Morgunblaðið - 13.05.2021, Page 30

Morgunblaðið - 13.05.2021, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Afurðaverð á markaði 11. maí 2021, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 261,03 Þorskur, slægður 249,91 Ýsa, óslægð 272,16 Ýsa, slægð 273,46 Ufsi, óslægður 92,72 Ufsi, slægður 131,23 Djúpkarfi 158,09 Gullkarfi 191,63 Blálanga, slægð 21,19 Langa, óslægð 136,71 Langa, slægð 90,55 Keila, óslægð 34,63 Keila, slægð 63,00 Steinbítur, óslægður 90,42 Steinbítur, slægður 131,04 Skötuselur, slægður 10,00 Skarkoli, óslægður 128,48 Skarkoli, slægður 233,04 Þykkvalúra, slægð 606,77 Langlúra, óslægð 202,00 Langlúra, slægð 112,00 Sandkoli, óslægður 156,00 Sandkoli, slægður 165,00 Bleikja, flök 1.425,55 Gellur oslaegt 556,47 Grásleppa, óslægð 12,95 Hlýri, óslægður 16,88 Hlýri, slægður 131,53 Hrogn/langa 21,00 Hrogn/þorskur 15,00 Lúða, slægð 545,93 Lýsa, óslægð 23,20 Lýsa, slægð 65,00 Rauðmagi, óslægður 3,82 Skata, óslægð 51,00 Skata, slægð 47,87 Stóra brosma, óslægð 10,00 Stóra brosma, slægð 19,00 Stórkjafta, slægð 106,82 Undirmálsýsa, óslægð 183,00 Undirmálsýsa, slægð 61,31 Undirmálsþorskur, óslægður 146,59 Undirmálsþorskur, slægður 200,91 Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is Það var rólegt á höfninni á Raufar- höfn þegar blaðamaður Morgun- blaðsins sló á þráðinn í gær til Gunnars Páls Baldurssonar hafn- arvarðar. „Það má segja að síðustu bátarn- ir séu nú að taka upp grásleppu- netin í dag og á morgun,“ sagði Gunnar Páll. „Svo eru menn að búa sig á strandveiðar, aðrir eru byrjaðir. Jú jú, menn eru að fá skammtinn, það er svo sem frekar óvanalegt á þessu svæði.“ Fjórir strandveiðibátar róa eins og er frá Raufarhöfn en gera má ráð fyrir töluvert meiri fjölda þegar líð- ur á sumarið. Iðulega er mikið líf á höfninni á Raufarhöfn á sumrin. „Nanna Ósk er að draga restina af sínum grásleppunetum, Björn Hólm- steinsson ÞH á eftir að fara í einn róður á grásleppu held ég,“ segir Gunnar Páll. Mok við Kópasker Kristinn ÞH-163 sem er með heimahöfn á Raufarhöfn hefur landað í nokkra daga á Kópaskeri. Óhætt er að segja að aflinn sé góður en frá því að þeir færðu sig til Kópaskers hefur meðalafli verið um sex tonn af vænum vorþorski. Tveir strandveiðibátar róa frá Kópaskeri, Helga Sæm og Snarti, sem ekki virðast vera í vandræðum með að ná skammtinum. „Þeir ná ekki einu sinni að hella upp á kaffi, það er svo stutt á mið- in,“ segir vanur sjómaður sem er kunnugur staðháttum í samtali við Morgunblaðið. Ljósmynd/Gunnar Páll Baldursson Grásleppuvertíðin Síðustu grásleppunetin eru tekin upp í dag á Raufarhöfn. Menn búa sig undir strandveiðar. Síðustu grásleppunetin tekin upp fyrir norðan - Stutt á miðin og mokveiði frá Hellunni við Kópaskersvita Loðnuvinnslan hf. (LVF) og Skag- inn 3X sömdu nýlega um nýtt vinnslukerfi fyrir frystihús Loðnu- vinnslunnar á Fáskrúðsfirði. Það mun bæði auka sjálfvirkni og af- kastagetu Loðnuvinnslunnar. Af- kastagetan mun aukast um allt að 400 tonn á sólarhring sem er um 70% afkastaaukning frá því sem nú er. Nýja kerfið er hannað til að framleiða hágæðavöru á sem hag- kvæmastan hátt, samkvæmt frétta- tilkynningu frá Skaganum 3X. Sérhæft í uppsjávarfiski Frystihús Loðnuvinnslunnar er sérhæft til að vinna uppsjávarfisk, það er loðnu, síld og makríl. „Loðn- an er heilfryst á markaði í Austur- Evrópu og Asíu en einnig eru hrogn unnin fyrir sömu markaði,“ segir í tilkynningunni. Vinnsla uppsjávarafla er háð árs- tíðabundnum veiðum og skiptir því miklu að geta nýtt auðlindina á réttum tíma og með réttum aðferð- um. Skaginn 3X segir að tækni- lausnir fyrirtækisins séu hannaðar til að viðhalda gæðum vörunnar og ná þannig hámarksafrakstri í vinnslu. Með þessum endurbótum verði Loðnuvinnslan mun betur í stakk búin til að nýta auðlindina sem best á næstu vertíðum. Uppsjávarkerfin frá Skaganum 3X eru afar skilvirk. Þessi tækni hefur þjónað nokkrum stærstu upp- sjávarvinnslum í heiminum. Þjarkar auka á sjálfvirkni Í nýja kerfinu sem verður sett upp hjá Loðnuvinnslunni er poka- kerfi, nýir plötufrystar og sjálfvirkt brettakerfi. Búnaðurinn verður tengdur vélum sem fyrir eru og nýjum búnaði frá öðrum framleið- endum. Þar á meðal eru þjarkar sem auka enn á sjálfvirknina í frystihúsinu. „Skaginn 3X hefur mikla reynslu í hönnun og uppsetningu á stórum heildarkerfum fyrir uppsjávar- vinnslu. Það tók því ekki langan tíma fyrir þrjá sérfræðinga fyrir- tækisins að hanna kerfið fyrir LVF. Þeir mættu austur, teiknuðu kerfið upp á staðnum og tæpum mánuði seinna var samningur undirrit- aður,“ segir enn fremur í tilkynn- ingunni. gudni@mbl.is Samið um nýtt vinnslukerfi - Loðnuvinnslan og Skaginn 3X Ljósmynd/Skaginn 3X Samningur F.v.: Þorri Magnússon LVF, Friðrik Mar Guðmundsson LVF, Ingvar Vilhjálmsson Skaginn 3X, Steinþór Pétursson LVF, Einar Brands- son Skaginn 3X og Rúnar Björn Reynisson Skaginn 3X.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.