Morgunblaðið - 13.05.2021, Side 10

Morgunblaðið - 13.05.2021, Side 10
DAGMÁL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice- landair Group, segir miklar áskor- anir fylgja því að reka íslenskt flug- félag. Það birtist m.a. í ákvæðum þeirra kjarasamninga sem sam- þykktir hafa verið á síðustu árum. „[…] launahækkanir hér á Íslandi hafa verið, leyfi ég mér að segja, al- gjörlega út úr kortinu miðað við samkeppnislöndin. Síðustu tólf mán- uði hafa þetta verið ríflega 10% á ársgrundvelli meðan við erum að horfa upp á núll til tvö prósent hjá samkeppnislöndunum. Þannig að þetta verður alltaf mjög krefjandi verkefni fyrir íslensk fyrirtæki að standa í þessari samkeppni en við erum að vinna í þessu módeli, þessu íslenska módeli þannig að tekju- módelið verður að endurspegla það.“ Viðskiptalíkan sem virkar Bogi Nils, sem er gestur í Dag- málum á mbl.is, segir að þótt þessi staða sé uppi sé framtíð Icelandair Group björt. Reynslan hafi sýnt að viðskiptalíkan félagsins hafi virkað vel og flest bendi til að það eigi ekki síður við þegar litið sé til framtíðar. Spurður út í kjarasamningana sem Icelandair undirritaði við flug- stéttir sínar í aðdraganda hlutafjár- útboðs í september í fyrra, segir Bogi Nils að þeir hafi aukið hag- kvæmni félagsins til muna. Félagið sé sátt við lendinguna sem náðst hafi í viðræðunum. Hins vegar þurfi alltaf að hafa í huga að Icelandair sinni flugþjónustu sem teygi sig yfir mörg tímabelti og það setji nýtingu áhafna talsverðar skorður. Tekur hann sem dæmi að nýting Ryanair á áhöfnum sínum sé meiri en hjá Ice- landair. Það væri hins vegar ekki staðan ef félagið sinnti þjónustu sem teygði sig yfir til Bandaríkjanna eins og í tilviki Icelandair. Munu ekki semja við aðra Greint hefur verið frá því að nýtt lággjaldaflugfélag, Play, muni hefja starfsemi í lok júní. Félagið mun hafa gert kjarasamninga við Ís- lenska flugstéttafélagið og hefur því verið fleygt að þeir samningar séu talsvert hagstæðari fyrir atvinnu- rekandann en þeir sem Icelandair hefur. Mun þar t.d. ekki vera stuðst við svokallaða starfsaldurslista við ráðningar eins og gert er þegar kemur að ráðningarmálum flug- manna hjá Icelandair. Bogi Nils segir ekki koma til greina að semja við önnur stéttarfélög en Félag ís- lenskra atvinnuflugmanna og Flug- freyjufélag Íslands. Bogi er í Dagmálum spurður út í hvort hann telji óheppilegt að nýtt flugfélag, undir merkjum Play, skuli skjóta upp kollinum nú, þegar Ice- landair vinnur að því að ná vopnum sínum eftir tvö stóráföll, kórónuveir- una og kyrrsetningu MAX-vélanna. Segir hann þvert á móti að félagið fagni samkeppninni. Hún sé hvetj- andi, ekki síst í ljósi þess að stefnt er að skráningu Play á markað. Hægt að horfa til Dublin Hann segist vera á þeirri skoðun að hægt sé að reka tvö íslensk flug- félög eða fleiri. Hann er hins vegar efins um að tvö slík félög geti reynst sjálfbær til lengri tíma ef þau byggi á sama viðskiptalíkaninu, þ.e. að tengja saman markaðina vestanhafs og austan. „Við getum horft á Dublin sem er með kjöraðstæður fyrir rekstur svona tekjumódels. Þar er eitt félag, Air Lingus, en mörg stór félög sem eru að fljúga ótt og títt og Ryanair er einnig þarna.“ Líkt og fram hefur komið hyggur Play á að byggja upp starfsemi með svipuðum áherslum og Icelandair en áætlanir þess gera ráð fyrir að flug til Bandaríkjanna hefjist ekki fyrr en í lok þessa árs eða byrjun þess næsta. Launahækkanirnar út úr kortinu - Forstjóri Icelandair segir keppinauta félagsins takast á við 0-2 prósenta launahækkanir - Segir ólíklegt að hægt verði að reka tvö sjálfbær flugfélög á grunni sama módels hér á landi Áskoranir Icelandair Group hefur staðið frammi fyrir mörgum stórum áskorunum frá árinu 2018. Bogi Nils ræðir stöðuna á flugmarkaðnum í Dagmálum. Hann telur Icelandair búið að snúa vörn í sókn og að framtíðin sé björt. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021 Húsnæðið er vandað í alla staði, steypt og álklætt og skiptist í tvær samliggjandi skrif- stofubyggingar á tveimur hæðum. Jarðhæðin er 1.623,7 fm og önnur hæðin er 1.456,3 fm. Tæknirými er 150,5 fm. Rúmgott mötuneyti er á 2. hæð með útgengi út á þakgarð. Lóðin fyrir framan húsið ermalbikuð og vel frá gengin, fjöldi bílastæða eru við húsið. Margir inngangar eru og er lyfta til staðar. Eignin er á 5.075 fm lóð. Leiga á húsnæðinu að hluta eða í heild kemur einnig til greina. Tilboð óskast. Síðumúli 13 108 Reykjavík S. 577 5500 atvinnueign.is Fasteignamiðlun KORNGARÐAR 2 - SKRIFSTOFU- OG ÞJÓNUSTUHÚSNÆÐI Halldór Már Sverrisson Viðskiptafræðingur Löggiltur fasteignasali Löggiltur leigumiðlari 898 5599 halldor@atvinnueign.is Kynnum í einkasölu heildareignina við Korngarða 2, 104 Reykjavík, samtals 3.230,5 fm.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.