Fréttablaðið - 02.10.2021, Síða 43
Skjalastjóri
Stórt og öflugt fyrirtæki leitar að metnaðarfullum skjalastjóra til að halda áfram uppbyggingu og þróun
í skjalamálum fyrirtækisins. Viðkomandi starfar á fjármála- og mannauðssviði og fer fyrir teymi á sviði
skjalastjórnunar, hefur umsjón með skjalastefnu og daglegum rekstri skjalasafnsins.
Um er að ræða spennandi starf hjá framsæknu fyrirtæki sem setur fyrirtækjamenningu og þjónustu
viðskiptavina í fyrsta sæti. Góð laun í boði.
Helstu verkefni:
• Ábyrgð og umsjón með þróun skjalastefnu og verklagi við skjalastjórnun.
• Skipulag og umsjón með skjalasafni fyrirtækisins.
• Ábyrgð og þróun rafræns skjalastjórnunarkerfis.
• Tryggja að skjalavarsla og skjalastjórn félagsins uppfylli ytri kröfur.
• Skipulagning og framkvæmd fræðslu um skjalamál.
• Ráðgjöf og stuðningur við starfsmenn um notkun skjalavistunarkerfis og verklag við skjalamál.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði upplýsingafræði með áherslu á skjalastjórnun.
• Reynsla af One Systems skjalavörslukerfinu er kostur.
• Hæfni til að leiða öflugt teymi á sviði skjalastjórnunar.
• Mjög góð alhliða þekking og reynsla á sviði tölvu- og upplýsingatækni.
• Reynsla af sambærilegu starfi.
• Nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Framúrskarandi samskipta- og samvinnuhæfni.
Umsóknarfrestur er til og með 7. október nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með starfinu hafa Jensína K.
Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og
Hildur J. Ragnarsdóttir (hildur@vinnvinn.is).
Metnaðarfull
uppbygging
hjá framsæknu
fyrirtæki
Sjóvá 440 2000
Ert þú snillingur
í skjalastjórn?
Við leitum að einstaklingi með
› menntun á sviði tölvunarfræði, bókasafns- og
upplýsingafræði eða aðra menntun og reynslu
sem nýtist í starfi
› þekkingu á ISO 15489 skjalastjórnarstaðlinum,
þekking á ISO 27001 öryggisstaðlinum er kostur
› góða þekkingu á skjalalausnum frá Microsoft
› nákvæm vinnubrögð, lausnamiðaða hugsun
og færni í að vinna sjálfstætt
› ríka þjónustulund og færni í að miðla þekkingu
Starfið felur meðal annars í sér
› verkefnastýringu við hönnun, þróun og
innleiðingu skjalakerfa
› umsjón með flæði skjala, vistun þeirra,
líftíma og förgun
› ábyrgð á því að lögum og reglum sem varða
skjalastjórnun sé fylgt
› viðhald skjalavistunaráætlunar og annarra
lýsigagna
› skipulag og rekstur skjalasafna, sem og
kennslu og ráðgjöf til starfsfólks
› vinnu tengda áhættustýringu, ferla-
og gæðamálum
Við leitum að sérfræðingi
í skjala stjórn til að starfa í deild
áhættustýringar og gæðamála.
Viðkomandi mun leiða verkefni
á sviði skjalastjórnar, vinna með
skýja lausnir Microsoft og koma að
þróun skjalastýringarkerfis okkar.
Hjá Sjóvá starfar sterkur og skemmtilegur hópur fólks
sem kappkostar að veita viðskiptavinum afburða
þjónustu. Við erum efst tryggingafélaga í Íslensku
ánægjuvoginni og kannanir sýna að starfs ánægja
hjá okkur er með því mesta sem gerist hérlendis.
Nánari upplýsingar um starfið veita Gísli Halldór
Ingimundarson, forstöðumaður áhættustýringar
og gæðamála, gisli.ingimundarson@sjova.is,
og Erla Björk Gísladóttir, mannauðssérfræðingur,
erla.gisladottir@sjova.is.
Umsóknarfrestur er til og með 11. október.
Sótt er um starfið á sjova.is/starfsumsoknir.
Efst tryggingafélaga
í Ánægjuvoginni
Framúrskarandi fyrirtæki
í flokki stærri fyrirtækja
Jafnlaunamerki
forsætisráðuneytisins