Morgunblaðið - 24.04.2021, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 24.04.2021, Qupperneq 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021 Í Mori-samtímalistasafninu í Tókýó hefur verið sett upp sýning með verkum 16 kvenna frá 14 löndum sem eiga það sameiginlegt að hafa allar starfað markvisst og með eftir- tektarverðum árangri að list sinni í meira en hálfa öld. Á ensku er sýn- ingin kölluð Another Energy: Power to Continue Challenging og er yngsta listakonan 71 árs en sú elsta 105 ára. Sýningarstjórarnir segja að á síð- ustu árum hafi mátt sjá í alþjóðlegri list hvernig síaukin áhersla hefur verið lögð á fjölbreytileika og það að rétta kynjahallann. Listakonurnar 16 eru meðal listamanna sem hafa eftir langan feril vakið sívaxandi eft- irtekt á alþjóðlegum vettvangi en þær byrjuðu allar að vinna að list sinni af miklum metnaði upp úr miðri síðustu öld og fram á 8. áratuginn. Margbrotið Gestur gengur hjá innsetningunni „Silkiveginum“ sem er eftir Önnu Boghiguian. Fínlegt Sýningargestur við „Black Poppy“ eftir japönsku listakonuna Kazuko Miyamoto. AFP Dagblaðaverk Japanska listakonan Kimiyo Mishima stendur hér við nokkur verka sinna á sýningunni. AFP Í ljósaverki Innsetningin „Warp Trance“ er eftir Senga Nengudi. Konur sem halda áfram að ögra Sýningin Waiting Room, sem er þriggja rása vídeóverk eftir Berg- þóru Snæbjörnsdóttur, Dögg Mós- esdóttur og Rakel McMahon, verður opnuð í sýningarsalnum Harbinger á Freyjugötu 1 í dag, laugardag, milli klukkan 14 og 18. Waiting Room er þriggja rása vídeóverk eftir Bergþóru Snæ- björnsdóttur, Dögg Mósesdóttur og Rakel McMahon. Verkið bygg- ist lauslega á gjörningi sem var sýndur árið 2015 á gjörningahátíð- inni PAO í Osló. Í verkinu birtast þrjár persónur sem eru innilok- aðar á skjám. Í tilkynningu segir að þær endurtaki kunnuglegar stellingar og hreyfingar sem eiga að sýna fegurð og kynþokka, horfa og láta horfa: „Við fyrstu sýn kann að virðast sem um sé að ræða áhrif kláms og fjölmiðla en þegar nánar er að gáð má sjá bein tengsl þessara stellinga við grísk- ar styttur og málverk á grískum vösum,“ segir þar. Höfundarnir koma úr ólíkum áttum; Bergþóra er rithöfundur og ljóðskáld en hún hefur áður sett upp gjörninga í samstarfi við Rakel. Dögg er kvikmyndagerð- arkona sem hefur leikstýrt heim- ildarmyndum, stuttmyndum, aug- lýsingaherferðum og tónlistar- myndböndum. Og Rakel útskrifaðist árið 2008 úr myndlist við LHÍ og hefur sett upp fjölda einkasýninga og samsýninga. Tengsl við grískar styttur Úr gjörningi Persónur endurtaka kunnuglegar stellingar og hreyfingar sem eiga að sýna fegurð og kynþokka, horfa og láta horfa. - Þriggja rása vídeóverk, Waiting Room, sýnt í Harbinger Uppplýst var um tilnefningar til Bókaverðlauna barnanna 2021 á sumardaginn fyrsta, en verðlaunin verða afhent í 20. sinn á Sögur – verðlaunahátíð barnanna sem sýnd verður á RÚV í byrjun júní. Íslensku barnabækurnar sem eru tilnefndar eru (í stafrófsröð titla): Hetja eftir Björk Jakobsdóttur; Lára lærir að lesa eftir Birgittu Haukdal; Orri óstöðvandi, bókin hennar Möggu Messi eftir Bjarna Fritzson; Þín eigin