Morgunblaðið - 13.05.2021, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u.
At
h.
að
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
595 1000
60+
meðGunnari Svanlaugs
13. október í 3 vikur
Tenerife
Verð frá kr.
299.900
AUKAFERÐ! Uppselt í ferðirnar 22. og 29. september
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ráðherrar funda á Íslandi
- Sögulegur fundur utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Rússlands haldinn í
Reykjavík - Rússland tekur við formennsku í Norðurskautsráðinu af Íslandi
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Antony J. Blinken, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, og Sergei
Lavrov, utanríkisráðherra Rúss-
lands, munu funda í Reykjavík 20.
maí næstkomandi í tilefni af ráð-
herrafundi Norðurskautsráðsins.
Ísland hefur farið með formennsku
í ráðinu undanfarin tvö ár en nú
taka Rússar við keflinu.
Þetta staðfesti Guðlaugur Þór
Þórðarson, utanríkis- og þróunar-
samvinnuráðherra Íslands, við
mbl.is í gær.
Fundurinn sögulegur
Guðlaugur segir að fundurinn
verði sögulegur og að Höfði, þar
sem Reagan Bandaríkjaforseti og
Gorbastjov, leiðtogi Sovétríkjanna,
hittust árið 1986, komi vel til greina
sem fundarstaður.
„Þetta er fagnaðarefni. Það má
alltaf búast við því að eitthvað gott
komi út úr svona fundum, sérstak-
lega þegar utanríkisráðherrar ríkja
hittast augliti til auglitis,“ segir
Guðlaugur.
„Það liggur alveg fyrir að Höfði
stendur til boða,“ bætir hann við.
Ljóst er að fundurinn verði hald-
inn í Reykjavík og þá er Höfði aug-
ljós kostur. Síðast var haldinn álíka
fundur í Höfða í september 2019
þegar Mike Pence, fyrrverandi
varaforseti Bandaríkjanna, fundaði
með Guðna Th. Jóhannessyni, for-
seta Íslands, og Katrínu Jakobs-
dóttur forsætis-
ráðherra.
Allflestir Ís-
lendingar annað-
hvort muna eftir
eða hafa heyrt
um leiðtogafund-
inn í Höfða 1986,
þegar Reagan
Bandaríkjafor-
seti og Gorbat-
sjov, leiðtogi
Sovétríkjanna, hittust og ræddu
saman. Það er gjarnan sagt hafa
verið upphafið að endalokum kalda
stríðsins.
Við sama tilefni hittust utanrík-
isráðherrar Bandaríkjanna og Sov-
étríkjanna, hinn nýlátni George
Shultz og Eduard Ambrosiyevich
Shevardnadze, í Höfða.
„Við höfum komið því skýrt á
framfæri að við munum gera allt
sem í okkar valdi stendur til þess
að þessi fundur verði sem farsæl-
astur. Það er auðvitað sögulegt að
utanríkisráðherrar Bandaríkjanna
og Rússlands hittist hér í Reykja-
vík,“ segir utanríkisráðherra.
Rússar taka við af Íslend-
ingum
Eins og fyrr segir er tilefni fund-
arins ráðherrafundur Norðuskauts-
ráðsins, sem fram fer í næstu viku.
Í Norðurskautsráðinu sitja átta
lönd, Ísland, Danmörk, Finnland,
Noregur, Svíþjóð, Kanada, Banda-
ríkin og Rússland ásamt samtökum
frumbyggja á svæðinu. Ísland hef-
ur farið með formennsku í ráðinu
undanfarin tvö ár og taka Rússar
nú við keflinu.
„Ég hef núna stýrt ráðinu fyrir
hönd okkar Íslendinga síðastliðin
tvö ár og það hefur verið sannur
heiður að fá að leiða störf á þessum
vettvangi. Við höfum fengið mikið
lof fyrir störf okkar í ráðinu þessi
tvö ár, og það við erfiðar aðstæður,
og nú afhendum við Rússum kefl-
ið,“ segir Guðlaugur.
Sergei
Lavrov
Antony
Blinken
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það hefur allt gengið mjög vel til
þessa. Æfingin á mánudag gekk
betur en við þorðum að vona en
annars höfum við mikið verið uppi á
hóteli,“ segir Eurovision-farinn
Daði Freyr Pétursson. Daði og
Gagnamagnið komu til Rotterdam
um síðustu helgi en þar fer Euro-
vision-keppnin fram í næstu viku.
Ísland stígur á svið seinna undan-
úrslitakvöldið á fimmtudag. Mikil-
væg æfing verður hjá hópnum í
dag. „Það er búningaæfing. Við
verðum í búningum, greidd og förð-
uð. Mér skilst að ef eitthvað kemur
upp á geti upptaka frá þessari æf-
ingu verið notuð í keppninni. Þann-
ig að það er alveg séns að við séum
að keppa í dag,“ sagði Daði.
