Morgunblaðið - 13.05.2021, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021
BYLTING
Í PALLBÍLUM
ISUZUD-MAX
3.500 kg dráttargeta
Fimm stjörnu öryggi
Fimm ára ábyrgð
Nýr og fullkominn Isuzu D-Max sameinar byltingarkennda
hönnun, ótrúlegan vinnukraft með 3,5 tonna dráttargetu og
framúrskarandi öryggi. Skoðaðu þennan frábæra kraftajötun
á bl.is eða í sýningarsalnum okkar við Sævarhöfða.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Eftir að þriðja leiguþyrla Land-
helgisgæslunnar, TF-GNA, kom til
landsins í síðustu viku er ekki leng-
ur pláss fyrir öll loftför Landhelg-
isgæslunnar í flugskýli hennar á
Reykjavíkurflugvelli. Þetta segir
Ásgeir Erlendsson, upplýsinga-
fulltrúi Gæslunnar, aðspurður.
Landhelgisgæslan hefur nú yfir
að ráða þremur þyrlum af tegund-
inni Airbus Helicopters og einni
flugvél af gerðinni Dash 8 Q 300
sem er sérhönnuð til eftirlits-, leit-
ar-, björgunar- og sjúkraflugs á
Norður-Atlantshafi.
„Nú er svo komið að geyma þarf
eina þyrlu eða flugvélina TF-SIF
utandyra vegna plássleysis. Mik-
ilvægt er að þetta ófremdarástand
sem komið er upp verði leyst sem
fyrst enda gegna loftförin sérstak-
lega þýðingarmiklu hlutverki eins
og flestum er kunnugt,“ segir Ás-
geir.
Hann segir að aðstaða flug-
deildar Landhelgisgæslu Íslands á
Reykjavíkurflugvelli sé barn síns
tíma. Flugskýli Landhelgisgæsl-
unnar var byggt árið 1943 og upp-
fyllir ekki kröfur um brunavarnir
auk þess sem almenn aðstaða
starfsfólks er alls ófullnægjandi og
langt frá kröfum nútímans. Þá sé
ekki hægt að viðhafa almennar
öryggiskröfur sem gerðar eru til
aðstöðu þar sem viðhald loftfara
fer fram.
Ráðuneytið sendi bréf 2018
Dómsmálaráðuneytið sendi
skipulagsfulltrúa Reykjavíkur bréf
í júlí 2018 þar sem athygli var vak-
in á þeirri stöðu sem upp kæmi
þegar Landhelgisgæslan hefði end-
urnýjað flugflotann með nýjum
björgunarþyrlum. Mikilvægt væri
að lausn lægi fyrir varðandi að-
stöðu á Reykjavíkurflugvelli áður
en af endurnýjun þyrluflotans yrði.
„Þess er hér með formlega farið
á leit að skipulagsyfirvöld í Reykja-
vík móti tillögur um staðsetningu
þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar
á flugvallarsvæðinu til framtíðar,“
sagði í bréfinu. Þetta hefur ekki
gengið eftir.
Með bréfi ráðuneytisins fylgdi
skýrsla Þorgeirs Pálssonar, fv.
flugmálastjóra, frá 2017 um hlut-
verk Reykjavíkurflugvallar í örygg-
iskerfi landsins. Þorgeir sagði í inn-
gangi skýrslunnar að sjúkraflug
væri sú samfélagsþjónusta sem
væri hvað sýnilegust af þeim fjöl-
breyttu hlutverkum sem flugvellir
gegndu til að tryggja almennt ör-
yggi og velferð landsmanna.
„Ef Landhelgisgæslan hefði ekki
lengur aðstöðu á Reykjavíkur-
flugvelli, þ.m.t. flugleiðsögu, er að-
flug þyrlu að Landspítalanum ill-
mögulegt eða með öllu ófært
samkvæmt skýrslunni. Það skiptir
því miklu máli að það gangi eftir að
ásættanleg lausn finnist, svo sem
stefnt er að,“ segir m.a. í bréfi
dómsmálaráðuneytisins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reykjavíkurflugvöllur TF-GNA er nú geymd við flugskýli Landhelgisgæslunnar. Hin nýja björgunarþyrla kom til landsins á dögunum og verður væntanlega tilbúin til notkunar í vikulokin.
Flugskýlið rúmar ekki öll loftförin
- Geyma þarf eina þyrlu eða flugvélina utandyra - Þrýst á borgina að finna þyrlum framtíðarstað
Samfylkingin leggur til að veittur
verði tímabundinn skattaafsláttur
þegar einstaklingar koma aftur til
starfa eftir atvinnuleysi. Nánar
tiltekið tvöfaldur persónuafsláttur
í jafn marga mánuði og einstak-
lingur var atvinnulaus. Þessu er
ætlað að koma til móts við heimili
sem hafa orðið fyrir miklu tekju-
falli og einnig að gera einstakling-
um kleift að vinna sig hraðar upp.
Þá vill Samfylkingin fjölga
störfum og styðja við nýsköpun,
setja fram ný úrræði fyrir náms-
menn og ungt fólk og styðja við
listafólk í sumar svo það geti
haldið viðburði um land allt.
Tillögurnar eru hluti af pakka
sem Samfylkingin kynnti í gær
„til að hraða ráðningum, auka
virkni á vinnumarkaði, verja af-
komuöryggi og leggja grunn að
kraftmikilli endurreisn,“ segir á
vef Samfylkingarinnar. Hún met-
ur kostnað við viðbótarúrræðin
sex sem lögð eru til ígildi 3% at-
vinnuleysis eða 18 milljarða
króna.
Vilja tvöfaldan persónuafslátt
- Tímabundið úrræði - Samfylkingin kynnti sex tillögur
Morgunblaðið/Eggert
Pakki Frá kynningu tillagna í gær.
Kjartan Magnússon hefur ákveðið
að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík fyrir
komandi alþingiskosningar í haust.
Kjartan óskar eftir stuðningi í 3.-4.
sæti í prófkjörinu, sem fram fer
helgina 4. og 5. júní.
Kjartan varð borgarfulltrúi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn árið 1999 og sat
í borgarstjórn til ársins 2018. Hann
var í borgarráði síðari hluta þess
tíma, formaður Menntaráðs og
Íþrótta- og tómstundaráðs og var
um hríð stjórnarformaður Orku-
veitu Reykjavíkur.
Undanfarin ár
hefur Kjartan
starfað á vegum
Evrópuráðsins í
Strassborg, þar
sem hann gegndi
framkvæmda-
stjórastörfum
stjórnarnefndar
hjá Héraðs- og
sveitarstjórna-
þingi Evrópu-
ráðsins, sem Ísland á aðild að.
Kjartan er 53 ára gamall Reyk-
víkingur og á þrjú börn.
Kjartan Magnússon sækist
eftir 3.-4. sæti í Reykjavík
Kjartan
Magnússon