Fréttablaðið - 02.10.2021, Side 52
Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Vestmannaeyjabæjar
Laust er til umsóknar starf skipulags- og umhverfisfulltrúa
Vestmannaeyjabæjar. Um er að ræða 100% starf innan
stjórnsýslu sveitarfélagsins. Leitað er að metnaðarfullum
aðila til að stýra fjölbreyttum verkefnum í skipulags- og
umhverfismálum sveitarfélagsins. Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
Skipulags –og umhverfisfulltrúi hefur umsjón með skipulags-,
umhverfis- og náttúruverndarmálum sveitarfélagsins, þjónus-
tu við íbúa og ráðgjöf fyrir bæjarstjórn, fagráð og nefndir og
vinnur skv. samþykktum þeirra. skipulags- og umhverfisfulltrúi
hefur eftirlit og ábyrgð með því að lögum og reglugerðum um
umhverfis- og skipulagsmál sé framfylgt.
Eftirfarandi heyrir m.a. undir verkefna- og ábyrgðarsvið
skipulags- og umhverfisfulltrúa Vestmannaeyjabæjar:
• Skipulagsgerð og útgáfa framkvæmdaleyfa.
• Umsjón með umferðar- og samgöngumálum.
• Umsjón með umhverfis- og hreinlætismálum sveitar-
félagsins.
• Umsjón með náttúruverndarmálum í sveitarfélaginu.
• Umsjón með opnum svæðum, gróðursetningu og upp-
græðslu.
• Umsjón með merkingu og kortlagningu útivistarsvæða
og gönguleiða í sveitarfélaginu.
• Umsjón verkefna er varða gróðurvernd.
• Gerð starfs- rekstrar-, og framkvæmdaáætlana fyrir þá
málaflokka sem undir hann heyra.
Skipulags- og umhverfisfulltrúi ber ábyrgð á meðferð og
varðveislu gagna, úrvinnslu og upplýsingagjöf, stefnumótun,
þróun verklags og þjónustugæða. Skipulags- og umhverfis-
fulltrúi er starfsmaður Umhverfis- og skipulagsráðs.
Skipulags- og umhverfisfulltrúi starfar á umhverfis- og fram-
kvæmdasviði og lýtur stjórn framkvæmdastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun og viðeigandi réttindi til að annast skipu-
lagsgerð skv. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er skilyrði.
• Þekking og reynsla af skipulags- og umhverfismálum
er æskileg.
• Reynsla af störfum í opinberri stjórnsýslu er kostur.
• Reynsla af þátttöku í stefnumótandi áætlanagerð og gerð
rekstrar- og fjárhagsáætlana er æskileg.
• Færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæði í
vinnubrögðum.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Góð tölvu og enskukunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Þór Snorrason,
framkvæmdastjóri Umhverfis- og framkvæmdasviðs á net-
fanginu olisnorra@vestmannaeyjar.is
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkom-
andi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til
að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt
kynjanna nr 150/2020.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðning-
ur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir skulu sendar á
netfangið olisnorra@vestmannaeyjar.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin
Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2021.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Verkefnastjóri Borgarlínu
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi
ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Áhugasamir eru beðnir
að sækja um starfið á
www.vegagerdin.is
Starf verkefnastjóra Borgarlínu er laust til
umsóknar. Um 100% starf er að ræða.
Verkefnastjóri Borgarlínu ber ábyrgð á
verkefnastofu Borgarlínu hjá Vegagerðinni
í Garðabæ og þeim verkum sem eru unnin
þar. Verkefnastofa Borgarlínu heyrir undir
höfuðborgarsvæði Vegagerðarinnar.
Verkefnastjórinn ber ábyrgð á undirbúningi
og áætlanagerð vegna framkvæmda
tengdri Borgarlínu, samþættingu
verkefnisáætlana, yfirsýn og stýringu
mannafla. Einnig upplýsingagjöf til
stjórnenda og hagsmunaaðila.
Verkefni Borgarlínu falla undir
Samgöngusáttmála ríkis og sveitarfélaga
og eru samstarfsverkefni Vegagerðarinnar,
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Betri
samgangna.
Umsókn skal fylgja ferilskrá þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur um færni viðkomandi til að
gegna starfinu.
Umsóknarfrestur er til og með
4. október 2021.
Menntunar- og hæfniskröfur
→ Háskólapróf sem nýtist í starfi,
framhaldsmenntun æskileg
→ Víðtæk og árangursrík reynsla af því að
stýra umfangsmiklum verkefnum með
ólíkum hagaðilum.
→ Farsæl reynsla af undirbúningi
framkvæmda og áætlanagerð
stórra verkefna
→ Framúrskarandi leiðtogi með góða
samskiptahæfileika og reynslu
í að stýra teymum.
→ Sjálfstæð vinnubrögð, lausnamiðuð nálgun
og færni til að sjá heildarmyndina.
→ Þekking á opinberri stjórnsýslu.
→ Reynsla í að koma fram og kynna
flókin verkefni
→ Góð íslensku- og enskukunnátta
í ræðu og riti.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Bryndís Friðriksdóttir svæðisstjóri
höfuðborgarsvæðisins í síma 522 1000.
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex
mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Öllum umsóknum um starfið verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
intellecta.is
RÁÐNINGAR
Þátttakandi í íslensku
atvinnulífi í 50 ár
hagvangur.is
18 ATVINNUBLAÐIÐ 2. október 2021 LAUGARDAGUR