Fréttablaðið - 09.10.2021, Side 47

Fréttablaðið - 09.10.2021, Side 47
Erum við að leita að þér? Söluráðgjafar óskast Þýska líftryggingafélagið Bayern Líf hefur boðið upp séreignarsparnað frá árinu 2007 og hefur á þeim tíma öðlast mikinn fjölda viðskiptavina. Miðlunin PM-Premium Makler er með samning við þýska líftryggingfélagið Bayern Líf um sölu og ráðgjöf á vörum þess. Vegna aukinna umsvifa þá þurfum við að bæta við í ráðgjafahóp okkar og bendum áhugasömum á að senda tölvupóst á Róbert Frey Jóhannsson á netfangið robert@pm-premium.de Við leitum að öflugum leiðtogum til að þjónusta fagaðila Við hjá Leigunni í BYKO erum að leita að metnaðarfullum leiðtogum til að ganga til liðs við öfluga liðsheild sem hafa áhuga á að vinna að uppbyggingu starfseminnar í nýjum höfuðstöðvum á Selhellu í Hafnarfirði. BYKO Leiga mun strax á nýju ári opna glæsilega nýja aðstöðu þar sem starfseminni verður loksins fundin framtíðarstaðsetning þar sem möguleiki til vaxtar er til staðar og aðbúnaður og aðstaða verður til fyrirmyndar. BYKO leitar að fólki sem hefur framúrskarandi þjónustulund, góða hæfni í mannlegum samskiptum, viðhefur sjálfstæð og öguð vinnubrögð og sýnir frumkvæði og metnað. Hvetjum alla áhugasama til þess að sækja um, óháð kyni. Umsóknafrestur er til 20. október 2021. Allar frekari upplýsingar veitir Bragi Jónsson, bragi@byko.is, rekstrarstjóri. Sótt er um á byko.is eða alfred.is Svæðisstjóri Verkfæri og tæki, leiga og sala Við leitum að einstaklingum með: • Reynslu af stjórnun, skilyrði • Mjög góð þekking á verkfærum og tækjum, skilyrði • Menntun og/eða reynslu á ábyrgðarsviði, kostur • Reynsla af sölu/leigu til fagmanna, kostur • Áhuga á verslun og þjónustu • Þekking á Microsoft Dynamics AX, kostur • Íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti, skilyrði Helstu verkefni: • Ábyrgð á daglegri starfsemi • Dagleg stjórnun, ábyrgð á mönnun og vaktaskipulagi • Uppbygging á sölu og þjónustu til fagmanna • Samskipti, sala og þjónusta við viðskiptavini • Samskipti við þjónustuaðila og birgja. • Skipulagning og ábyrgð á ferlum verslunar og tækjaleigu. Svæðisstjóri Steypumót og vinnupallar, leiga og sala Við leitum að einstaklingum með: • Reynslu af stjórnun, skilyrði • Þekking á verklegum framkvæmdum, kostur • Reynsla af sölu/leigu til fagmanna, kostur • Reynsla af starfi í byggingariðnaði, kostur • Þekking á Microsoft Dynamics AX, kostur • Íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti, skilyrði Helstu verkefni: • Ábyrgð á daglegri starfsemi • Dagleg stjórnun, ábyrgð á mönnun og vaktaskipulagi • Uppbygging á sölu og þjónustu til fagmanna • Samskipti, sala og þjónusta við viðskiptavini • Samskipti við þjónustuaðila og birgja. • Skipulagning og ábyrgð á ferlum er varðar steypumót, vinnupalla og tengdar vörur Svæðisstjóri Viðgerðar- og varahlutaþjónusta Við leitum að einstaklingum með: • Menntun og/eða reynslu á ábyrgðarsviði s.s. rafeindavirkjun, skilyrði • Reynslu af stjórnun, kostur • Víðtæk reynsla á sviði viðhalds véla og tækja, skilyrði • Þekking á Microsoft Dynamics AX, kostur • Íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti, skilyrði Helstu verkefni: • Ábyrgð á daglegri starfsemi viðgerðar- og varahlutaþjónustu • Uppbygging á viðhalds- og eftirkaupaþjónustu fyrir BYKO í heild. • Ábyrgð á viðhaldi tækja og leiguvara. • Samskipti, sala og þjónusta við viðskiptavini • Samskipti við þjónustuaðila og birgja. • Skipulagning og ábyrgð á ferlum er varða viðgerðarþjónustu. SÉRFRÆÐINGUR Í KLÍNÍSKUM RANNSÓKNUM Vistor óskar eftir að ráða sérfræðing í klínískum rannsóknum. Um er að ræða tímabundna stöðu til eins árs með möguleika á framlengingu. Viðkomandi mun hafa umsjón og eftirlit með klínískum lyfjarannsóknum sem gerðar eru á vegum viðskiptavina Vistor hér á landi. Sérfræðingur í klínískum rannsóknum hefur bein samskipti við fulltrúa bakhjarls og er tengiliður milli bakhjarls og rannsóknarseturs. Hæfni og eiginleikar • Háskólamenntun af heilbrigðis- eða raunvísindasviði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta og kunnátta í Norðurlandamáli æskileg • Þjónustulund og framúrskarandi samskiptahæfileikar • Sjálfstæð vinnubrögð • Nákvæmni og samviskusemi • Góð almenn tölvukunnátta • Reynsla af klínískum rannsóknum er kostur Helstu verkefni • Undirbúningur og uppsetning rannsókna í samvinnu við rannsakendur og bakhjarl • Vöktun rannsókna og skýrslugerð • Þjálfun rannsóknarteyma • Skjalavinna • Þýðingar Vistor hf. er leiðandi fyrirtæki á sviði markaðssetningar á lyfjum, heilsuvörum og dýraheilbrigðisvörum á Íslandi. Fyrirtækið er samstarfsaðili fjölmargra alþjóðlegra lyfjafyrirtækja og veitir þeim þjónustu við skráningar, sölu- og markaðsmál, klínískar rannsóknir, auk þess að hafa milligöngu um innflutnings- og dreifingarstarfsemi. Vistor er hluti af fyrirtækjasamstæðu Veritas ásamt Artasan, Distica, MEDOR og Stoð UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 17. OKTÓBER NK. Tekið er við umsóknum í gegnum heimasíðu Vistor, www.vistor.is. Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram koma ástæður þess að sótt er um starfið og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Gunnur Petra Þórsdóttir, deildarstjóri klínískra rannsókna, gunnur@vistor.is og Pétur Veigar Pétursson, starfsmannastjóri, petur@veritas.is. GILDI VISTOR ERU ÁREIÐANLEIKI, HREINSKIPTNI OG FRAMSÆKNI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.