Morgunblaðið - 13.05.2021, Qupperneq 28
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vegagerðin hyggt á næstu vikum
bjóða út tvö viðamikil verk í Skaft-
árhreppi. Um er að ræða nýjar tví-
breiðar brýr yfir Hverfisfljót og
Núpsvötn og tilheyrandi vegagerð.
Verkin verða boðin út saman.Tæpir
17 kílómetrar eru á milli þessara
tveggja vatnsfalla. Búist er við að
framkvæmdir hefjist á árinu 2021 og
að umferð verði hleypt á nýju brýrnar
haustið 2022.
Nýju brýrnar munu leysa af hólmi
einbreiðar brýr á Hringvegi, þar sem
mörg alvarleg bílslys hafa orðið. Um-
ferðaröryggi á svæðinu mun stórauk-
ast við þessar framkvæmdir.
Umferð hefur farið vaxandi á und-
anförnum árum vegna fjölgunar er-
lendra ferðamanna. Skipulagsstofnun
hefur tekið þá ákvörðun að þessar
framkvæmdir þurfi ekki að fara í um-
hverfismat, enda hafi framkvæmda-
svæðum áður verið raskað við fyrri
vegaframkvæmdir.
Vegagerðin hefur kynnt opin-
berlega fyrirhugaðar framkvæmdir
við nýja 150 metra langa tvíbreiða brú
á Hringvegi (1) um Núpsvötn í Skaft-
árhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu. Í
tengslum við byggingu nýrrar brúar
verður Hringvegurinn endurbyggður
í nýrri legu á um tveggja kílómetra
löngum kafla. Nýja brúin verður
norðan við núverandi brú og færist
veglína Hringvegarins u.þ.b. 100
metra til norðurs, þar sem mest er.
Kostar rúman milljarð
Búist er við að verktakakostnaður
við byggingu brúar á Núpsvötn,
ásamt vegtengingum, verði rúmlega
1.000 milljónir króna. Framkvæmd-
irnar verða fjármagnaðar á sam-
gönguáætlun, með sérstakri fjár-
mögnun Vegagerðarinnar eða hvort
tveggja. Vegna umfangs verksins má
reikna með að nokkur fjöldi starfa
skapist á framkvæmdartíma. Reikna
má með um 20 störfum í um níu mán-
uði vegna brúar- og vegavinnu á
svæðinu.
Í greinargerð kemur fram að nýja
brúin yfir Núpsvötn verði grunduð á
steyptum staurum sem reknir verða
niður í árfarveginn. Samtals þarf að
reka niður staura á um 200 stöðum og
þar sem staurarnir eru tvískiptir
verði um að ræða u.þ.b. 400 staura
sem hver er 10-12 metra langur.
Tilboð í framleiðslu og flutning á
steyptum niðurrekstrarstaurum fyrir
brú á Núpsvötn voru opnuð 6. apríl sl.
Eitt tilboð barst, frá Steypustöðinni
ehf. í Borgarnesi. Hljóðaði það upp á
krónur 68.046.294, sem var 91% af
kostnaðaráætlun, sem var tæpar 75
milljónir króna.
Sökklar og stöplar nýju brúarinnar
verða steyptir landstöplar í báðum
endum brúarinnar og fjórir stöplar á
milli þeirra.Yfirbygging verður
steypt. Brúin verður tvíbreið og
hönnuð fyrir 90 km/klst. hámarks-
hraða. Hún verður 10 metra breið
með níu metra breiðri akbraut og 0,5
metra breiðum bríkum.
Einnig verður byggður nýr áning-
arstaður vestan Núpsvatna. Á þess-
um stað er fallegt útsýni í vesturátt
að Lómagnúpi og austurátt að
Öræfajökli og því er nauðsynlegt talið
að byggja nýjan öruggan áning-
arstað. Enginn áningarstaður er við
núverandi brú en ökumenn hafa
freistast til að stoppa í vegköntum og
taka myndir. Hönnun áningarstað-
arins tekur mið af nýjum áningarstað
sem fyrirhugaður er við Hverfisfljót.
Gert er ráð fyrir stæðum fyrir rútu,
húsbíla og 10 fólksbíla, þar af einu
stæði fyrir hreyfihamlaða. Með nýj-
um áningarstað verður sköpuð
öruggari aðstaða fyrir vegfarendur til
að njóta útsýnisins.
