Morgunblaðið - 24.04.2021, Síða 24

Morgunblaðið - 24.04.2021, Síða 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021 Um fátt hefur verið meira fjallað síðustu mánuði en bólusetn- ingar og gagnsemi þeirra. Með þeim er reynt að koma í veg fyrir að fólk fái sjúk- dóma sem geta leitt til alvarlegra veikinda eða jafnvel dauða. Upphaf bólusetninga má rekja til Edwards Jenner, sem hóf að bólusetja gegn kúabólu 1796. Síðan hefur vegur bólusetninga og bólu- efna vaxið og gagnsemin að sama skapi. Því fylgir gríðarlegur ávinn- ingur að koma í veg fyrir sjúkdóma sem hafa reynzt mannkyninu skeinu- hættir frá ómunatíð. Það er til mikils að vinna að hljóta bólusetningu og halda þannig frá sér hættulegum sjúkdómum eins og bólusótt. Alþjóðleg bólusetningar- vika stendur yfir 24.-30. apríl í ár. Vart verður lögð á það of mikil áherzla að bólusetning er nauðsyn- leg, afar mikilvæg og bjargar manns- lífum. Við eigum öll að þiggja bólu- setningar sem bjóðast. Það er við hæfi í dag, 24. apríl, að vekja athygli á því að einn er sá sjúk- dómur sem herjað hefur á mannkyn lengi. Þar er um að ræða lömunar- veiki, sem rekja má til Egyptalands allt til 1342 fyrir Krists burð. Múmí- ur frá þessum tíma báru með sér að útlimir höfðu aflagast og með vissu mátti rekja það til löm- unarveiki eða polio. Sá merki austurríski vísindamaður Karl Landsteiner leiddi hóp sem fann veiruna er veldur lömunarveiki ár- ið 1908. Þar með skap- aðist grundvöllur til þess að kanna með hverjum hætti takast mætti að sigra veiruna. Á 5. og 6. áratug síð- ustu aldar braust ár- lega út faraldur lömunarveiki í Evr- ópu og Norður-Ameríku, hvert sumarið á fætur öðru. Á hátindi far- aldursins í Bandaríkjunum 1952 greindust um 21.000 tilfelli eða 13,6 tilvik af hverjum 100.000 íbúum. Ís- lendingar fóru ekki varhluta af löm- unarveiki á síðustu öld. Til þess að gera langa sögu stutta tókst vísinda- mönnum að greina mótefni í blóði sem leiddi til þess að Jonas Salk upp- götvaði bóluefni sem varð til þess að í lok 6. áratugarins voru 450 milljónir barna bólusettar í Bandaríkjunum og tíðnin féll úr 18 í 2 tilvik af hverj- um 100.000. Albert Sabin fann aðferð til þess að bóluefni væri unnt að gefa um munn. En lömunarveiki var og er alþjóð- legt vandamál og viðfangsefni. Nái vírusinn sér á strik má búast við far- aldri, að minnsta kosti staðbundnum. Um langt skeið hefur staðið her- ferð gegn lömunarveiki sem Rótarý- hreyfingin um allan heim hefur stað- ið fyrir ásamt CDC í Bandaríkjunum og WHO. Sú herferð hófst 1979 þeg- ar ákveðið var að bólusetja 6 millj- ónir barna á Filippseyjum og 1985 setti hreyfingin af stað 120 milljóna dollara (15,1 milljarðs króna) átak. Árið 1988 tóku Rótarýhreyfingin og Alþjóðaheilbrigðisstofnun höndum saman um Global Polio Eradication Initiative, en þá greindust 350.000 tilvik í heiminum. Nú, árið 2021, eru þau örfá, en á meðan enn finnast til- felli er baráttan ekki unnin. Þáttur Rotary International og Rótarýfélaga Á ensku er talað um átakið „The Global Polio Eradication Iniative (GPEI)“. Rótarý er einn þátttakenda ásamt Unicef og Sjóði Bills Gates í samstarfi við Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunina og Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna. Sá árangur hefur náðst að nú eru aðeins tvö lönd sem stríða við vírusinn (Wild Polio virus), Afganistan og Pakistan. Þegar hafa verið bólusettir þrír milljarðar barna frá upphafi átaksins. En betur má ef duga skal. Verkefni Rotary International gengur undir heitinu Polio Plus En verkefninu er hvergi nærri lok- ið og Rótarýhreyfingin í heiminum hefur lofað að leggja til 50 milljónir dollara, sem Bill og Melinda Gates tvöfalda, þannig að úr verða 150 milljónir eða 19 milljarðar króna. Upphaflega átti átakið End Polio Now að ljúka á hundrað ára afmæli Rótarýhreyfingarinnar 2005. Til þess að