Fréttablaðið - 09.10.2021, Blaðsíða 34
hagvangur.is
Brynja – Hússjóður ÖBÍ óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra. Hlutverk
framkvæmdastjóra er að stjórna og samhæfa rekstur Brynju í þeim tilgangi
að uppfylla sem best markmið félagsins. Leitað er að einstaklingi sem er
gegnheill og hefur ríkan áhuga og skilning á mannréttindum öryrkja.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Dagleg stjórnun og rekstur
• Yfirumsjón með bókhaldi og fjármálum
• Starfsmannamál
• Samskipti og samningagerð fyrir hönd stjórnar
• Undirbúningur og skipulagning stjórnarfunda
• Önnur verkefni í nánu samráði við formann og stjórn
Hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi
• Reynsla sem nýtist í starfi
• Þjónustulund og rík færni í mannlegum samskiptum
• Skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð
• Reynsla af samningagerð æskileg
• Reynsla af félagsmálastarfi kostur
• Traust orðspor
Umsóknarfrestur er til og með 15. október nk.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Upplýsingar um starfið veita Gyða Kristjánsdóttir,
gyda@hagvangur.is og Katrín S. Óladóttir,
katrin@hagvangur.is.
Brynja – Hússjóður ÖBÍ var stofnaður
22. febrúar 1966.
Brynja er sjálfseignarstofnun sem á og rekur
íbúðir fyrir öryrkja.
Nánari upplýsingar um starfsemina má fá á
vefslóðinni brynjaleigufelag.is
Framkvæmdastjóri
hagvangur.is
Bílaumboðið Askja leitar að metnaðarfullum vörustjóra til að leiða
vörumerki Kia, Honda og Mercedes-Benz. Viðkomandi þarf að sýna
frumkvæði í öflun þekkingar á vörum og nýjungum. Við bjóðum einstakt
tækifæri til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í lifandi umhverfi.
Helstu verkefni
• Vöruþróun og hugmyndavinna
• Kynningar fyrir birgja, söludeildir og umboðsmenn
• Utanumhald og samskipti við markaðsdeild og aðrar deildir vegna
vörumerkja
• Skýrslugerðir, verðútreikningar og samanburður
• Áætlanagerð innkaupa og pantanir í samvinnu við hagaðila
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. viðskiptafræði, verkfræði
eða tölvunarfræði
• Reynsla af vörustjórnun eða sambærilegu starfi kostur
• Mikil hæfni í samskiptum og teymisvinnu
• Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
• Viðamikil tölvuþekking og mjög góð kunnátta í Excel
• Góð kunnátta á Microsoft Office forrit t.d. PowerPoint
• Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í ræðu og riti
Umsóknarfrestur er til og með 18. október nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefanía
Hildur Ásmundsdóttir, stefania@hagvangur.is
Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir
Mercedes-Benz, Kia og Honda. Markmið
fyrirtækisins er að vera leiðandi í þjónustu til
viðskiptavina og skapa starfsumhverfi sem byggir
á metnaði, fagmennsku, heiðarleika og gleði.
Askja er í fremstu röð þegar kemur að framboði
raf- og tengiltvinnbifreiða.
Vörustjóri
4 ATVINNUBLAÐIÐ 9. október 2021 LAUGARDAGUR