Fréttablaðið - 02.10.2021, Blaðsíða 38
hagvangur.is
Skipavík í Stykkishólmi óskar að ráða öflugan viðskiptamenntaðan
einstakling til að sinna og bera ábyrgð á bókhaldi fyrirtækisins.
Starfssvið
• Bókun reikninga, reikningagerð
• Afstemmingar á viðskiptamönnum og lánardrottnum
• Ýmis greiningarvinna
• Önnur skrifstofustörf eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun í viðskiptafræði er æskileg
• Góð reynsla úr sambærilegu starfi
• Mjög góð reynsla í afstemmingum
• Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
• Sveigjanleiki og skilningur til að vinna að ýmsum verkefnum
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Lífsgleði og jákvætt viðmót
Umsóknarfrestur er til og með 10. október nk. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Upplýsingar veita Þórdís Sif Arnarsdóttir, thordis@hagvangur.is og Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is.
Skipavík í Stykkishólmi er rótgróið fyrirtæki sem
rekur verslun, vélsmiðju, dráttarbraut og kemur
að fjölmörgum verkefnum í byggingariðnaði auk
þess að þjónusta Norðurál á Grundartanga o.fl.
Viðskiptafræðingur í 100% starf
hagvangur.is
Brynja – Hússjóður ÖBÍ óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra. Hlutverk
framkvæmdastjóra er að stjórna og samhæfa rekstur Brynju í þeim tilgangi
að uppfylla sem best markmið félagsins. Leitað er að einstaklingi sem er
gegnheill og hefur ríkan áhuga og skilning á mannréttindum öryrkja.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Dagleg stjórnun og rekstur
• Yfirumsjón með bókhaldi og fjármálum
• Starfsmannamál
• Samskipti og samningagerð fyrir hönd stjórnar
• Undirbúningur og skipulagning stjórnarfunda
• Önnur verkefni í nánu samráði við formann og stjórn
Hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi
• Reynsla sem nýtist í starfi
• Þjónustulund og rík færni í mannlegum samskiptum
• Skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð
• Reynsla af samningagerð æskileg
• Reynsla af félagsmálastarfi kostur
• Traust orðspor
Umsóknarfrestur er til og með 15. október nk.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Upplýsingar um starfið veita Gyða Kristjánsdóttir,
gyda@hagvangur.is og Katrín S. Óladóttir,
katrin@hagvangur.is.
Brynja – Hússjóður ÖBÍ var stofnaður
22. febrúar 1966.
Brynja er sjálfseignarstofnun sem á og rekur
íbúðir fyrir öryrkja.
Nánari upplýsingar um starfsemina má fá á
vefslóðinni brynjaleigufelag.is
Framkvæmdastjóri
4 ATVINNUBLAÐIÐ 2. október 2021 LAUGARDAGUR