Morgunblaðið - 13.05.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 13.05.2021, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021 Eyjatónleikarnir verða með nýju sniði á laugardaginn kemur, 15. maí, í beinu streymi frá Hörpu. Yfirskriftin er Á sama tíma – á sama stað. Þar verða fluttar margar vinsælar perlur íslenskrar dægurtónlistar. „Þetta eru tíundu tónleikarnir okk- ar,“ segir Bjarni Ólafur Guðmunds- son tónleikahaldari. „Heimsfarald- urinn setti strik í reikninginn og þess vegna varð meðgangan svolítið lengri nú en áður.“ Hann segir alla, hvar sem er í heiminum, geta notið tón- leikanna í gegnum streymi. „Við tökum vinsælustu þjóðhátíð- arlögin en líka vinsæl lög sem lista- mennirnir hafa flutt. Þetta verða sannkallaðir sumartónleikar. Flestir listamennirnir hafa komið fram á Þjóðhátíð eða sungið þjóðhátíðarlög og sumir samið þjóðhátíðarlög.“ Jón Jónsson, Friðrik Dór, Ingó Veðurguð, Sigga Beinteins, Matti Matt, Katrín Halldóra og Alexander Jarl syngja ásamt Kristjáni Gísla og Ölmu Rut. Jón Ólafsson er hljóm- sveitarstjóri. Logi Bergmann kynnir. Miðar fást á harpa.is og kosta 3.900 krónur. Bjarni Ólafur hvatti fólk til að kaupa miða sem fyrst og að virkja að- ganginn strax til að tryggja að allt virki rétt. gudni@mbl.is Sumartónleikar í beinu streymi - Þekktir listamenn flytja vinsæl lög Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Miklar hræringar eru nú á veit- ingamarkaði í miðborg Reykjavíkur. Eftir erfiða tíma síðasta árið og rúmlega það sjá nú margir tækifæri vera að opnast á ný. Útlit er fyrir að samkomutakmarkanir verði rýmk- aðar hratt á næstunni og ferðamenn eru farnir að streyma til landsins. „Núna eru líka loksins farnir að sjást leigusamningar sem eru hugs- anlega í lagi. Hér hefur leiguverð verið allt uppskrúfað enda standa víða rými auð eða þar er rekstur sem er ekki að ganga,“ segir Jón Mýrdal Harðarson veitingamaður. Jón er einn þeirra sem sér tæki- færi í ástandinu og hyggst opna nýj- an stað í byrjun júní. Sá hefur fengið nafnið Skuggabaldur og verður kaffihús á daginn en djassbúlla á kvöldin. Skuggabaldur verður við Austurvöll, í húsnæði þar sem Kaffi- brennslan var lengi rekin. Tónlist- armaðurinn Snorri Helgason verður Jóni til halds og trausts í rekstrinum og sér um að bóka tónleika á Skuggabaldri. Búast má við því að aukið líf fær- ist í stemninguna á Austurvelli í sumar. Auk djassbúllunnar nýju stendur til að endurvekja veitinga- og skemmtistaðinn á Hótel Borg og verður sjálfur Helgi Björns í brúnni þar. Þá má búast við því að líflegt verði utandyra við Austurvöll enda verður útisvæði við nokkra veit- ingastaði stækkað eftir að frægur grjótveggur var tekinn niður. Skandinavísk stemning Nýr bar verður opnaður á Skóla- vörðustíg í byrjun júlímánaðar. „Þetta verður krúttlegur skandi- navískur staður,“ segir Magnús Már Kristinsson veitingamaður sem opn- ar staðinn ásamt félaga sínum, Vil- hjálmi Kristjánssyni. Nýi staðurinn hefur ekki enn fengið nafn en hann verður á Skóla- vörðustíg 8 þar sem Reykjavík Sportbar var áður til húsa. Sá hefur verið fluttur á Hverfisgötu. „Við verðum auðvitað með góðan bjór en ætlum nú að fara meira út í kokteila. Við erum flinkir í að setja vökva á kúta og munum einbeita okkur að kokteilum á krana. Þetta verður svolítið öðruvísi en verið hef- ur annars staðar því við munum nota nítró-gas til að dæla þeim. Það mun koma kokteilbarþjónum á óvart að það þarf ekki að hrista drykkina. Einn vinsælasti drykkur borg- arinnar, Espresso Martini, kemur til dæmis beint af dælu í glasið með froðu,“ segir Magnús. Hann segir að nýi barinn verði samkomustaður fyrir fullorðið fólk. Þar verði falleg skandinavísk húsgögn og listaverk á veggjum. „Þetta verður ekki skemmtistaður, þarna getur fólk komið og hitt vini sína og félaga. Við ættum að geta opnað fyrstu helgina í júlí, í seinasta lagi.