nokkra mánuði að
vinna úr svona og líka að fá sýnin
heim,“ segir Sara. „Við erum ennþá
að bíða eftir að fá til dæmis sjávar
setlagak jar nana í hendur nar.
Erfðaefnarannsóknir taka auðvitað
sinn tíma líka svo það gæti tekið
um þrjá til sex mánuði að fá fyrstu
niðurstöður.“
Sara segist spennt fyrir því að
hefjast handa við að greina hafís
þörungana og segist einnig vongóð
um að geta varpað ljósi á útbreiðslu
eiturþörunga, sem innihalda efni
skaðleg mönnum og dýrum. „Kenn
ingarnar segja að þeir séu að færast
norður með minnkandi útbreiðslu
hafíss og hitnun sjávar.“
Ævintýralegt ferðalag
Vísindaleiðangur um borð í her
skipi hljómar ansi ævintýralega og
Sara segir upplifunina í samræmi
við það. „Við sigldum frá Aasiat, inn
Upernavikfjörð, í gegnum Mel
30 Helgin 2. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