Fréttablaðið - 09.10.2021, Blaðsíða 36
Starfsmaður í framleiðslu
Burstagerðin ehf óskar eftir starfsmanni í framleiðslu.
Burstagerðin er rótgróið handverksfyrirtæki í framleiðslu á
burstum og burstamottum. Um er að ræða skemmtilegt og
þægilegt handverksstarf í góðu starfsumhverfi.
Við leitum að handlögnum og skipulögðum einstaklingi sem
býr yfir sterkri verkkunnáttu og jákvæðu hugarfari.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Framleiðsla á vörum Burstagerðarinnar
• Þátttaka í tilboðsgerð og sölu
Menntunar- og hæfniskröfur
• Reynsla af framleiðslu, smíðum, vélvirkjun eða sambærilegum
störfum
• Iðnmenntun kostur
• Góð íslenskukunnátta er skilyrði
(Must be fluent in Icelandic).
Umsóknir og fyrirspurnir varðandi starfið sendist á
starf@burstagerdin.is.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá
og kynningarbréf þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar
og rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi í starfið.
Upplýsingar ekki veittar
á staðnum eða í síma.
ARKITEKT
BYGGINGAFRÆÐINGUR
Vegna spennandi verkefna framundan leitum við að
starfsfólki í eftirfarandi stöður:
Vegna spennandi verkefna framundan óskum við eftir
byggingafræðingi eða arkitekt með gott vald á
fullnaðarhönnun bygginga. Nauðsynlegt er að viðkomandi
hafi gott vald á Revit eða sambærilegu BIM forriti.
Við bjóðum upp á lifandi og skemmtilegan vinnustað þar
sem unnið er af metnaði að fjölbreyttum verkefnum.
Arkþing-Nordic er hluti af Nordic Office of
Architecture sem er 270 manna fyrirtæki með
starfsemi í fjórum löndum.
Hér á Íslandi starfa 31 hjá fyrirtækinu.
Umsóknir sendist til hh@arkthing.is fyrir 21. október.
Öllum umsóknum verður svarað og farið verður með þær
sem trúnaðarmál.
www.nordicarch.com
Við erum að leita eftir kröftugum einstaklingi í starf fagleiðtoga til að
leiða og samræma vinnubrögð fyrirtækisins við gerð kostnaðaráætlana.
Einnig er hlutverk fagleiðtoga að sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði
kostnaðar- og verkáætlanagerðar tengd hönnun og framkvæmd bygginga,
samgangna, innviða og orku- og iðnaðarmannvirkja.
Hæfniskröfur
• Háskólapróf í verkfræði, tæknifræði eða byggingafræði
• Góð leiðtoga-, samskipta- og skipulagshæfni
• Víðtæk þekking á mannvirkjagerð, greiningu kostnaðar og gerð
kostnaðaráætlana ásamt góðri þekkingu á gerð verkáætlana
• Umtalsverð reynsla við gerð kostnaðaráætlana og tilboðsgerð
við mannvirkjagerð
• Staðgóð reynsla af framkvæmdum á byggingarstað
• Góð kunnátta á hugbúnaði við gerð verkáætlana,
t.d. MS Project er æskileg
• Mikilvægt er að umsækjendur hafi gott vald á íslensku
og ensku og þekking á Norðurlandamáli er kostur.
Nánari upplýsingar veita
Elín Greta Stefánsdóttir mannauðsstjóri, egs@verkis.is
Áslaug Ósk Alfreðsdóttir, sérfræðingur í mannauðs málum, aoa@verkis.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. október. Sótt er um á umsokn.verkis.is
VIÐ ERUM STERK LIÐSHEILD
Hjá Verkís starfa yfir 300 manns að
fjölbreyttum verkefnum á Íslandi og erlendis.
Starfsfólkið hjá Verkís myndar sterka liðsheild
sem býr yfir mikilli þekkingu og reynslu og
getur tekist á við krefjandi verkefni. Við
leggjum okkur fram við að tryggja starfsfólki
okkar góðan og eftirsóknarverðan vinnustað
þar sem hver og einn nær að nýta hæfileika
sína og þekkingu sem best.
Fagleiðtogi
kostnaðar áætlanagerðar
Leikskóli Seltjarnarness
• Deildarstjóri, fullt starf
• Leikskólakennari, fullt starf
• Starfsmaður leikskóla, fullt starf
Upplýsingar um störf í Leikskóla Seltjarnarness
veitir Margrét Gísladóttir, leikskólastjóri, margret.gisladottir@seltjarnarnes.is
í síma 5959-280/290.
Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skilað
á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar undir
seltjarnarnes.is – Störf í boði
Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til
18. október 2021.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélaga.
Seltjarnarnesbær
Laus störf
seltjarnarnes.is