“ Fleiri nýir staðir verða opnaðir á sama svæði í sumar. Birgitta Líf Björnsdóttir hefur tekið við hús- næðinu þar sem b5 var rekinn í Bankastræti um árabil og hyggur á opnun skemmtistaðar. Við Lauga- veg 12, þar sem Le Bistro var áður, undirbúa þeir Arnór Bohic og bar- þjónninn Orri Páll Vilhjálmsson opnun veitingastaðarins Botanica þar sem suðuramerískir straumar verða áberandi í mat og drykk. Perú mætir Japan í Hjarta- garði Skammt undan er húsnæði gamla Skelfiskmarkaðarins. Þar verður veitingastaðurinn Monkeys Reykja- vík opnaður í lok júní og lítill kok- teilbar við hlið hans. „Nýr húseig- andi hafði samband við okkur og við vildum auðvitað passa að það kæm- ust ekki aðrir rebbar inn í hænsna- kofann. Stundum er sókn besta vörnin,“ segir Arnar Þór Gíslason, einn aðstandenda. Á Monkeys Reykjavík verður jap- önskum matreiðsluhefðum blandað við matarhefðir frá Perú og reiddir fram spennandi smáréttir. „Við er- um með hörkugaura í hverri stöðu og spennandi matseðil. Svo verðum við með útiborð í Hjartagarðinum og spennandi kokteilbar í gamla Sirk- ushúsinu,“ segir Arnar. Bjórinn flæðir á Snorrabraut Þar með er ekki allt talið því eins og kom fram í Morgunblaðinu í byrj- un vikunnar hyggja Ólafur Örn Ólafsson veitingamaður og félagar hans á Vínstúkunni Tíu sopum á opnun þriggja nýrra staða í sumar; Ó-le í Hafnarstræti, Brút í Póst- hússtræti og Bruggstofunnar við Snorrabraut en sá síðastnefndi verð- ur í samstarfi við RVK Brewing. Líf færist í veitingabransann - Margir nýir barir og veitingastaðir opnaðir í miðborg Reykjavíkur á næstunni - Leiguverð lækkar og ferðamenn snúa aftur - „Sókn er besta vörnin“ Morgunblaðið/Eggert Líflegt Búast má við góðu sumri hjá veitingamönnum í miðborginni. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skandinavía Magnús Már og Vilhjálmur opna nýjan bar á Skólavörðustíg 8. Jón Mýrdal Harðarson Arnar Þór Gíslason 13. maí 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.0 Sterlingspund 175.45 Kanadadalur 102.47 Dönsk króna 20.293 Norsk króna 15.046 Sænsk króna 14.922 Svissn. franki 137.49 Japanskt jen 1.1423 SDR 178.9 Evra 150.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 181.2543 Hrávöruverð Gull 1837.15 ($/únsa) Ál 2565.0 ($/tonn) LME Hráolía 68.74 ($/fatið) Brent Þjónusta á uppstigningardegi Fréttaþjónusta verður á mbl.is í dag, hægt er að senda ábendingar um fréttir á net- fangið netfrett@mbl.is. Vakt- sími mbl.is er 669-1200. Morgunblaðið kemur út á morgun en áskriftarþjónustan er opin í dag kl. 8-12 og verður aftur í boði í fyrramálið kl. 7. Síminn 569-1100. Auglýsingadeildin er lokuð í dag. Hægt er að bóka dánar- tilkynningar á mbl.is. Sauðfé fækkaði um 3,4% á milli áranna 2019 og 2020 samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í gær. Holdakúm fjölgaði hins vegar um 14% á milli ára, úr 2.891 í 3.295 og fullorðnum svínum fækk- aði um 3%. Alls var fjöldi sauðfjár 401.022 í lok síðasta árs en var 415.949 í lok ársins 2019. Um fjórðungur alls sauðfjár var á Norðurlandi vestra. Nautgripir voru 80.643 í lok ársins 2020 en voru 80.872 í lok ársins 2019. Hross voru 58.466 talsins. Varphænsni voru 203.643 í lok síð- asta árs en 205.079 árið 2019. Þá má nefna að aliminkar voru 12.903 talsins í lok síðasta árs og 81 kanína. Sauðfé fækkar en holdakúm fjölgar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.