Fréttablaðið - 09.10.2021, Side 42
EUROPEAN UNION
DELEGATION TO ICELAND
Accounts clerk
The Delegation of the European Union to Iceland is
seeking to recruit an Accounts Clerk. The responsibili-
ties of the job holder will include, but not be limited to,
assistance with financial/budgetary management; public
procurement; management of infrastructure and assets;
logistics support and other administrative tasks in support
of the Delegation’s activities.
Minimum Requirements:
• Proven experience of min. 1-3 years in an administrative
role
• Very good knowledge of English
• Good knowledge of Icelandic
• Upper secondary education or equivalent
For further information please visit
https://europa.eu/!8wqvGf
The deadline for applications is October 20th 2021
Deildarstjóri skólaþjónustu
Leitað er að áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi til að leiða starf deildar skólaþjónustu á fjölskyldusviði Árborgar.
Viðkomandi þarf að hafa góða reynslu og þekkingu á skólaþjónustu og almennu skólastarfi.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa tæplega 11 þúsund manns og lögð er áhersla á öflugt skólastarf og góða frístunda- og velferðar-
þjónustu. Skólaþjónustan og aðrar deildir fjölskyldusviðs vinna af miklum krafti að eflingu þverfaglegs samtarfs og snemm-
tæks stuðnings sem er liður í að styrkja heildstæða nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Meginþjónustuþættir skóla-
þjónustu eru kennslufræðileg ráðgjöf, talmeinaráðgjöf og þjálfun, sálfræðiráðgjöf, stuðningur við starfsþróun í skólum sem og
ýmsar skimanir og greiningar. Í Sveitarfélaginu Árborg eru sex leikskólar og fjórir grunnskólar. Ráðið verður í stöðuna frá 1.
janúar 2022 eða eftir nánari samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 18. október 2021.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100%.
Vakin er athygli á stefnu Sveitarfélagsins Árborgar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá sveitarfélaginu og að vinnustaðir
endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Hjartarson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, thorsteinnhj@arborg.is eða í síma 480-1900.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, ásamt greinargóðum rökstuðningi fyrir hæfni í starfið og er skilað í gegnum
ráðningarvef sveitarfélagsins, starf.arborg.is
Meginverkefni
• Fagleg forysta á sviði skólaþjónustu í samræmi við lög og menntastefnu Árborgar
• Stýra og bera ábyrgð á daglegu starfi og rekstri skóla-
þjónustu.
• Næsti yfirmaður starfsfólks skólaþjónustu, m.a. kennslu-
ráðgjafa, sálfræðinga og talmeinafræðinga
• Virk þátttaka í þróun og skipulagi skólastarfs í Árborg
• Innleiðing á nýju verklagi og þróun teymisvinnu í samstarfi
við aðra stjórnendur
• Stjórnsýsluverkefni og ábyrgð á rekstri skrifstofu skóla-
mála ásamt sviðsstjóra
• Tryggja gott samstarf við stofnanir á sviði heilbrigðis- og skólamála
Menntun og færnikröfur
• Háskólamenntun í menntavísindum eða önnur menntun
sem nýtist í starfi
• Framhaldsmenntun er kostur
• Leiðtogahæfileikar og hæfni í teymisvinnu
• Þekking og reynsla af rekstri og opinberri stjórnsýslu
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Metnaður, skipulagshæfni og sjálfstæði
• Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
• Góð færni í ensku og fleiri tungumálum er kostur
Embætti skólameistara
Flensborgarskólans í Hafnarfirði
Skólameistari veitir skólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og
starfi skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir,
aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber ábyrgð
á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt auk þess að hafa frumkvæði að
gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um
framhaldsskóla nr. 92/2008. Skólameistari gegnir mikilvægu hlutverki í mótun
skólastarfs á grundvelli laga og aðalnámskrár framhaldsskóla og er mikilvægt
að umsækjendur hafi skýra framtíðarsýn hvað þetta varðar.
