Morgunblaðið - 24.04.2021, Síða 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021
Femarelle fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
Recharge
Endurheimtu jafnvægið þitt á
náttúrulegan hátt með Femarelle
Femarelle er náttúruleg lausn fyrir konur við
einkennum breytingaskeiðs
Skapið varð jafnara og hitakó
„Ég er svo ánægðmeð Femarelle a
vinkonur og ég veit að nokkrar eru
hjálpaðmér alveg ótrúlega mikið o
Valgerður Kummer Erlingsdóttir.
g bjarga
Innihald í Femarelle Unstoppable:
• DT56a (efnasamband unnið úr sojabaunum)
• B2-vítamín
• Bíótín (B7-vítamín)
• D3-vítamín
• Kalk
Börn Guðmundar og Herdísar eru:
1) Helga Oddrún, f. 9.2. 1963, víólu-
leikari í Óperuhljómsveitinni í París.
Gift frönskum manni, Pierre-Luc
Denuit. Þau eiga tvo syni og eina
dóttur; 2) Bjargey, f. 19.3. 1964, arki-
tekt, gift Jóni Trausta Bjarnasyni
rafvirkja. Þau eiga þrjár dætur og
eitt barnabarn; 3) Gunnlaugur, f.
20.5. 1971, bassaleikari, kvæntur
pólskri konu, sem heitir Natasha
Kurek. Þau eru búsett í Haag í Hol-
landi og eiga tvo syni.
Systkini Guðmundar: Ásdís, 15.11.
1926, d. 9.4. 2019, húsfreyja í Kefla-
vík; Kristín, f. 11.4. 1929, d. 19.9.
2007, húsfreyja í Keflavík; Sigríður,
f. 14.6. 1930, húsfreyja í Keflavík;
Auður, f. 1.6. 1932, húsfreyja í
Hveragerði og Ölfusi; Rögnvaldur, f.
7.8. 1933, d. 30.11. 2018, bóndi í
Hrauntúni í Kolbeinsstaðahr.; Svan-
hildur, f. 22.11. 1934, húsfreyja á
Hraunsnefi og í Mosfellssveit;
Magnús, f. 26.3. 1938; bóndi á Álftá í
Hraunhr.; Steinar, f. 30.8. 1939,
bóndi í Tröð; Guðbrandur, f. 28.4.
1947, bóndi á Staðar-Hrauni í
Hraunhr.; Þorkell, f. 23.1. 1952,
bóndi á Mel í Hraunhr, og Ólöf Anna,
f. 30.5. 1956, ferðabóndi á Stóra-
Kálfalæk í Hraunhr.
Foreldrar Guðmundur voru hjónin
Bjargey Guðmundsdóttir, f. 14.11.
1910, d. 29.8. 1970, húsfreyja, og Guð-
brandur Magnússon, f. 4.11. 1894, d.
24.10. 1973, bóndi, meðhjálpari, sat í
hreppsnefnd og var deildarstjóri fyr-
ir Kaupfélag Borgfirðinga. Þau
bjuggu í Tröð og á Álftá. Afkom-
endur Bjargeyjar og Guðbrands
munu vera komnir yfir 300 í dag.
Guðmundur
Guðbrandsson
Magnús Guðbrandsson
bóndi í Mýrdal
Jófríður Guðmundsdóttir
húsfreyja í Mýrdal í
Kolbeinstaðahreppi
Magnús Magnússon
bóndi á Hallkelsstaðahlíð og
hreppsnefndarmaður
Sigríður Herdís Hallsdóttir
húsfreyja á Hallkelsstaðahlíð
í Hnappadal
Guðbrandur Magnússon
bóndi í Tröð og Álftá og
meðhjálpari í Kolbeinsstaðakirkju
Hallur Björnsson
bóndi í Syðstu-Görðum og víðar
Guðrún Gunnlaugsdóttir
húsfreyja í Syðstu-Görðum og víðar í Dölum,
Hnapp. og V-Hún.
