Fréttablaðið - 09.10.2021, Page 47
Erum við
að leita að þér?
Söluráðgjafar óskast
Þýska líftryggingafélagið Bayern Líf hefur boðið upp
séreignarsparnað frá árinu 2007 og hefur á þeim tíma
öðlast mikinn fjölda viðskiptavina.
Miðlunin PM-Premium Makler er með samning við
þýska líftryggingfélagið Bayern Líf um sölu og ráðgjöf á
vörum þess.
Vegna aukinna umsvifa þá þurfum við að bæta við
í ráðgjafahóp okkar og bendum áhugasömum á að
senda tölvupóst á Róbert Frey Jóhannsson á netfangið
robert@pm-premium.de
Við leitum að öflugum
leiðtogum til að
þjónusta fagaðila
Við hjá Leigunni í BYKO erum að leita að metnaðarfullum
leiðtogum til að ganga til liðs við öfluga liðsheild sem
hafa áhuga á að vinna að uppbyggingu starfseminnar
í nýjum höfuðstöðvum á Selhellu í Hafnarfirði.
BYKO Leiga mun strax á nýju ári opna glæsilega nýja
aðstöðu þar sem starfseminni verður loksins fundin
framtíðarstaðsetning þar sem möguleiki til vaxtar er til
staðar og aðbúnaður og aðstaða verður til fyrirmyndar.
BYKO leitar að fólki sem hefur framúrskarandi
þjónustulund, góða hæfni í mannlegum samskiptum,
viðhefur sjálfstæð og öguð vinnubrögð og sýnir
frumkvæði og metnað.
Hvetjum alla áhugasama til þess að sækja um, óháð kyni.
Umsóknafrestur er til 20. október 2021.
Allar frekari upplýsingar veitir Bragi Jónsson,
bragi@byko.is, rekstrarstjóri.
Sótt er um á byko.is eða alfred.is
Svæðisstjóri
Verkfæri og tæki, leiga og sala
Við leitum að einstaklingum með:
• Reynslu af stjórnun, skilyrði
• Mjög góð þekking á verkfærum og tækjum, skilyrði
• Menntun og/eða reynslu á ábyrgðarsviði, kostur
• Reynsla af sölu/leigu til fagmanna, kostur
• Áhuga á verslun og þjónustu
• Þekking á Microsoft Dynamics AX, kostur
• Íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti, skilyrði
Helstu verkefni:
• Ábyrgð á daglegri starfsemi
• Dagleg stjórnun, ábyrgð á mönnun og vaktaskipulagi
• Uppbygging á sölu og þjónustu til fagmanna
• Samskipti, sala og þjónusta við viðskiptavini
• Samskipti við þjónustuaðila og birgja.
• Skipulagning og ábyrgð á ferlum verslunar
og tækjaleigu.
Svæðisstjóri
Steypumót og vinnupallar, leiga og sala
Við leitum að einstaklingum með:
• Reynslu af stjórnun, skilyrði
• Þekking á verklegum framkvæmdum, kostur
• Reynsla af sölu/leigu til fagmanna, kostur
• Reynsla af starfi í byggingariðnaði, kostur
• Þekking á Microsoft Dynamics AX, kostur
• Íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti, skilyrði
Helstu verkefni:
• Ábyrgð á daglegri starfsemi
• Dagleg stjórnun, ábyrgð á mönnun og vaktaskipulagi
• Uppbygging á sölu og þjónustu til fagmanna
• Samskipti, sala og þjónusta við viðskiptavini
• Samskipti við þjónustuaðila og birgja.
• Skipulagning og ábyrgð á ferlum er varðar steypumót,
vinnupalla og tengdar vörur
Svæðisstjóri
Viðgerðar- og varahlutaþjónusta
Við leitum að einstaklingum með:
• Menntun og/eða reynslu á ábyrgðarsviði
s.s. rafeindavirkjun, skilyrði
• Reynslu af stjórnun, kostur
• Víðtæk reynsla á sviði viðhalds véla og tækja, skilyrði
• Þekking á Microsoft Dynamics AX, kostur
• Íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti, skilyrði
Helstu verkefni:
• Ábyrgð á daglegri starfsemi viðgerðar- og
varahlutaþjónustu
• Uppbygging á viðhalds- og eftirkaupaþjónustu fyrir
BYKO í heild.
• Ábyrgð á viðhaldi tækja og leiguvara.
• Samskipti, sala og þjónusta við viðskiptavini
• Samskipti við þjónustuaðila og birgja.
• Skipulagning og ábyrgð á ferlum er varða
viðgerðarþjónustu.
SÉRFRÆÐINGUR Í
KLÍNÍSKUM RANNSÓKNUM
Vistor óskar eftir að ráða sérfræðing í klínískum rannsóknum. Um er að ræða tímabundna stöðu til eins árs með
möguleika á framlengingu. Viðkomandi mun hafa umsjón og eftirlit með klínískum lyfjarannsóknum sem gerðar
eru á vegum viðskiptavina Vistor hér á landi. Sérfræðingur í klínískum rannsóknum hefur bein samskipti við
fulltrúa bakhjarls og er tengiliður milli bakhjarls og rannsóknarseturs.
Hæfni og eiginleikar
• Háskólamenntun af heilbrigðis- eða raunvísindasviði
eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta og kunnátta í
Norðurlandamáli æskileg
• Þjónustulund og framúrskarandi samskiptahæfileikar
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Nákvæmni og samviskusemi
• Góð almenn tölvukunnátta
• Reynsla af klínískum rannsóknum er kostur
Helstu verkefni
• Undirbúningur og uppsetning rannsókna í
samvinnu við rannsakendur og bakhjarl
• Vöktun rannsókna og skýrslugerð
• Þjálfun rannsóknarteyma
• Skjalavinna
• Þýðingar
Vistor hf. er leiðandi fyrirtæki á sviði markaðssetningar á lyfjum, heilsuvörum og dýraheilbrigðisvörum á Íslandi.
Fyrirtækið er samstarfsaðili fjölmargra alþjóðlegra lyfjafyrirtækja og veitir þeim þjónustu við skráningar, sölu- og
markaðsmál, klínískar rannsóknir, auk þess að hafa milligöngu um innflutnings- og dreifingarstarfsemi. Vistor er
hluti af fyrirtækjasamstæðu Veritas ásamt Artasan, Distica, MEDOR og Stoð
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 17. OKTÓBER NK.
Tekið er við umsóknum í gegnum heimasíðu Vistor, www.vistor.is.
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram koma ástæður þess að sótt er um starfið
og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Nánari upplýsingar veita Gunnur Petra Þórsdóttir, deildarstjóri klínískra rannsókna, gunnur@vistor.is og
Pétur Veigar Pétursson, starfsmannastjóri, petur@veritas.is.
GILDI VISTOR ERU ÁREIÐANLEIKI, HREINSKIPTNI OG FRAMSÆKNI