Morgunblaðið - 24.04.2021, Qupperneq 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021
Getur HSÍ ekki gert fimm ára
samning við Önnu Úrsúlu Guð-
mundsdóttur um að leika áfram
með íslenska landsliðinu í hand-
knattleik?
Og fengið hana til að halda sér
í æfingu með Val eða þá einhverju
öðru liði á meðan?
Það var magnað að fylgjast
með Önnu í leiknum við Slóveníu
á miðvikudagskvöldið og hún átti
drjúgan þátt í því að sá leikur end-
aði með jafntefli en ekki með tíu
marka tapi eins og fyrri viðureign
liðanna.
Ég held að hún hafi verið búin
að fá tiltal frá dómurunum eftir
um það bil tuttugu sekúndna leik
og það segir sitt um hugarfarið og
kraftinn sem hún kom með inn í
liðið.
Slóvenska liðið, með fullt af
leikmönnum sem spila í Meist-
aradeild Evrópu, rakst hreinlega á
vegg og skoraði tvö mörk á fyrsta
korterinu, þar sem Anna var í lyk-
ilhlutverki í miðri vörninni, með
hina stórgóðu Elínu Jónu í mark-
inu fyrir aftan sig. Auk þess var
Anna í stóru hlutverki í sókn-
arleiknum, skoraði nokkur mörk
af línunni og krækti í vítaköst.
Það er náttúrlega galið að
ná í leikmann sem er hættur í
handbolta, þriggja barna móður
sem spilaði í febrúar og mars
fyrstu tvo handboltaleiki sína í tvö
ár og var síðast í landsliðinu fyrir
sex árum, og stilla henni upp í
þessum leik. En það átti heldur
betur rétt á sér.
Karakterar eins og Anna eru
dýrmætir hverju íþróttaliði en ein-
hverra hluta vegna hefur slíkum
leikmönnum farið fækkandi á
seinni árum. Þær voru fleiri svona
í landsliðinu sem fóru með henni
á stórmótin á árunum 2010 til
2012.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
daginn og líka fyrir fyrri leikinn.
Ég held að það sé bara svolítið
lýsandi fyrir þessa viðureign að alla
langaði svo mikið að vinna og það
var svo mikið stress. Tilfinning-
arnar sveifluðust upp og niður og á
alla kanta.“
Leikurinn á miðvikudag fór enda
í oddahrinu og endaði með 3:2-sigri
Hylte/Halmstad. „Já ég verð bara
stressuð að hugsa um það, Guð
minn góður! Þegar við töpuðum
fjórðu hrinu hugsaði ég með mér:
„Guð minn góður, við erum að fara
að spila eina í viðbót, ókei!“ sagði
Jóna Guðlaug sem er 32 ára Norð-
firðingur og varð á sínum tíma Ís-
landsmeistari með Þrótti úr Nes-
kaupstað, árið 2008.
Hún fór þó fyrst í atvinnu-
mennsku sextán ára gömul hjá
Racing Club de Cannes í Frakk-
landi en lék síðan með Tromsö og
Uis Volley í Noregi, Rote Raben í
Þýskalandi og Kanti Schaffhausen í
Sviss en í Svíþjóð lék hún fyrst í
fjögur ár með Örebro. Þá lék hún á
ný með Þrótti tímabilið 2013-14.
Hefðu viljað fagna meira
Spurð hvernig tilfinning það væri
að verða Svíþjóðarmeistari á tímum
kórónuveirufaraldursins þar sem
áhorfendur eru til að mynda ekki
leyfðir sagði hún: „Það er auðvitað
öðruvísi. Við gátum ekki alveg
fagnað eins og við hefðum viljað
gera.
Svo er auðvitað erfitt að það hafi
engir áhorfendur fengið að vera á
leikjunum. Ég veit ekki hvort
gleðin er nákvæmlega jafn mikil og
hún gæti verið en það er engu að
síður mikil gleði.“
Í haust voru áhorfendur leyfðir á
leiki til að byrja með en eftir jól
hafa engir áhorfendur verið leyfðir.
Jóna Guðlaug sagði það vitanlega
hafa verið allt öðruvísi að spila án
áhorfenda og hún hefði þurft að
venjast því.
