Fréttablaðið - 02.10.2021, Page 68
Það myndast einhver
samorka sem vantar
kannski upp á þegar
menn vinna hver í sínu
horni.
Daníel Ágúst
Við bjugg-
umst
eiginlega
ekkert við
þessu,
vorum
ekki að
pæla í því
að við
myndum
meika það.
Magnús
Daníel Ágúst Haraldsson og
Magnús Jónsson unnu fyrst
saman að tónlist fyrir 26
árum, þegar þeir voru saman
í GusGus. Þar kynntust þeir
heimi raftónlistar sem þeir
segja hafa veitt sér frekara
frelsi til sköpunar. Leiðir
þeirra liggja nú saman að
nýju með útgáfu nýrrar smá-
skífu, Miracle.
Daníel Ágúst Haraldsson og Magnús Jónsson voru báðir kallaðir til í tökur á stuttmyndinni Nautn árið 1995, úr
verkefninu varð til fjöllistahópur-
inn GusGus þar sem Daníel Ágúst
og Magnús kynntust raftónlist í
fyrsta sinn. Leiðir þeirra liggja nú
aftur saman í nýju tónlistarverk-
efni, Dynomatic, og gáfu þeir út lagið
Miracle í vikunni.
„Maggi hringdi í mig og sagðist
vera með lag sem hann hefði áhuga
á að ég syngi með honum og ég sagði
náttúrulega að það væri sjálfsagt
mál að kanna það og ég tengdi við
lagið,“ segir Daníel Ágúst aðspurður
um hvernig samstarf þeirra Magn-
úsar hafi komið til.
„Svo fórum við að kasta fram
hugmyndum um það hvernig þetta
ætti að vera og unnum þetta saman.
Það kom mér skemmtilega á óvart
hversu gaman það var að vinna bara
tveir saman að þessu,“ segir Magnús.
„Ég hugsaði bara: Djöfull er þetta
geggjað. Það kom einhver neisti á
milli okkar og samvinnan var ótrú-
lega skemmtileg,“ bætir hann við.
Magnús og Daníel voru vanir að
vinna saman í stærri hópi en þegar
GusGus var stofnuð taldi hópurinn
um tíu til fimmtán manns. „Þetta
var bara eins og fullskipaður hand-
boltaflokkur,“ segir Daníel og hlær.
GusGus fyrir tilviljun
„Það verður til allt önnur dýnamík
og allt annað andrúmsloft þegar
einhver einn kemur með lag og
leggur það á borðið og lagið fær ein-
hverja meðhöndlun eins og þetta
var í GusGus heldur en þegar þetta
er gert svona. Þá myndast einhver
samorka sem vantar kannski upp á
þegar menn vinna hver í sínu horni,“
segir Daníel og Magnús tekur undir.
„Ég finn oft fyrir því að því fleiri
sem koma að hugmynd, því almenn-
ari verður hún og ég hef minni áhuga
á henni því það er verið að sætta svo
mörg sjónarmið og kjarninn fer úr,“
segir hann. „Þess vegna finnst mér
gaman að vinna svona náið, það
verður til einstök nánd.“
GusGus var stofnuð sem fjöllista-
hópur árið 1995 og þróaðist þaðan
í að verða hljómsveit sem gefið
hefur út fjöldann allan af plötum
og lögum. Hljómsveitin er ein ást-
sælasta hljómsveit landsins og eru
Magnús og Daníel Ágúst sammála
um að þeir hafi lært mikið á veru
sinni í hljómsveitinni.
„Við vorum báðir fengnir til að
taka þátt í stuttmyndinni Nautn.
Arni & Kinski leikstýrðu þeirri
mynd og Siggi Kinski var skólafélagi
minn í MR og fékk mig til að taka
þátt. Ég var enginn leikari eða alla-
vega óreyndur, hafði verið í Herra-
nótt og Stúdentaleikhúsinu og eitt-
hvað svona,“ segir Daníel.
„Þeir höfðu leikstýrt myndbandi
með mér þegar ég var í hljómsveit-
inni Silfurtónum og þar kynntist ég
þeim og við urðum ágætis félagar.
Ég var fenginn til að leika í þessari
mynd á þeim forsendum,“ segir
Magnús sem var þó einnig útskrif-
aður leikari á þessum tíma.
„Það var fyrir röð tilviljana að
við lékum í myndinni, svo út frá
því fórum við að gera tónlist,“ segir
Daníel. Fyrsta útgáfa fyrstu hljóm-
plötu GusGus varð til árið 1995, ári
síðar fékk hljómsveitin samning við
breskt plötufyrirtæki.
„Fram að því höfðum við bara
gefið út sjálf,“ segir Daníel. „Já, og
við bjuggumst eiginlega ekkert við
þessu, vorum ekki að pæla í því að
við myndum meika það eftir þessa
Fundu neistann saman
Magnús Jónsson á GusGus-árunum. MYND/AÐSEND
Daníel Ágúst á tónleikum með GusGus í Hörpu. Hann
hefur verið í sveitinni frá því hún var stofnuð árið 1995.
Leikstjórarnir Arni & Kinski fengu Daníel Ágúst og Magnús til liðs við GusGus.
plötu. Ég f lutti til L.A. og bjó þar
þangað til ég fékk símtal um að við
værum komin með samning og
skildi eiginlega ekkert í þessu,“ segir
Magnús.
Þeir eru sammála um að heiður-
inn af plötusamningnum eigi Baldur
Stefánsson.
„Hann bara fór og bankaði á dyr í
London með gripinn og við vissum
ekkert fyrr en samningurinn var
kominn, ef ég man rétt. Þessi tími er
þó nokkuð þokukenndur hjá mér og
frekar langt um liðið og ég man ekki
hvernig nákvæmlega þetta bar að,“
segir Magnús.
Allt breyttist
Á þessum tíma voru Daníel Ágúst
og Magnús tæplega þrítugir og líf
þeirra tók miklum breytingum.
„Við þurftum aðeins að föndra við
plötuna vegna þess að við höfðum
stolið nokkrum tónum frá öðrum
listamönnum og þurftum að semja
um það. Við gáfum eftir höfundar-
rétt í nokkrum lögum en svo voru
nokkur sem ekki samdist um og við
þurftum að búa til nýjar útgáfur.
Warner Brothers gáfu svo plötuna
út árið 1997, svo þetta tók heilt ár,“
útskýrir Daníel.
Þegar platan kom út fór GusGus
í tónleikaferð um Bandaríkin og
Evrópu. „Svo fórum við til Mexíkó
og þetta var stórkostlegt ævintýri
og mjög skemmtilegt,“ segir Daníel
Ágúst og Magnús er sammála. „Svo
eftir aðra plötuna var komin þreyta
í suma,“ segir Magnús.
Þeir segja að upp hafi komið
listrænn og tónlistarlegur
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
Þeir Magnús Jónsson og Daníel Ágúst lentu fyrir tilviljun saman í hljómsveit fyrir 26 árum, nú leiða þeir aftur saman hesta sína í Dynomatic. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
32 Helgin 2. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