undirdjúp eftir Ævar Þór Benediktsson og Öflugir strákar eftir Bjarna Fritzson. Þýddu barna- bækurnar sem tilnefndar eru (einnig í stafrófs- röð titla) eru: Alls ekki opna þessa bók eftir Andy Lee í þýð- ingu Hugins Þórs Grétarssonar; Dagbók Kidda klaufa – Snjóstríðið eftir Jeff Kin- ney í þýðingu Helga Jónssonar; Handbók fyrir ofurhetjur – Horfin eftir Elias og Agnesi Våhlund í þýðingu Ingunnar Snæland; Hund- man – Taumlaus eftir Dav Pilkey í þýðingu Bjarka Karlssonar og Verstu kennarar í heimi eftir David Walliams í þýðingu Guðna Kol- beinssonar. Það eru börn í skólum og bóka- söfnum um allt land sem tilnefna þær bækur sem þeim þykja skemmtilegastar, áhugaverðastar eða bestar. Valið stóð á milli 126 bóka þetta árið. Tilnefnd til Bókaverðlauna barna Bjarni Fritzson Í Glugga Gallerís Úthverfu á Ísafirði hefur verið opnuð sýning á sam- starfsverkefni Jóns Sigurpálssonar myndlistarmanns á Ísafirði og Cristians Gallos vistfræðings hjá Náttúrustofu Vestfjarða og ber sýn- ingin heitið Handan við hafdjúpin bláu/Beyond the blue oceans deep and wide. Þetta er sú fjórða í röð sjö örsýn- inga undir yfirskriftinni CARBON- KOLEFNI vísindi listanna – listin í vísindunum í glugga Gallerís Út- hverfu. Rannsóknastjóri Háskóla- seturs Vestfjarða, Catherine P. Chambers, og gestavinnustofur ArtsIceland ásamt Galleríi Úthverfu hafa unnið saman um nokkurt skeið að undirbúningi verkefnisins en markmiðið er að leiða saman fólk á vísinda- og listasviðinu til samvinnu um ýmis rannsóknarverkefni og miðla afrakstri samvinnunnar til al- mennings með sýningum og marg- víslegum öðrum miðlunarleiðum. Tilgangurinn er meðal annars að gefa vestfirsku listafólki fleiri tæki- færi til að þróa og sýna verk sín og gera vinnu þeirra sem starfa í vís- indasamfélagi Vestfjarða sýnilegri og styrkja með því vestfirskt rann- sóknasamfélag. Gluggasýningarnar í Úthverfu eru einungis fyrsti hluti verkefnisins sem mun taka á sig fleiri birtingarmyndir. Jón og Cristian sýna í glugga Úthverfu Sýnendur Jón Sigurpálsson og Cristian Gallo við Gallerí Úthverfu á Ísafirði. Les McKeown, forsöngvari skosku hljómsveitarinnar Bay City Rollers, er látinn 65 ára að aldri. Í frétt The Guardian kemur fram að hann hafi látist skyndilega á heimili sínu. McKeown er þekktastur fyrir flutning sinn á „Bye Bye Baby“, sem rataði í toppsæti breska vin- sældalistans, og „Shang-a-Lang“ og „Summerlove Sensation“ sem nutu mikilla vinsælda í Bandaríkjunum á áttunda áratug síðustu aldar. Hljómsveitin The Bay City Roll- ers var stofnuð 1964, en McKeown gekk ekki til liðs við hana fyrr en 1973. Hljómsveitin flaggaði ávallt skoskum uppruna sínum með stolti og klæddust iðulega fötum úr köfl- óttu skotaefni. „Við vorum ungir menn úr verkalýðsstétt. Okkur dreymdi um frægð og frama á heimsvísu og að bera út hróður tón- listar okkar, Skotlands og skotaefn- isins. Það var meginmarkmið okk- ar,“ sagði McKeown 2013. Söngvarinn Les McKeown látinn 65 ára Fortíð Fyrsta platan sem hljómsveitin Bay City Rollers sendi frá sér. Forsöngvarinn Les McKeown er lengst til hægri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.