Góð stemning er í íslenska hópn-
um þrátt fyrir að sóttvarnaráðstaf-
anir komi í veg fyrir að hann geti
farið allra ferða sinna frjáls. Raunar
mega Daði og félagar aðeins fara út
í stuttar gönguferðir og þurfa
reglulega að fara í kórónuveirupróf.
Kvöldvaka var hjá íslenska hópnum
á þriðjudagskvöld. Þar voru ýmsir
leikir á dagskrá auk pöbbkviss.
Sjónvarpsmaðurinn Gísli Marteinn
Baldursson sigraði í kvissinu með
nokkrum yfirburðum að sögn Daða.
Daði hefur farið í fjölda viðtala
síðustu daga og fram undan eru
fleiri æfingar. Annað rennsli verður
á miðvikudaginn í næstu viku og
eftir helgi verður sömuleiðis við-
burður þar sem keppendur labba á
rauðum dregli og pósa fyrir mynda-
vélar.
Daði og Gagnamagnið gerðu sér-
stakan Eurovision-bjór í samstarfi
við Borg brugghús og kallast hann
10 Beers með vísan til lagaheitisins
10 Years. Bjórinn er að sjálfsögðu
með í för á keppninni. „Ég held að
það séu ekkert mjög margir sem
ferðast með fulla tösku af bjór til
Hollands. Okkur fannst nauðsynlegt
að vera með 10 Beers á keppninni,
þetta fullkomnar pakkann. Allir í
merktum peysum og með merktan
bjór. Og að sjálfsögðu skáluðum við
eftir æfinguna á mánudaginn.“
Lykilæfing hjá Daða í dag
- Góð stemning í
Eurovision-hópn-
um í Rotterdam
Ljósmynd/Rúnar Freyr Gíslason
Stuð Daði og Gagnamagnið við sér-
merkta rafmagnsbíla í Rotterdam.
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Menningarsamningur mennta- og
menningarmálaráðuneytis og Akur-
eyrarbæjar var undirritaður á Akur-
eyri í gær. Meginmarkmið hans er
að efla hlutverk bæjarins í lista- og
menningarlífi á Íslandi og stuðla að
fleiri menningartengdum störfum í
bænum. Samningurinn kveður á um
230 milljóna króna árlegan stuðning
ríkisins við menningarstarf bæjarins
og er hann til þriggja ára. Um er að
ræða 15% hækkun frá fyrri samn-
ingi.
„Akureyrarbær státar af fjöl-
breyttu menningarlífi og það er mik-
ilvægur liður í okkar menningar-
stefnu að stuðla að uppbyggingu,
aðgengi og fagmennsku í listalífi
íbúa um land allt. Þannig eflum við
samfélög og stuðlum að auknum lífs-
gæðum,“ segir Lilja Alfreðsdóttir,
mennta- og menningarmálaráð-
herra.
Víðtæk áhrif
Ásthildur Sturludóttir, bæjar-
stjóri á Akureyri, segir að langt og
farsælt samstarf hafi verið á milli
ráðuneytisins og bæjarins og því sé
ánægjulegt að staðfesta framhald
þess. „Tilgangur samningsins er að
byggja upp atvinnustarfsemi í list-
um á Akureyri og við lítum svo á að
með því styrkjum við mikilvæga inn-
viði fyrir Norður- og Austurland því
áhrifin teygja sig langt út fyrir bæj-
armörkin. Svæðið sem heild eflist
sem búsetukostur og atvinnufólk í
listum á fleiri raunverulega valkosti
en höfuðborgarsvæðið eitt þegar það
velur sér vettvang,“ segir Ásthildur.
Gerðu menn-
ingarsamning
- 230 milljóna króna árlegur stuðningur
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Undirritun Lilja Alfreðsdóttir og Ásthildur Sturludóttir undirrituðu samninginn í Minjasafninu á Akureyri.
Birgir Ármanns-
son, formaður
þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins,
gefur kost á sér í
prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í
Reykjavík, sem
fram fer 4. og 5.
júní næstkom-
andi. Í tilkynn-
ingu frá Birgi kemur fram að hann
sækist eftir því að vera áfram í
framlínusveit flokksins og óski eftir
stuðningi í 2. til 3. sæti. Birgir hef-
ur setið á Alþingi frá árinu 2003 og
hefur frá ársbyrjun 2017 verið for-
maður þingflokksins. Að sögn Birg-
is eru framundan gríðarlega mikil-
væg verkefni sem snúa að
endurreisn atvinnulífsins og fjölg-
un atvinnutækifæra eftir samdrátt
og erfiðleika undanfarinna miss-
era. Þar þurfi stjórnmálamenn að
skapa hagstæð skilyrði til að einka-
framtakið nái að blómstra en varast
útþenslu hins opinbera. Hann legg-
ur áherslu á að standa þurfi vörð
um frelsi einstaklingsins, sem sótt
sé að úr ýmsum áttum, og tryggja
að ekki sé vegið að stoðum stjórn-
skipunarinnar og réttarríkisins.
Birgir sækist eftir
öðru til þriðja sæti
Birgir Ármannsson