„Mér fannst það mjög erfitt í
byrjun en svo einhvern veginn
venst það eins og allt annað. Svo
fann ég svo mikið fyrir því að fólk
væri að horfa á leikina samt, þó svo
það væri enginn á þeim. Sér-
staklega eftir leiki, maður heyrði í
svo mörgum eftir leiki sem voru að
horfa á og fylgjast með.“
Það hafi gefið liðinu byr undir
báða vængi. „Í byrjun veit maður
náttúrlega ekkert hvernig þetta
verður en svo eftir nokkra mánuði í
þessu áttar maður sig á því að það
eru allir að fylgjast með þótt þeir
séu ekki á staðnum og það gaf okk-
ur gífurlega mikið,“ sagði Jóna
Guðlaug, þrefaldur meistari í blaki í
Svíþjóð, að lokum í samtali við
Morgunblaðið.
Ekki var nóg með að Jóna yrði
sænskur meistari heldur varð unn-
usti hennar, Marcus Nilsson,
sænskur meistari í karlaflokki með
Hylte/Halmstad sólarhring síðar.
Hylte/Halmstad varð þar með
fyrsta félagið til að verða sænskur
meistari í bæði kvenna- og karla-
flokki í blaki í 33 ár.
Svíþjóðargullið var sjö
ár í vinnslu hjá Jónu
- Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir vann þrefalt með sænska liðinu Hylte/Halmstad
- Fimmtán ár í atvinnumennsku og meistaratitlar í þremur löndum
Ljósmynd/Bildbyrån
Meistari Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir lyftir bikarnum veglega eftir að hafa
orðið sænskur meistari með Hylte/Halmstad á miðvikudagskvöldið.
BLAK
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Síðastliðinn miðvikudag varð Jóna
Guðlaug Vigfúsdóttir Svíþjóðar-
meistari í blaki þegar lið hennar
Hylte/Halmstad vann Engelholm í
öðrum úrslitaleik liðanna og vann
einvígið 2:0. Þar með tryggði liðið
sér sögulega þrennu, enda var
Hylte/Halmstad þegar búið að
tryggja sér deildarmeistara- og bik-
armeistaratitlana í Svíþjóð.
Óhætt er því að segja að liðið hafi
átt frábært tímabil og sömu sögu er
að segja af Jónu Guðlaugu, sem var
í byrjun mánaðarins valin í lið árs-
ins í sænsku úrvalsdeildinni. Hún er
að vonum ánægð með árangurinn á
tímabilinu og eftir 15 ára atvinnu-
mannsferil, þar sem hún hefur með-
al annars orðið Noregsmeistari í tví-
gang, auk þess að verða Íslands-
meistari, segir hún Svíþjóðar-
meistaratitilinn líkast til standa upp
úr.
„Eins og staðan er núna er þetta
náttúrlega toppurinn á tilverunni.
Ef ég lít til baka þá veit ég ekki al-
veg, ég er búin að vera í Svíþjóð svo
svakalega lengi og alltaf verið ein-
hvern veginn: „Ég verð að ná í alla-
vega eitt gull áður en ég hætti hérna
í Svíþjóð.“ Ég ílengdist hérna, ætl-
aði ekki að vera svona lengi í Sví-
þjóð,“ sagði Jóna Guðlaug í samtali
við Morgunblaðið.
Ætlunin hafi verið að söðla fyrr
um og reyna fyrir sér áfram í at-
vinnumennsku en í öðru landi. „Það
var svona pælingin frá byrjun en
þetta er búið að vera nokkurn veg-
inn sjö ár í framkvæmd þetta helvít-
is gull og ég grét eins og lítill krakki
eftir þennan leik í gær, þvílíka
gleðin!
Þetta er stærsti titillinn í Svíþjóð,
enda sá maður það á því hvernig
leikmennirnir brugðust við. Okkur
óx bara ásmegin. Það er svo mikið
undir. Ef við hefðum tapað þessum
titli og unnið hina tvo hefði okkur
liðið eins og þeir hefðu bara núllast
út,“ sagði hún.