Hæfni- og menntunarkröfur:
• Starfsheitið kennari ásamt viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu
á framhaldsskólastigi.
• Umfangsmikil stjórnunarreynsla og leiðtogahæfni.
• Þekking og reynsla af fjármálum, rekstri og áætlanagerð.
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu.
• Reynsla af verkefnastjórnun og stefnumótunarvinnu.
• Afburðafærni í mannlegum samskiptum og færni í að skapa liðsheild á vinnu-
stað.
• Skýr framtíðarsýn og hæfileiki til nýsköpunar.
Ráðning og kjör
Mennta- og menningarmálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að
fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla,
nr. 92/2008, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996,
með síðari breytingum. Skipað er í embættið frá 1. janúar 2022.
Um ráðningu og launakjör skólameistara fer eftir 39. gr. a í lögum um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996 og 12. gr laga um menntun, hæfni og
ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhalds-
skóla, nr. 95/2019.
Nánari upplýsingar um embættið má finna á vefsíðu Starfatorgs.
Umsóknarfrestur er til og með 22.10.2021.
Flensborgarskólinn
í Hafnarfirði er með
elstu starfandi
skólum á Íslandi.
Hann var upphaflega
stofnaður árið 1877
sem barnaskóli en
hefur frá árinu 1975
verið framhaldsskóli.
Í dag er Flensborgar-
skólinn bóknámsskóli
sem leggur áherslu á
nám til stúdentsprófs
af félagsvísinda-,
raunvísinda- og við-
skipta og hagfræði-
braut, auk opinnar
námsbrautar þar
sem nemendur geta
hannað sína eigin
námsbraut úr náms-
framboði skólans.
Íþróttaafrekssvið er
starfrækt við skólann
sem nemendur geta
samtvinnað öllum
námsbrautum. Einnig
býður skólinn nám
á starfsbraut sem er
ætluð nemendum
sem þurfa einstakl-
ingsmiðað nám vegna
fötlunar eða sértækra
náms örðugleika.
Nemendur skólans
eru ríflega 700 og
starfsmenn skólans
eru um 85.
Deildarstjórar og leikskóla-
kennarar óskast til starfa í
leikskólann Goðheima á Selfossi
Leikskólinn Goðheimar er nýr sex deilda leikskóli á Sel-
fossi. Opnaðar voru þrjár deildir skólans í apríl 2021 og í
janúar 2022 opna tvær deildir og 6. deildin opnar í febrúar
2022. Unnið er að innleiðingu á Heilsueflandi leikskóla og
grænfána. Hér er tækifæri fyrir leikskólakennara til að taka
þátt í mótun skólans og hafa fagleg áhrif á þróun hans.
Deildarstjórar
Um er að ræða þrjár 100% stöður deildarstjóra, ráðið
verður í tvær 100% stöðu frá og með 1. janúar 2022 og eina
100% stöðu frá og með 1. febrúar 2022 eða eftir samkomu-
lagi.
Leikskólakennarar
Um er að ræða 12 stöður leikskólakennara í 100% starfs-
hlutfalli. Ráðið verður í átta stöður frá og með 1. janúar
2022 og fjórar stöður frá og með 1. febrúar 2022 eða eftir
nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar um störfin eru á heimasíðu Árborgar
undir starf.arborg.is
Umsóknarfrestur er til 25. október 2021.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Vakin er athygli
á stefnu Árborgar að jafna hlutfall kynjanna í störfum og
að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Eingöngu er hægt að sækja um starfið inn á ráðningarvef
sveitarfélagsins starf.arborg.is.
Umsóknum fylgi leyfisbréf, yfirlit yfir nám, fyrri störf og
rökstuðningur fyrir hæfni í starfi.
Nánari upplýsingar um störfin veita:
Sigríður Birna Birgisdóttir, leikskólastjóri
sími 480-6301, godeimar@arborg.is
Anna Gína Aagestad, aðstoðarleikskólastjóri
sími 480-6302, godeimar@arborg.is