Fréttablaðið - 02.10.2021, Síða 42
Össur leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf viðmótshönnuðar fyrir stafrænar lausnir og vef fyrirtækisins.
Viðmótshönnuður er hluti af alþjóðlegu teymi sem vinnur þvert á deildir og á í miklum samskiptum við aðra
hönnuði og hagaðila innan Össurar á helstu starfsstöðvum okkar. Við leitum að drífandi einstaklingi með
framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót sem brennur fyrir að bæta upplifun viðskiptavinarins og
hefur á sama tíma næmt auga fyrir smáatriðum.
HÆFNISKRÖFUR
• Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
• Að lágmarki 3-5 ára reynsla í viðmótshönnun
• Góður skilningur á notendaupplifun
• Reynsla af hönnunarkerfum er kostur
• Góð þekking á hönnunartólum á borð við Adobe XD, Figma o.fl.
• Portfolio með fyrri verkum/vinnu
• Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót
• Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
• Hæfileiki til að taka þátt í alþjóðlegum verkefnum og
þverfaglegri teymisvinnu
• Mjög góð enskukunnátta
Viðmótshönnuður (UI)
STARFSSVIÐ
• Þátttaka og greining á hugmyndavinnu fyrir
notendaupplifun
• Samskipti við aðra hönnuði sem og hagaðila innan
Össurar
• Þátttaka í þróunarteymum og samvinna við aðrar
deildir innan Össurar
• Stuðningur við sölu-, markaðs-, og þjónustudeildir
í ferlum og viðmóti tengdum stafrænum lausnum
• Umsjón og forgangsröðun tækifæra fyrir stafrænar
lausnir
Umsóknarfrestur er til og með 11. október nk.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Sótt er um starfið á vef Össurar, ossur.is/mannaudur.
Athugið að velja viðeigandi starf. For English version please see the above webpage.
Nánari upplýsingar veitir mannauðsdeild í síma 515 1300.
Össur er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki á sviði stoð- og stuðningstækja.
Hjá félaginu starfa um 3500 manns í 26 löndum.
Gildi félagsins eru: Heiðarleiki – Hagsýni – Hugrekki
OSSUR.IS
Lagnaverslun
BYKO Breidd
Lagerstarfsmaður
Við leitum að öflugum starfsmanni til liðs við
okkur í lagnaverslun BYKO í Breiddinni. Ef þú
ert framsækinn og faglegur starfsmaður með
gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Vinnutími er frá kl. 8-17 alla virka daga
og fjórða hvern laugardag frá 10-14.
Við leitum að einstaklingum með:
• Þekkingu á lagnaefni, kostur
• Ríka þjónustulund
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Áhuga á verslun og þjónustu
• Lyftarapróf, kostur
• Íslenskukunnátta, skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Afgreiðsla til viðskiptavina
• Almenn lagerstörf
• Umhirða og eftirlit með tækjabúnaði
og starfsstöð
Starfsmaður í
verslun - birgðir
og sítalning
Við leitum að öflugum starfsmanni til liðs
við okkur í utanumhald með birgðum og
framkvæmd sítalninga í lagnaverslun BYKO.
Ef þú ert framsækinn og faglegur starfs-
maður með gleðina í fyrirrúmi þá erum við
að leita að þér.
Vinnutími er frá kl. 8-17 alla virka daga
og fjórða hvern laugardag frá 10-14.
Við leitum að einstaklingum með:
• Reynslu af utanumhaldi með birgðum
og talningum, kostur
• Þekkingu á lagnaefni, kostur
• Getu til að vinna sjálfstætt
• Ríka þjónustulund
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Áhuga á verslun og þjónustu
• Íslenskukunnáttu í ræðu og riti, skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Undirbúningur og framkvæmd sítalninga
• Eftirvinnsla talninga s.s. uppfæra birgðastöðu
• Umbætur á merkingum og framsettningu
á vörum m.t.t. talninga
Allar nánari upplýsingar veitir Árni B.
Kvaran, verslunarstjóri, arnibk@byko.is
Umsóknarfrestur er til 15. október