tryggja polio eða lömunar- veiki verði útrýmt þarf að bólusetja 400 milljónir barna í 40 löndum á ári næstu 10 árin. Það er hægt ef Rótarýfélagar á Íslandi leggja einnig fram sinn skerf. Rótarýfélagar hafa unnið mikla sjálfboðavinnu við bólusetningar og það hefur tryggt að fjármunir sem safnað hefur verið til þess að útrýma lömunarveiki hafa nýtzt nánast að fullu og lítill sem enginn kostnaður hefur fylgt umsýslu. Sá sem fer og bólusetur börn kostar sína ferð sjálf- ur, auk þess að leggja fram vinnu. Að þessu sögðu er rétt að rifja upp mikilvægi bólusetninga eins og við höfum öll verið rækilega minnt á í Covid-19-faraldrinum. Aldrei er of oft á það minnt að bólusetning bjarg- ar bæði lífi og heilsu. Rótarý væntir þess að við náum markinu enda kost- ar bóluefni gegn polio aðeins 60 sent eða 76 krónur og margar hendur, og vasar, vinna létt verk. Þáttur Rotary International og Rótarýfélaga um víða veröld hefur skipt gríðarlega miklu varðandi út- rýmingu á lömunarveiki og því góða starfi höldum við áfram með sam- stilltu átaki. Skorað er á alla Rótarý- félaga að leggja málinu myndarlega lið og styðja Polio Plus. Við bólusetjum til lífs og betra lífs. Rótarý, Polio og bólusetningar Eftir Ólaf Helga Kjartansson » Bólusetningar eru mikilvægar. Rótarý- hreyfingin hefur frá árinu 1979 unnið að því að bólusetja börn gegn lömunarveiki undir merki Polio Plus. Ólafur Helgi Kjartansson Höfundur er Rótarýfélagi og formað- ur Polio Plus-nefndar Íslands. olafur.helgi.kjartansson@outlook.com Uppáhalds L’Occitane vörurnar okkar Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is L’Occitane stelpurnar mæla með sínum uppáhalds vörum. Kynntu þér vörurnar í versluninni okkar í Kringlunni eða á loccitane.is Klukkan var rúmlega fimm. Enginn tími var fyrir spjall ef hún átti að ná strætó. Hún teygði sig upp, knúsaði hann, kyssti á kinn og sagði: „Ég elska þig afi.“ Á móti kallaði hann á eftir henni: „Bless elskan, farðu varlega.“ Gunn- ar hristi hausinn brosandi og hugsaði hvílíkur gimsteinn þessi hnáta væri. Nöfnurnar höfðu ver- ið að bera saman bækur sínar að vanda. Rútínan er að ömmustelpan spilar eitthvað sem fyrir hana var lagt í tón- listarskólanum og svo spilar amma það á ví- óluna. Svo saman þegar þær eru hvor um sig búnar að sníða agnúana af. Óborganleg samvinna og áhugamál Jónu ömmu númer eitt. Um þessar mundir er áhugamál númer tvö ellilaunin og tekjuskerð- ingin. Gunnar sat við eldhúsborðið með mjólkurglasið sitt og eina kleinu, eins og hann er vanur að fá sér þeg- ar hann kemur heim úr vinnunni. Mogginn fyrir framan hann og um leið og hann drekkur og nartar í kleinuna reynir hann að finna breyt- ingarnar fimm á myndunum tveimur sem eru á þrautasíðunni. Oftast finn- ur hann bara þrjár, en þegar hann er búinn með kleinuna og úr mjólk- urglasinu hættir hann að leita. Jóna truflaði einbeitinguna þegar hún fór að tala um að hann Bjarni vin- ur hans gæti auðvitað ekki breytt ellilífeyr- istekjuskerðingunni með pennastriki því prósentuskerðingin væri lögfest. Hann gæti hins vegar leik- andi breytt með einu pennastriki og leiðrétt þá fásinnu hjá Trygg- ingastofnun að mis- muna gamlingjunum sem fá eftirlaun frá fyrirtækjum eða at- vinnuleysisbætur og þeim sem fá eftirlaun frá lífeyrissjóðum. „Það er eins og hann Bubbi sagði: Engin lagaheimild fyrir því.“ Gunnar hugsaði með sér að stóra málið væri í raun lögsókn Gráa hers- ins á hendur Tryggingastofnun. Þetta væri rétt hjá Jónu um þennan lögfesta fáránleika. Þeir sem greiddu mest bæði í lífeyrissjóði og legðu mest til við greiðslu trygg- ingagjalds með launavinnu sinni væru sérstaklega hýrudregnir. Tómas Láruson, hliðarsjálf ellilaunaþega. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. … áhugamál númer tvö; ellilaunin og tekjuskerðingin Tómas Láruson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.