Fréttablaðið - 02.10.2021, Side 74

Fréttablaðið - 02.10.2021, Side 74
Elskulegur bróðir okkar og faðir, Jón Björn Friðriksson málarameistari í Reykjavík, frá Ísafirði, lést á Landspítalanum 13. september sl. og hefur útförin farið fram í kyrrþey. Við þökkum starfsfólki á gjörgæsludeild og A7 yndislega umönnun og vinum hans fallega vináttu. Bjarndís, Steinþór, Helgi Mar, Nína M. Jónsdóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Árni Sigurðsson bifreiðastjóri, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk laugardaginn 18. september sl. Útför fór fram í kyrrþey að ósk Árna. Anna Guðmundsdóttir Una Árnadóttir Jóngeir Eyrbekk Sigurðsson Sigrún Árnadóttir Andri Árnason Guðmunda Árnadóttir Ólafur Ellertsson afa- og langafabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Kristín Kristjánsdóttir Kirkjuvegi 1, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn 28. september. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 8. október klukkan 12.00. Guðmundur H. Pétursson Magnús B. Sveinsson Inga María Magnúsdóttir Ingólfur Kr. Guðmundsson Diana Espinosa Ragnar Már Guðmundsson Jóna Margrét Jónsdóttir og barnabörn. Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir síðan 1996 Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Einlægar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls okkar ástkæra Hjálmars Jóhannessonar Siglufirði. Kolbrún Friðriksdóttir og fjölskylda. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Björgvin Runólfsson bóndi á Dvergasteini, Lindasíðu 2, Akureyri, lést sunnudaginn 19. september á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Útförin fer fram frá Glerárkirkju mánudaginn 4. október klukkan 13.00. Benedikt Björgvinsson Vilborg Björgvinsdóttir Davíð Stefánsson Jón Björgvinsson barnabörn og barnabarnabörn. Bjórhátíðin Af því bara stendur yfir í Borgarnesi um helgina. Skipuleggjandi segir mikla gerjun í bjórmenningu á Íslandi. arnartomas@frettabladid.is Útihátíðargestir, sem urðu munaðar- lausir eftir takmarkanir sumarsins, geta tekið gleði sína á ný því bjórhátíðin Af því bara hófst í Borgarnesi í gærkvöldi og stendur yfir um helgina. Þessi sjálf- skipaða síðasta útihátíð sumarsins er samvinnuverkefni BARA – Ölstofu lýð- veldisins, þar sem hátíðin fer fram, og netverslunarinnar Bjórlands. „Við höfum verið í sambandi um nokkurt skeið og átt ánægjulegt sam- starf,“ segir Þórgnýr Thoroddssen, annar eigandi Bjórlands. „Þeirra hug- mynd er að vera eingöngu með bjór frá litlu brugghúsunum og þeim datt í hug að halda sambærilega bjórhátíð og við vorum með á KEX í vor. Það er auðvitað fátt skemmtilegra en að halda hátíð.“ Þórgnýr segir að boðið verði upp á bjór á átta til níu krönum, sem eru fleiri kranar en hafa sést í héraðinu áður. Sér- tækari bjórar verða á flöskum og dósum fyrir ævintýragjarnari gesti. „Það verður svo ýmislegt í gangi þarna, tónlist, matur og annað,“ segir Þórgnýr. „Í dag verður svo haldið héraðsmeistaramót í hnífur- skæri-blað, svo það verður til mikils að vinna!“ Þótt hátíðin hafi ekki verið hugsuð sem íslensk útgáfa af Októberfest segir Þórgnýr að það lýsi henni ágætlega. „Í mínum vinahóp forðum daga var það alltaf þannig að síðasta útipartí ársins var haldið í október, svo mér fannst það liggja vel við höggi að halda hana á þessum tíma.“ Gorkúlur byltingarinnar Mikil endurreisn hefur átt sér stað í bjórmenningu Íslendinga á undan- förnum árum og segir Þórgnýr að ný brugghús spretti upp eins og gorkúlur. „Maður heyrir af nýju bruggverkefni mánaðarlega,“ segir hann. „Sum þeirra eru innanhúss-brugghús eins og Drengs- son á Vogum á Vatnsleysuströnd, önnur eru minni háttar brugghús eins og 6a á Akureyri, sem er að brugga í 100 lítra upplagi. Þetta eru allt brugghús sem eru að brugga stórkostlega stóra bjóra, en þau þurfa ekki að verða það stór til að ná nokkurri dreifingu.“ Eins og svo margar aðrar breytingar á Íslandi segir Þórgnýr að endurreisnina megi rekja til Bandaríkjanna. „Þetta er hluti af þessari craft-byltingu sem átti sér stað þegar Kaninn ákvað að fara að brugga meiri bjór að sínu skapi með amerískum humlum. Þá varð þessi handverksbrugghúsa-sena til,“ útskýrir hann. „Þar sem Ísland er smá afdalur í veröldinni þá fór þetta aðeins seinna af stað hjá okkur en er komið á fullt f lug núna.“ Upphafið á bruggbyltingu landans er venjulega miðað við stofnun Kalda brugghúss, en á fimmtán árum eru þau orðin á þriðja tug. „Það er full vinna að fylgjast með þessu, sem er kannski sú þjónusta sem við hjá Bjórlandi erum að bjóða upp á,“ segir Þórgnýr. „Við erum með yfirsýn og tengingar og getum skaffað þá yfirsýn sem veitingastaðir þurfa að hafa yfir úrvalið hjá sér.“ ■ Kraftmikil útihátíð BARA - Ölstofa lýðveldisins opnaði fyrr í sumar og stendur þar sem Dússabar var til húsa. MYND/AÐSEND Þórgnýr segir bjórmenningu Íslands blómstra og ný brugghús spretti upp eins og gorkúlur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Maður heyrir af nýju bruggverkefni mánaðar- lega. 38 Tímamót 2. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐTÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 2. október 2021 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.