Fréttablaðið - 02.10.2021, Page 90

Fréttablaðið - 02.10.2021, Page 90
Það er mikið hjarta í þessu og líka gaman að hafa leikið efni í Stund- inni okkar. Nilli Það sem gerir barna- efni gott að mínu mati er að í því sé húmor og hjarta. Ásthildur stod2.is Tryggðu þér áskrift Í KVÖLD toti@frettabladid.is Stundin okkar hefur göngu sína að loknu hefðbundnu sumarhléi sunnudaginn 10. október og þaðan telst helst til tíðinda að leikið efni eftir unga handritshöfunda verður áberandi þegar álfarnir Bjalla og Bolli mæta til leiks með það fyrir augum að gera þáttinn þann skemmtilegasta sem sögur fara af í mannheimum. Þeir Mikael Emil Kaaber, Arnór Björnsson og Óli Gunnar Gunnars- son skrifa leikna hluta Stundarinnar þar sem Ásthildur Úa Sigurðardóttir og Níels Thibaud Girerd, ekki síður þekktur sem Nilli, eru í aðalhlut- verkum í leikstjórn Stundargoð- sagnarinnar Gunnars Helgasonar. „Við erum að vinna saman að annars konar barnaefni fyrir RÚV en í kjölfar þeirrar vinnu kviknaði sú hugmynd hjá RÚV að fá okkur þrjá, svona unga og efnilega hand- ritshöfunda, til að skrifa Stundina okkar og fá Gunna Helga til að leik- stýra,“ segir Mikael Emil sem margir þekkja úr Krakkafréttum auk þess sem hann hefur komið að gerð Krakkaskaupsins síðustu tvö ár. Heill heimur á skrifborði Þremenningarnir halda sig bak við tjöldin, eins og handritshöfunda er von og vísa, en tefla fram tveimur ólíkum álfum. „Þessir álfar heita Bolli og Bjalla. Bolli er húsálfur og býr á skrifborði hjá hinum ellefu ára gamla Bjarma. Hann vaknar einn góðan veðurdag við að það er komið pennaveski á skrifborðið og þar með skógarálfur- inn Bjalla f lutt inn til hans á skrif- borðið,“ heldur Mikael áfram og bætir við að þarna séu þeir félagar að leika sér með andstæðupar. „Bolli stendur fyrir allt sem maður gerir heima hjá sér, eins og að slaka á, fá sér te og lesa bækur. Hann er samt smá prakkari og finnst gaman að nappa og stela hlutum sem eru í herberginu. Bjalla er aftur á móti mjög skipu- lögð og elskar að læra. Þannig að þau læra mikið hvort af öðru.“ Mikael bendir á að höfundarnir vonist til þess að krakkarnir geti um leið lært sitthvað af álfunum. „Með því að láta álfana gera mistök og læra hvorn af öðrum. Vegna þess að veik- leikar Bolla eru styrkleikar Bjöllu og veikleikar Bjöllu eru styrkleikar Bolla.“ Stundin rokkar Bolli og Bjalla ákveða að búa til skemmtilegasta sjónvar psþátt veraldar: Stundina okkar. Þar slá krakkar í gegn, hvort sem það er í spurningakeppninni Frímó, við bakstur eða með ofursvala bílskúrs- bandinu Stundin rokkar. Hlutverk álfanna eru í höndum nýútskrifuðu leikaranna Ásthildar Úu og Nilla. „Þetta er búið að vera æðislegt og rosalega skemmtilegt ferli,“ sagði Ásthildur þegar Frétta- blaðið tafði hana frá æfingu á Emil í Kattholti í Borgarleikhúsinu. „Það er líka svo stórt að fá að taka þátt í að gera íslenskt, leikið barnaefni. Eiginlega svolítill draumur.“ Kynslóðin hans Kela Þær eru orðnar allnokkrar kynslóð- irnar sem eiga ljúfar bernskuminn- ingar tengdar Stundinni okkar og Ásthildur tilheyrir svo sannarlega einni af þeim. „Það er einmitt þetta leikna efni sem situr í manni. Það eru persónurnar sem maður man ennþá eftir,“ segir Ásthildur sem er af kynslóðinni sem má kenna við Gunna og Felix annars vegar og Ástu og köttinn Kela hins vegar. „Það er svona mín kynslóð og ég horfi alveg rosalega mikið á þetta. Og Bólu. Hún var leikið efni í Stundinni okkar og er svolítið mikið uppáhaldið mitt. Ég gæti bara enn þá horft á þetta í dag. Í alvörunni. Og mér finnst alger heiður að fá að taka þátt í að gera nýtt þannig efni. Það er búið að vera rosa gaman að fá að skapa þetta og taka þátt í að gera það að veruleika.“ Framtíðarklassík Ásthildur útilokar alls ekki, og vonar í raun, að Bjalla og Bolli muni lifa með þessarar Stundar-kynslóð eins og Bóla hefur fylgt henni. „Ég vona það innilega af því að mér fór sjálfri að þykja rosalega vænt um þessa álfa og mína Bjöllu í ferlinu. Vegna þess að handritið er mjög gott. Ég er mjög hrifin af því. Það er ótrúlega fyndið og það er risastórt hjarta í því,“ segir Ást- hildur. „Það sem gerir barnaefni gott að mínu mati er að í því sé húmor og hjarta og ég vona bara að það skili sér heim í stofu. Vegna þess að þessar persónur voru farnar að skipta mann mjög miklu máli og þetta eru bara alvöru tilfinningar og alvöru mál sem þær eru að ganga í gegnum,“ segir Ásthildur. Nilli búálfur „Ég er búálfur,“ segir Nilli. „Búálfar eru náttúrlega bara einstakt fyrir- brigði. Þeir eru heimakærir og stundum frekir en samt býr eitt- hvað gott í þeim og það var gaman að leika þetta. Mjög skemmtilegt,“ segir Nilli og er sammála Ásthildi í grundvallaratriðum. „Það er mikið hjarta í þessu og líka gaman að hafa leikið efni í Stundinni okkar og taka þátt í því,“ segir Nilli sem er af sömu kynslóð og Ásthildur. „Ásta og Keli voru þegar ég var. Það er mín kynslóð. Það var alveg yndislegt sjónvarp, huggulegt og fallegt.“ Þá áréttar mennskur talsmaður Bolla að það megi aldrei gera grín að álfum. „Þetta eru skrítnar verur sem við skiljum ekki og þess vegna er nauðsynlegt að bera virðingu fyrir þeim. Þeir hafa einhvern veginn verndað náttúruna okkar í öll þessi ár og þegar maður kynnir þá fyrir börnum skulum gæta þess sérstak- lega að fara ekki með rangt mál.“ n Álfarnir Bjalla og Bolli taka Stundina okkar yfir Stundin okkar snýr aftur eftir sumarfrí með breyttu sniði þar sem álfarnir Bjalla og Bolli verða frekir til fjörsins og ætla að gera þennan elsta sjón- varpsþátt landsins að þeim skemmtilegasta í heimi með aðstoð ungra og efnilegra leikara og handritshöfunda. Bjalla og Bolli ætla sér stóra hluti og gera Stundina okkar að skemmtilegasta sjónvarpsþætti heims. MYND/RÚV Unga fólkið með Gunnari Helgasyni. „Hann er kóngurinn náttúrlega og því- líkur draumur að hann sé að leikstýra þessu,“ segir Mikael. MYND/RÚV 54 Lífið 2. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 2. október 2021 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.