Jóhannes Einarsson
bóndi á Dunki
Anna Guðmundsdóttir
húsfreyja á Dunki í Hörðudal
Guðmundur Jóhannesson
bóndi í Syðstu-Görðum og
sveitarpóstur í Kolbeinsstaðahreppi
Kristín Þórðardóttir
húsfreyja í Syðstu-Görðum í Kolbeinsstaðahr., Hnapp.
Þórður Rögnvaldsson
bóndi í Neðri-Hundadal
Sigríður Finnsdóttir
bústýra í Neðri-Hundadal í Dölum
Úr frændgarði Guðmundar Guðbrandssonar
Bjargey Guðmundsdóttir
húsfreyja í Tröð og Álftá í
Hraunhreppi, Mýr.
„OG HVAÐA GÁFNALJÓS FANN UPP Á
ÞVÍ AÐ ÞRÓA ÓDÝRT LYF SEM LÆKNAR
NÆSTUM ALLT MEÐ EINUM SKAMMTI?“
„ÞESSI VILL FÁ LÁNAÐAN LANGA STIGANN
ÞINN.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... alltaf í farteskinu.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HVÍ SKYLDU ÞEIR KALLA ÞETTA
TVÖFALDAN ESPRESSO?
SÚP
ÞÚ ERT FRÁSKILINN!
HVÍ ERTU ENN MEÐ
GIFTINGARHRINGINN?
SVO ÞÚ ERT ENN
ÁSTFANGINN AF
HENNI?
MÍN FYRRVERANDI ER
KÖKUGERÐARMEISTARI …
ÉG ER BARA ENN MEÐ FEITA
PUTTA!
LYFJUN EHF.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Skrautbúið skip fyrir landi.
Skýjafloti á randi.
Merki við sjáum í sandi.
Svo er það fas þitt og andi.
Ein lausn fyrir sauðburð barst
frá Hörpu á Hjarðarfelli:
Flýtur far á sjó.
Far á skýjakló.
Fótafar í sandi.
Far er eðlisandi.
Sigrún á Sjónarhóli svarar: „Hér
kemur mín ráðning á gátunni þessa
vikuna. Skemmtileg íþrótt þetta,
sannkölluð glíma!“
Farskip sigla sænum á,
skýin fara um loftin blá.
Lófafar ég á leiru sá,
lundarfar glaðlegt þakka má.
Helgi Þorláksson leysir gátuna
þannig:
Skip er far, um höfin fer,
fagurt lítum skýjafar,
merki far í fjöru er,
í fari hann af öðrum bar.
„Þá er það lausnin,“ segir Helgi
R. Einarsson:
Er farið skaflinn skar
skýjafar af bar.
Fas er lundarfar.
Skóförin allsstaðar.
Guðrún B. svarar:
Sé ég farið sigla í var.
Sést á skýjafari,
að óveðurs brátt finnum far.
Flestra dagfar hjari!
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Far úti’ á sjónum flýtur.
Far skýja um himin þýtur.
Far í sandi er svarið.
Síðan þitt eðlisfarið.
Síðan er limra:
Er álengdar sáu menn Ara
þeir ósjálfrátt fóru að stara,
hann útskeifur var,
og þeir vissu ekki par
hvort hann væri að koma eða fara.
Og ný gáta eftir Guðmund:
Úti fyrir dropar detta,
drýpur regn á grund og kletta,
bráðum fara blóm að spretta,
býð ég upp á gátu létta:
Kargur er hann klárinn minn.
Kjarngóður er maturinn.
Á þessum reit hann beinin bar.
Biskupssetur forðum var.
Björn Gottskálksson kvað:
Manna þó ég missi sýn
miðjan fram á daginn
hundurinn kemur helst til mín
honum er tryggðin lagin.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Annars ræðir margur um far