Fréttablaðið - 09.10.2021, Blaðsíða 44
www.ruv.is
RÚV starfar í almannaþágu og hefur það hlutverk að vekja, virkja og efla.
Öflugt og samhent starfsfólks RÚV skoðar samfélagið með gagnrýnum hætti,
segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar. Við leitum að fólki
sem vill vera hluti af mikilvægu starfi á skapandi og líflegum vinnustað.
Dagskrárgerðarfólk
Mannauðsráðgjafi
Umsóknum skal skilað á vef RÚV,
www.ruv.is/storf, þar er einnig að finna
nánari upplýsingar um störfin.
Umsóknarfrestur er til og með 5. sept. 2021
Hefur þú brennandi áhuga á fólki og þjóðmálum, þægilega rödd og góða nærveru?
Langar þig til að færa þjóðinni nýjustu fréttir á morgnana í bland við skemmtileg viðtöl
við áhugavert fólk?
Við leitum að dagskrárgerðarfólki í Morgunútvarp Rásar 2 með breiða þekkingu, góða
reynslu af fréttatengdri dagskrárgerð eða blaðamennsku og mjög gott vald á íslensku máli.
Við leitum að metnaðarfullum mannauðsráðgjafa til að starfa við fjölbreytt verkefni í
mannauðsteymi. Ef þú hefur góða faglega þekkingu og reynslu, mikinn áhuga á þróun
ásamt því að nálgast samskipti með jákvæðni, fagmennsku og hvatningu að leiðarljósi
gæti þetta verið rétta starfið.
Við hvetjum áhugasöm til að sækja um
störfin, óháð kyni, uppruna, fötlun eða
skertri starfsgetu.
www.ruv.is
KVIKMYNDATÖKUFÓLK
OG HÖNNUÐIR!
Grafískur hönnuður
Við leitum að áhugasömum og
hugmyndaríkum grafískum hönnuði í fullt
starf á framleiðslusviði. Starfið felur í
sér grafík og hönnunarverkefni er snúa
að ímyndar- og kynningarmálum miðla
RÚV. Menntun og reynsla á sviði grafískrar
hönnunar er nauðsynleg.
Kvikmyndat kur
fyrir fréttir
Við leitum að metnaðarfullum starfsmanni
í fullt starf við fréttamyndatökur. Um
er að ræða alhliða fréttamyndatöku
fyrir sjónvarp og vefsíðu, og einnig
dagskrártökur, íþróttatökur, stúdíótökur
o.s.frv. Þekking eða reynsla af
klippiforritum er æskileg. Myndatökufólk
er leiðandi í úrlausnum og útfærslum í
nánu samráði við dagskrárgerðarfólk.
Menntun og reynsla á sviði kvikmyndatöku
ásamt þekkingu á drónatökum er
nauðsynleg.
Nánari uppýsingar um störfin veitir
Birgir Sigfússon, framkvæmdastjóri miðla
og framleiðslu, birgir.sigfusson@ruv.is
RÚV starfar í almannaþágu
og hefur það hlutverk að
vekja, virkja og efla. Öflugt og
samhent starfsfólk RÚV skoðar
samfélagið með gagnrýnum
hætti, segir mikilvægar sögur
og þróar nýjar leiðir til miðlunar.
Við leitum að fólki sem vill
vera hluti af mikilvægu starfi á
skapandi og líflegum vin ustað.
Umsóknum skal skilað á vef RÚV,
www.ruv.is/storf, þar er einnig
að finna nánari upplýsingar um
störfin.
Umsóknarfrestur er til
og með 24. okt. 2021
Við hvetjum áhugasöm til að
sækja um störfin, óháð kyni,
uppruna, fötlun eða skertri
starfsgetu.
PROTOCOL ASSISTANT
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu
Protocol Assistant lausa til umsóknar.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Umsóknir skulu sendar í gegnum
Electronic Recruitment Application (ERA)
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual
for the position of Protocol Assistant. Application instructions
and further information can be found on the Embassy’s home
page:https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Applications must be submitted through
Electronic Recruitment Application (ERA)
Sérfræðingur í málefnum barna
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu auglýsir laust
til umsóknar starf sérfræðings í málefnum barna
samkvæmt barnalögum.
Sérfræðingar í málefnum barna er starfa hjá Sýslu-
manninum á höfuðborgarvæðinu veita þjónustu við
öll sýslumannsembætti og sinna verkefnum á lands-
vísu. Markmið með starfi sérfræðings í málefnum
barna er að aðstoða foreldra við að leysa úr ágrein-
ingsmálum og veita ráðgjöf og liðsinni m.a. vegna
umgengni, forsjár eða búsetu barna, með sáttameð-
ferð, ráðgjöf og öðrum úrræðum barnalaga.
Sérfræðingur annast sáttameðferð þegar foreldrar
deila um umgengni, forsjá eða búsetu barna í málum
hjá sýslumönnum. Við sáttameðferð er beitt viður-
kenndum aðferðum til að leita sátta í ágreinings-
málum innan marka barnalaga. Sérfræðingur veitir
einnig foreldrum sérfræðiráðgjöf í málum barna hjá
sýslumanni. Þá veitir sérfræðingur liðsinni við með-
ferð máls hjá sýslumanni, sem getur meðal annars
falist í að rannsaka hvaða tilhögun umgengni er
barninu fyrir bestu og setja fram álit og mat á því.
Þegar viðtal við barn er hluti af meðferð máls hjá
sýslumönnum, annast sérfræðingur viðtalið og gerir
um það skýrslu. Sérfræðingur sinnir einnig eftirliti
með umgengni. Starf sérfræðings er unnið í samstarfi
teymis sérfræðinga og lögfræðinga sýslumanns.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Háskólapróf til starfsréttinda í sálfræði, félagsráð-
gjöf eða sambærilegum greinum.
• Að hafa unnið að lágmarki í tvö ár við meðferð
mála þar sem reynir beint á hagsmuni barna og/
eða foreldra.
• Að hafa haldgóða þekkingu á ákvæðum barnalaga
og þeim helstu álitaefnum sem reynir á við túlkun
þeirra.
• Menntun á sviði sáttameðferðar eða sáttamiðlunar
eða umtalsverð starfsreynsla á því sviði eða fjöl-
skyldumeðferðar.
• Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og geta til
að vinna undir álagi.
• Færni til að geta unnið sjálfstætt sem og í hópi með
skipulögðum og öguðum vinnubrögðum.
• Færni í mæltu og rituðu máli á íslensku og ensku.
Sótt er um starfið rafrænt á Starfatorg.is og má
þar finna nánari upplýsingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 18.10.2021
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Hlíðasmára 1, 201 Kópavogur
www.syslumenn.is
RÁÐNINGAR
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu, getu og reynslu
starfsmanna. Hver einstök ráðning er mikilvæg fjárfesting
og er hagur bæði fyrirtækis og viðkomandi einstaklings
að vel takist til.