Fréttablaðið - 02.10.2021, Síða 34

Fréttablaðið - 02.10.2021, Síða 34
Hlín Reykdal skartgripa- hönnuður hannar Bleiku slaufuna í ár sem er táknræn fyrir hana og hefur tilfinn- ingalegt gildi. Hlín hefur hannað skartgripi undir eigin nafni frá árinu 2010. sjofn@frettabladid.is Hlín leggur mikið upp úr fallegum litasamsetningum og vönduðu handverki í allri hönnun sinni. Allir hennar gripir eru framleiddir hér á landi og hafa notið mikillar hylli frá byrjun. Hlín á hönnunar­ verslunina Kiosk ásamt öðrum hönnuðum en þar er seld íslensk fatahönnun og skartgripir. Sér­ staða Kiosk er sú að þar verslar þú beint við hönnuðina og er verslunin staðsett úti á Granda, að Grandagarði 35. Hefur verið með ástríðu fyrir listsköpun og hönnun alla tíð „Ég er menntaður fatahönnuður, hef starfað sem skartgripahönn­ uður í meira en áratug. Maðurinn minn heitir Hallgrímur og ég á tvær stelpur, Stellu 12 ára og Stefaníu 8 ára, sem eru líf mitt og yndi og hafa tekið þátt í þessu með mér á einn eða annan hátt. Ég hef haft ástríðu fyrir listum og hönnun frá því ég man eftir mér. Foreldrar mínir eru báðir lista­ menn, um helgar vorum við mikið á listasýningum. Ég man eftir því eins og það hafi verið allar helgar. Ferðalög innanlands sem erlendis gengu mikið út á að foreldrar mínir voru að sýna eða við að skoða list og hönnun. Þetta er mér dýrmæt reynsla og ég bý að henni í dag. Við erum þrjár systurnar og ég er örverpið í fjölskyldunni, við fórum allar út í listir eða hönnun.“ Systur hennar eru Hadda Fjóla Reykdal listmálari og Nanna Huld Reykdal. Hlín segist alla tíð hafa verið að skapa eitthvað og hafa fengið frelsi til þess. „Frá því ég man eftir mér hef ég alltaf verið að skapa eitthvað, sem barn teiknaði ég og málaði öllum stundum. Þegar ég var unglingur fór ég að hafa mikinn áhuga á fötum og að breyta, sauma föt. Heimilissauma­ vélin brann út. Ég var heppin hvað ég fékk mikið frelsi til að skapa heima. Ég sé marga svipaða takta í dætrum mínum.“ Perluð slaufa með gullplatta Segðu okkur frá hvernig það kom til að þú hannaðir Bleiku slaufuna í ár. „Kolbrún hjá Krabbameins­ félaginu hafði samband við mig, Bleika slaufan perlum skreytt Edda Björgvinsdóttir leikkona ber slaufuna vel. Háls- menið er fagurlega skreytt og hönnunin glæsileg. Sóley Kristjánsdóttir. Mæðgurnar Inga Eiríksdóttir og Ragnheiður Guðmunds- dóttir eru ánægðar með slaufuna sína. Berglind Guðmundsdóttir. Hlín Reykdal hannar bleiku slaufuna í ár. MYNDIR/AÐSENDAR ég þurfti ekki að hugsa mig um andartak, enda mikill heiður að fá þetta verkefni. Þetta er mikil­ vægt verkefni. Krabbameinsfélagið treystir einungis á söfnunarfé og er bleika slaufan einn stærsti þáttur­ inn í því,“ segir Hlín og er mjög snortin yfir að fá þessa beiðni. Hvaðan kom innblásturinn fyrir hönnun þína? „Verum til er slagorð sem Krabbameinsfélagið notar í ár, mér fannst það fallegt og vildi nota það. Ég vildi halda í teikninguna sem er í slaufunni sjálfri. Nota bleikt og gull, persónulega finnst mér þeir litir passa einstaklega vel saman.“ Hvernig myndir þú lýsa bleiku slaufunni í ár? „Perluð slaufa með gullplatta með slagorðinu Verum til.“ Pabbi er fyrirmynd í leik og starfi Hefur einhver í þinni fjölskyldu og nærumhverfi þurft að glíma við krabbamein? „Pabbi minn, Jón Reykdal list­ málari, lést úr heilakrabbameini árið 2013 eftir mjög stutta baráttu, hann greinist og er farinn hálfu ári seinna. Hann var algjör fyrirmynd hvað varðar heilsu og að sjá vel um sig. Var á undan sinni samtíð hvað varðar mataræði, hreyfði sig reglu­ lega og reykti aldrei. En lífið spyr ekki alltaf að því. Pabbi var og er mér mikil fyrirmynd í lífi og starfi. Það eru í dag átta ár síðan hann fór, ég hugsa til hans á hverjum degi.“ Gaman er að geta þess að það er bleikt boð í Kiosk í dag, laugar­ daginn 2. október, klukkan 15­17 og eru allir velkomnir. Sérstök hátíðarútgáfa af bleiku slaufunni verður til sölu, en hún kemur í tak­ mörkuðu magni. n Hægt er að kaupa slaufuna í helstu matvöruverslunum, apótekum, Krabbameinsfélaginu, á hlinreyk- dal.com og í versluninni Kiosk. SÍGILD KÁPUBÚÐ Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Laxdal er í leiðinni SKOÐIÐ LAXDAL.IS Vetrar- yfirhafnir í fjölbreyttu úrVali. 4 kynningarblað A L LT 2. október 2021 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.