Fréttablaðið - 02.10.2021, Síða 35
Umhverfisstjóri
Umsóknarfrestur er til og með
18. október 2021.
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is
og henni þarf að fylgja starfsferilskrá
og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og hæfni
umsækjanda til að sinna starfinu rökstudd.
Áhugasamir einstaklingar, óháð
kyni og uppruna, eru hvattir til
að sækja um starfið.
Farið verður með allar fyrirspurnir
og umsóknir sem trúnaðarmál
og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir
Hafdís Ósk Pétursdóttir
(hafdis@intellecta.is)
í síma 511-1225.
rfr t r r til
. t r .
t f llt t .i t ll t .i
i rf f l j t rf f ril r
i r r f r r r r i
f rir t r f i
j til i t rfi r t .
ir i t li r,
i r , r ttir til
j t rfi .
ri r r ll r f rir r ir
ir tr r l
i r r i l i i.
ri l i r itir
f í t r ttir
( f i i t ll t .i )
í í - .
Við leitum að starfsmanni sem hefur mikinn áhuga og þekkingu á umhverfismálum
til að leiða starf fyrirtækisins í umhverfismálum.
Starfssvið:
• Innleiðing á umhverfisstefnu félagsins hjá fyrirtækjum
samstæðunnar um allan heim.
• Yfirumsjón með umhverfisbókhaldi samstæðunnar.
• Greiningar á kolefnisspori veiðarfæra.
• Umsjón með útgáfu umhverfisskýrslu fyrirtækisins.
• Ábyrgð á og umsjón með umhverfisvottunum.
• Verkefnastjórn umbótaverkefna í umhverfismálum.
• Þátttaka í ýmsum samstarfsverkefnum sem tengjast
umhverfismálum.
• Upplýsingagjöf til fjárfesta og annarra aðila varðandi
umhverfismál.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af umhverfismálum er nauðsynleg.
• Færni og lipurð í mannlegum samskiptum ásamt hæfni
til að tjá sig í ræðu og riti.
• Góð enskukunnátta er skilyrði.
• Þekking á veiðum og veiðarfærum er kostur.
• Tæknileg þekking ásamt góðri efnisþekkingu er mikilvæg.
• Drifkraftur, metnaður, framsýni og sjálfstæði í starfi.
• Jákvæðni og góðir samstarfshæfileikar eru mikils metnir.
Hampiðjan er leiðandi fyrirtæki í heiminum í þróun, sölu
og þjónustu á framúrskarandi veiðarfærum til fiskiskipa.
Fyrirtækið er jafnframt í fararbroddi í þróun og framleiðslu
á ofurköðlum sem seldir eru víða um heim.
Hampiðjan er alþjóðlegt fyrirtæki með starfsemi í 15 löndum.
Dótturfyrirtækin eru 28 talsins og starfsstöðvarnar eru 44 allt frá
ysta odda Alaska til Nýja Sjálands.
Hjá samstæðunni starfa nú um 1.160 starfsmenn.
Nánari upplýsingar veitir Einar Örn Ævarsson (einarorn@intellecta.is). Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru
hvattir til að sækja um. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Sérfræðingur í viðskiptaþróun
Klappir er hugbúnaðarfyrirtæki sem er
leiðandi á heimsvísu í gagnadrifnum
sjálfbærnilausnum.
Hugmyndafræði Klappa grundvallast á
því að skapa stafræn vistkerfi þar sem
aðilar deila á milli sín sjálfbærni-
upplýsingum og þannig auðvelda
fyrirtækjum að fá gott yfirlit yfir þróun
sjálfbærnimála í rekstri sínum.
Hugbúnaðarlausnir Klappa eru í notkun
hjá yfir 300 fyrirtækjum um heim
allan og er stefnan sett á enn frekari
vöxt á næstu misserum. Boðið er upp
á skemmtilegt vinnuumhverfi með
fjölbreyttum verkefnum og tækifærum
til að hafa viðtæk samfélagsleg áhrif.
Nánari upplýsingar um Klappir má finna
á www.klappir.com
Helstu verkefni og ábyrgð: Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun og/eða starfsreynsla sem nýtist í
starfi
• Þekking og/eða reynsla á sviði sjálfbærni- og
umhverfismála er kostur
• Drifkraftur og geta til að hreyfa við hlutum
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar og geta til þess
að miðla flóknum upplýsingum á einfaldan hátt
• Rík þjónustulund, skipulagshæfni og lausnamiðuð
hugsun
• Gott vald á bæði íslensku og ensku í mæltu og
rituðu máli
• Samskipti og samningagerð við viðskiptavini,
samstarfsaðila og aðra hagaðila
• Verkefnastjórnun og samskipti við vöruþróunar-
og þjónustuteymi
• Kynningar á hugmyndafræði og lausnum Klappa
• Samskipti og stuðningur við samstarfsmenn
félagsins í Danmörku
Við leitum að sérfræðingi í viðskiptaþróun til að takast á við fjölbreytt verkefni og stuðla
að vexti félagsins bæði á Íslandi og erlendis. Um er að ræða einstakt tækifæri til að láta
gott af sér leiða og hafa áhrif í baráttunni við hnattræna hlýnun.
Umsóknarfrestur er til og með 11. október 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja
starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára