Fréttablaðið - 02.10.2021, Síða 84

Fréttablaðið - 02.10.2021, Síða 84
Yfirlitssýning á verkum Muggs verður opnuð í dag, laugardaginn 2. október, í Listasafni Íslands. Sýningar- stjóri er Kristín G. Guðna- dóttir. Guðmundur Thorsteinsson, alltaf kallaður Muggur, fæddist árið 1891. Hann nam myndlist við Konung- lega listaháskólann 1911-1915. List- ferill hans að námi loknu spannaði einungis tæp tíu ár, en hann lést úr berklum árið 1924. Auk þess að fást við myndlist var Muggur einnig leikari og söngvari. Hann lék á sviði og söng gaman- vísur en einnig lék hann aðalhlut- verkið í kvikmyndinni Saga Borgar- ættarinnar sem frumsýnd var árið 1920. Verkin á sýningunni, sem hefur yfirskriftina Muggur, eru í einka- eign og úr safneign Listasafns Íslands, en árið 1958 fékk safnið 46 myndverk eftir Mugg að gjöf frá danska listmálaranum Elof Risebye. Allir þættir myndsköpunar „Með þessari sýningu viljum við gefa breiðari og dýpri mynd af verkum Muggs en tíðkast hefur. Það eru 30 ár síðan síðast var haldin yfirlitssýning á verkum hans og þá var hann talinn svo slakur lands- lagsmálari að landslagsmyndir hans rötuðu ekki á sýninguna. Nú gerum við öllum þáttum mynd- sköpunar hans skil,“ segir Kristín Guðnadóttir sýningarstjóri. „Þarna eru landslagsmyndir, þjóðlífsmyndir, ferðamyndir og myndskreytingar á þjóðsögum og ævintýrum, eins og Dimmalimm, og trúarleg verk. Síðast en ekki síst er á sýningunni heilmikið af útsaumsverkum og verkum sem Muggur vann í óhefðbundið efni. Á einni sýningu voru til dæmis dúkkur sem hann bjó til og það þótti ekki karlmannleg iðja að karl- menn sætu og saumuðu dúkkur. Þess vegna var Muggur talinn vera dútlari. Hann var jafnvel ekki tek- inn alvarlega sem myndlistarmað- ur, sem er kolrangt mat því hann var á undan sinni samtíð. Verkið Flyðra á þessari sýningu er dæmi um framsækið verk Muggs, en það er búið til úr moldvörpuskinni og er eins og það hafi verið gert í gær. Muggur var frásagnarmaður í eðli sínu og vildi segja sögu í verk- um sínum en ekki mála olíulands- lagsmyndir eins og kollegar hans gerðu. Hann var skammaður fyrir að vera ekki eins og hinir. Á þann hátt naut hann ekki sannmælis. Hann var ekki metinn að verð- leikum sem landslagsmálari fyrr en seint og um síðir.“ Fékkst við margt Kristín leggur ríka áherslu á hversu fjölhæfur Muggur var. „Ég sé hann sem fyrsta íslenska fjöllistamann- inn. Hann fékkst við svo gríðarlega margt. Hann var myndlistarmaður en hann var líka skemmtikraftur, söng og lék á sviði. Eitt sinn dans- aði hann dúkkudans, hann gerði margt áhugavert fyrir krakka og var á sinn hátt frumkvöðull í barna- menningu.“ Muggur lést fyrir aldur fram. Hvernig hefði list hans mögulega þróast hefði honum enst líf? „Undir það síðasta var hann kominn út í trúarlega myndlist og henni eru gerð góð skil á sýningunni. Ég sé Fyrsti íslenski fjöllistamaðurinn Helgi Már Kristinsson sýningarhönn- uður og Kristín G. Guðnadóttir sýningarstjóri. RÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR Tvær rauðklæddar konur 1917. Hin ungu lista- systkin, 1915. Kolaburður í Reykjavík, 1919. Með þessari sýningu viljum við gefa breið- ari og dýpri mynd af verkum Muggs en tíðkast hefur. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is hann fyrir mér á þeim vettvangi,“ segir Kristín og bætir við: „Að sumu leyti átti hann persónulega erfitt. Hann ólst upp við gott atlæti, faðir hans var einn af ríkustu mönnum landsins og kostaði hann til náms. Svo fór faðir hans á hausinn og þá varð lífið Muggi mjög erfitt því hann var ekki vanur að þurfa að sjá sér farborða. Skemmtanalífið tók toll af honum og hann glímdi við áfengisvanda. Þannig að það er erfitt að segja til um hver framtíð hans hefði orðið.“ Þess má geta að glæsileg og ríku- lega myndskreytt bók með texta Kristínar um líf og list Muggs kemur út í tengslum við sýninguna. n 48 Menning 2. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 2. október 2021 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.