Yfirleitt ekki mikið stressuð
Leikurinn þegar Hylte/Halmstad
tryggði sér sigurinn gegn Engel-
holm var æsispennandi. „Ég er búin
að heyra það frá mjög mörgum að
leikurinn á miðvikudaginn sé örugg-
lega besti eða með bestu úrslita-
leikjum sem hafa farið fram í fjölda-
mörg ár, enda eru bæði liðin mjög
sterk.
Ég er orðin það gömul að ég verð
yfirleitt ekkert svakalega stressuð
fyrir leiki en ég fann mikið fyrir
fiðrildum í maganum og alls konar
tilfinningum fyrir leikinn á miðviku-
Sundkappinn Már Gunnarsson
gerði sér lítið fyrir og setti heims-
met í 200 metra baksundi á Íslands-
meistaramótinu í Laugardalslaug-
inni í gær.
Már keppir fyrir ÍRB í Reykja-
nesbæ en hann er í flokki S11
(blindir). Hann hefur vakið mikla
athygli undanfarið fyrir frábæran
árangur og í dag synti hann 200
metrana á 2:32,31 mínútu. Gamla
heimsmetið setti Bandaríkjamað-
urinn John Morgan í Barcelona á
Spáni árið 1992 eða fyrir tæpum 30
árum síðan.
Setti heimsmet í
Laugardalnum
Ljósmynd/ÍF
Heimsmet Már hefur vakið athygli
fyrir frábæran árangur.
Velska knattspyrnusambandið hef-
ur rekið Ryan Giggs, fyrrverandi
leikmann Manchester United, úr
stöðu landsliðsþjálfara eftir að
hann var ákærður fyrir líkams-
árásir gegn tveimur konum. Giggs
mun því ekki stýra liðinu á Evr-
ópumeistaramótinu í sumar, heldur
mun Rob Page vera á hliðarlínunni
en hann hefur stýrt liðinu í und-
anförnum leikjum, eða síðan lög-
reglan hóf að rannsaka málið.
Giggs tók við stöðu landsliðsþjálf-
ara hjá Wales í janúar 2018 og
stýrði liðinu í 30 leikjum.
Ryan Giggs rek-
inn eftir ákæru
AFP
Rekinn Ryan Giggs stýrir ekki liði
Wales á Evrópumótinu í sumar.
Dominos-deild karla
Grindavík – Njarðvík ........................... 91:94
Keflavík – Stjarnan ............................ 100:81
Staðan:
Keflavík 17 15 2 1593:1339 30
Þór Þ. 17 12 5 1661:1521 24
Stjarnan 17 11 6 1572:1503 22
KR 17 10 7 1528:1547 20
Valur 17 9 8 1430:1441 18
Tindastóll 17 8 9 1546:1530 16
Þór Ak. 17 8 9 1499:1586 16
Grindavík 17 8 9 1517:1579 16
ÍR 17 7 10 1516:1542 14
Njarðvík 17 6 11 1402:1463 12
Höttur 17 4 13 1489:1589 8
Haukar 17 4 13 1424:1537 8
1. deild karla
Vestri – Skallagrímur ........................ 102:85
Selfoss – Álftanes ................................. 87:97
Hrunamenn – Breiðablik................... 69:108
Hamar – Fjölnir.................................. 102:94
Staðan:
Breiðablik 13 10 3 1284:1124 20
Hamar 13 9 4 1280:1178 18
Álftanes 14 9 5 1320:1185 18
Sindri 13 8 5 1151:1136 16
Skallagrímur 14 8 6 1182:1158 16
Vestri 14 7 7 1201:1277 14
Fjölnir 13 3 10 1130:1200 6
Hrunamenn 13 3 10 1051:1280 6
Selfoss 13 3 10 1011:1072 6
Spánn
B-deild:
Real Canoe – Tizona Burgos.............. 90:82
- Sigtryggur Arnar Björnsson var ekki
með Real Canoe.
NBA-deildin
Boston – Phoenix.................................. 99:86
Orlando – New Orleans.................... 100:135
Milwaukee – Philadelphia................ 124:117
San Antonio – Detroit ........................ 106:91
Chicago – Charlotte ........................... 108:91
Dallas – LA Lakers .......................... 115:110
4"5'*2)0-#