Gamla brúin yfir Núpsvötn verður
látin standa til að byrja með en mok-
að frá henni við báða enda. Til fram-
tíðar er litið til þess að rífa brúna,
reyndar ásamt fleiri brúm en það er
verulega kostnaðarsamt að rífa hana.
Þarf sérstaka fjárveitingu til þess,
upplýsir G. Pétur Matthíasson, upp-
lýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.
Skipulagsstofnun hefur tekið
ákvörðun um að breytingar á Hring-
vegi um Núpsvötn í Skaftárhreppi
skuli ekki háðar mati á umhverfis-
áhrifum. Almenningur getur kynnt
sér niðurstöðuna á skipulag.is.
Ákvörðunina má kæra til úrskurð-
arnefndar umhverfis- og auðlinda-
mála og er kærufrestur til 7. júní.
Sem fyrr segir verða þessi tvö
verkefni boðin út saman. Skipulags-
stofnun hefur áður úrskurðað um
brúna yfir Hverfisfljót. Morgunblaðið
fjallaði ítarlega um hana 21. nóvem-
ber 2020. Sú brú verður 74 metrar að
lengd.
Alræmd slysabrú aflögð
- Vegagerðin hyggst á næstu vikum bjóða út smíði á nýrri brú yfir Núpsvötn - Samtímis verður
boðin út smíði á brú yfir Hverfisfljót - Munu þær leysa af hólmi einbreiðar og hættulegar brýr
Ljósmynd/Vegagerðin
Brúin yfir Núpsvötn Brúin er 420 metra löng og einbreið, byggð árið 1973. Hún stenst ekki nútímaöryggiskröfur og því er talin mikil þörf á nýrri brú.
Ný brú yfir Núpsvötn og færsla hringvegar
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Færsla vegar um
100 m til norðurs
Ný 150 m löng
tvíbreið brú
Skaftafell
Núpsvötn
Kirkjubæjarklaustur
Ló
m
ag
nú
pu
r
Skeiðarársandur
Núverandi vegur og
einbreið brú frá 1973
1
Nýr áningarstaður
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021
Núverandi einbreið brú yfir Núps-
vötn er 420 metra löng stálbitabrú
með timburgólfi og var byggð árið
1973. Eftir að Súla hætti að renna í
Núpsá og færðist yfir í Gígjukvísl
eru hlaup hætt að koma í Núps-
vötn. Því er ekki lengur talin þörf á
svo langri brú, að mati Vegagerð-
arinnar. Frá aldamótum hafa alls
orðið 13 slys við brúna yfir Núps-
vötn. Þar af var eitt slys í desem-
ber 2018 þar sem þrír létust og
fjórir slösuðust þegar jeppabifreið
var ekið út af brúnni. Þetta voru
breskir ríkisborgarar af indversk-
um uppruna.
Mörg alvarleg slys hafa orðið
NÚVERANDI BRÚ VAR BYGGÐ ÁRIÐ 1973
Ljósmynd/Adolf Ingi Erlingsson
Slysið 2018 Aðkoma á slysstað var skelfileg. Nær 50 manns komu að hjálparstarfi.
PORSCHE CAYENNE – RN. 153690
Nýskráður 10/2014, ekinn 108 þ.km., dísel, grár,
sjálfskiptur, hiti í sætum, hraðastillir, túrbína, USB,
fjarlægðarskynjarar að framan, dráttarkrókur.
Verð 5.890.000 kr.
MERCEDES-BENZ GLS 350 4MATIC – RN. 340419
Nýskráður 4/2017, ekinn 13 þ.km. dísel, svartur,
sjálfskipting, hraðastillir, 360° myndavél, litað gler,
topplúga, bluetooth, GPS, dráttarkrókur, o. fl.
Verð 14.500.000 kr.
VW GOLF GTE PLUG IN HYBRID COMFORT
RN. 331250. Nýskráður 3/2020, ekinn 11 þ.km.,
bensín/rafmagn, hvítur, sjálfskipting, hraðastillir,
360° nálgunarvarar, akreinavari, bluetooth, HDMI.
Verð 4.890.000 kr.
MERCEDES-BENZ C300 DE AMG PLUG IN HYBRID
RN. 153592. Nýskráður 11/2019, ekinn 27 þ.km.,
dísel/rafmagn, svartur, sjálfskipting, 9 gíra, GPS,
bluetooth, bakkmyndavél, litað gler, túrbína.
Verð 7.490.000 kr.
OKKUR VANTAR ALLAR
GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!
Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is