Morgunblaðið - 24.04.2021, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 24.04.2021, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021 Stjórnarráð Íslands Fjármála- og efnahagsráðuneytið Leiðtogi kjara- og mannauðssýslu ríkisins Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitar að öflugum stjórnanda í embætti skrifstofustjóra kjara- og mannauðssýslu ríkisins til að þróa starfsumhverfi ríkisins til móts við nýja tíma. Viðkomandi þarf að hafa framtíðarsýn á þróun ríkisins sem vinnuveitanda og frumkvæði, metnað og kraft til að hrinda verkefnum í framkvæmd. Kjara- og mannauðssýsla ríkisins vinnur að stefnumörkun ríkisins á sviði mannauðsmála og styður við starf samninganefndar ríkisins við gerð kjarasamninga. Kjara- og mannauðssýslan sinnir einnig stefnumarkandi ráðgjöf til ráðuneyta og stofnana á sviði mannauðs- og kjaramála og hefur eftirfylgni með framkvæmd kjarasamninga. Skrifstofan fer með málefni stjórnenda og forstöðumanna og sér um innleiðingu stjórnendastefnu ríkisins. Hún annast samstarf við samtök launafólks og launagreiðanda um launa- og kjaramál sem og umbætur á vinnumarkaði. Hlutverk skrifstofustjóra er að leiða og bera ábyrgð á rekstri og faglegu starfi skrifstofunnar. Í því felst stjórnun mannauðs og verkefna, stefnumótun, markmiðasetning og mat á árangri. Skrifstofustjóri er hluti af stjórnendateymi fjármála- og efnahagsráðuneytisins og heyrir undir ráðuneytisstjóra. Við leitum að stjórnanda sem býr yfir: » Háskólamenntun sem nýtist í starfi, meistarapróf æskilegt. » Þekkingu og árangursríkri reynslu af stjórnun og stefnumótun. » Leiðtogahæfileikum og framúrskarandi samskiptafærni. » Jákvæðri reynslu af breytingarstjórnun. » Skilningi á opinberri stjórnsýslu eða reynslu af störfum innan stórra skipulagseininga. » Færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku. Þekking og reynsla á sviði kjara- og mannauðsmála er æskileg. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf með rökstuðningi um færni viðkomandi til að gegna embættinu. Kjara- og mannauðssýsla ríkisins (KMR) er sérstök ráðuneytisstofnun, sbr. 17. gr. Stjórnarráðslaga og er hluti af fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Um embættið gilda lög nr. 115/2011 um Stjórnarráð Íslands og lög nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Fjármála- og efnahagsráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn. Um launakjör fer eftir kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs. Nánari upplýsingar veita Ragnheiður Valdimarsdóttir mannauðsstjóri og Guðrún Ögmundsdóttir skrifstofustjóri. Sótt er um starfið á starfatorg.is Umsóknarfrestur er til og með 10. maí nk. ****************************************************************************** Fjármála- og efnahagsráðuneytið samanstendur af sjö skrifstofum auk þess sem kjara- og mannauðssýsla ríkisins og Stafrænt Ísland eru hluti af ráðuneytinu. Um 100 sérfræðingar skipa starfslið ráðuneytisins. Meginhlutverk fjármála- og efnahagsráðuneytis felst í yfirstjórn opinberra fjármála og efnahagsmála. Ráðuneytið fer með málefni fjármálamarkaðarins, ber ábyrgð á bættum stjórnunarháttum og áætlanagerð, hefur með höndum virka stjórn mannauðsmála ríkisins og er leiðandi í umbótum og nýsköpun í rekstri ríkisins. Upplýsingar um starfsemi ráðuneytisins er að finna á www.stjornarradid.is Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi hagvangur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.