Morgunblaðið - 13.05.2021, Side 32
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Víninnflytjendur sem Morgunblaðið
ræddi við um sölu á víni í gegnum
netið, beint til viðskiptavina, í gegn-
um erlenda netverslun, líkt og San-
te.is er byrjuð að gera, segja að
framtakið sé spennandi og þeir
fylgist vel með framvindunni.
Þeir sem kaupa vín í netversl-
uninni Sante.is kaupa í raun vöruna
af franskri netverslun sem heldur
úti vörulager hér á landi. Arnar
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
franska fyrirtækisins Santewines
SAS, sem rekur vefverslunina, seg-
ir að framtakið sé allt í samræmi
við lög og reglugerðir hér á landi,
þó svo að Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins hafi einkaleyfi á smásölu
áfengis hér á landi.
Fara ekki sömu leið
Jón Erling Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri víninnflytjandans
Mekka Wine & Spirits, segir í sam-
tali við Morgunblaðið að fyrirtækið
sé ekki með neinar áætlanir um að
feta sömu leið og Sante hefur nú
gert. „Enda er ég nokkuð viss um
að þetta sé ólöglegt,“ segir Jón Er-
ling.
Hann segir málið þó athyglisvert.
Ljóst sé að ef komi á daginn að sal-
an sé lögleg, spretti upp vefversl-
anir með vín um allt land. „Það er
alveg ljóst að ekki eitt einasta vín-
fyrirtæki muni sitja með hendur í
skauti ef svo fer. Það sama myndi
eiga við um matvöruverslanir sem
allar myndu byrja að bjóða það
sama.“
Í því ljósi má rifja upp ummæli
Árna Péturs Jónssonar, forstjóra
Skeljungs, á vb.is á síðasta ári þar
sem hann segir félagið vilja vera
undir það búið ef netverslun með
áfengi verður gerð heimil hér á
landi. Í sömu frétt kom fram að
Skeljungur hefur sótt um skrán-
ingu á vörumerkinu Ríkið hjá Hug-
verkastofu, sem vefverslun með
áfengi.
Smásölurisinn Hagar er nú þegar
stórtækur í innflutningi á víni en
fyrirtækið áætlaði í fjárfestakynn-
ingu á síðasta ári að áfengissala
Vínfanga, sem eru hluti af Aðföng-
um, dótturfélagi Haga, næmi 750
milljónum króna árið 2020. Í sömu
kynningu fagnaði félagið lagafrum-
varpi um innlenda netsölu áfengis
þar sem ýmis tækifæri fælust í
slíkri verslun.
Myndu fara sambærilega leið
Birkir Ívar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Vínness, sem flytur
inn margar gerðir bjórs og víns,
segir að fyrirtækið muni klárlega
fara sömu leið, fari svo að yfirvöld
bregðist ekki við. „Þá hlýtur þetta
að vera löglegt og við myndum fara
einhverja sambærilega leið.“
Agnes Anna Sigurðardóttir, eig-
andi brugghússins Kalda á Ár-
skógssandi, segist ætla að bíða og
sjá hvernig þetta þróast. „En ef
þetta er löglegt þá er þetta mjög
sniðugt. En ég stekk ekki hæð
mína af fögnuði strax. Í mínum
huga er ÁTVR sá eini sem má
dreifa víni í dag.“
Vínbúðin lögleg
Eins og sagt var frá í Morgun-
blaðinu í gær hefur Santewines
SAS sent kvörtun til Neytendastofu
undan því að Áfengis- og tóbaks-
verslun ríkisins noti heitið Vínbúðin
um starfsemi sína. Hún eigi sér
enga stoð í lögum og brjóti lög um
viðskiptahætti og markaðssetningu.
Sigrún Ósk Sigurðardóttir, að-
stoðarforstjóri ÁTVR, segir í skrif-
legu svari að ÁTVR hafni því að
notkun fyrirtækisins á auðkenninu
„vínbúðin“ feli í sér brot gegn lög-
um, eins og nánar verði rökstutt,
taki Neytendastofa kvörtun þess
efnis til formlegrar meðferðar.
Víninnflytjendur
fylgjast með Sante
Morgunblaðið/Heiddi
Vín Áfengis- og tóbaksverslun ríksins hefur einkarétt á smásölu áfengis.
- Aðstoðarforstjóri ÁTVR hafnar því að fyrirtækið brjóti lög
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Búið er að leigja út um 85% af nýju
atvinnurými í Sunnukrika 3 í Mos-
fellsbæ. Atvinnurýmið er tæplega
3.800 fermetrar á tveimur hæðum.
Daníel Þór Magnússon, sjóðstjóri
hjá Gamma, segir Nettó og Apótek-
arann hafa leigt rými á jarðhæðinni
ásamt Kjötbúðinni. Á annarri hæð
hafi heilsugæslan leigt samsvarandi
rými og Nettó á jarðhæð. Eftir sé
óleigt rými á annarri hæð sem svari
til 15% flatarmálsins. Horft sé til
heilsutengdrar starfsemi í því rými,
til dæmis sjúkraþjálfunar.
„Heilsugæslan er búin að opna en
vegna kórónuveirufaraldursins hef-
ur ekki verið formleg opnun. Apó-
tekarinn opnaði samhliða heilsu-
gæslunni og svo verður Nettó opnað
í byrjun júní,“ segir Daníel Þór.
Íbúafjölgun skapar tækifæri
„Þessi eftirspurn eftir atvinnu-
rými segir okkur fyrst og fremst að
Mosfellsbær er ört stækkandi
bæjarfélag. Íbúum þar hefur fjölgað
hlutfallslega örast í þeim bæjar-
félögum sem við höfum haft til skoð-
unar,“ segir Daníel Þór. Íbúar Mos-
fellsbæjar voru 9.134 í byrjun árs
2016 en 12.227 í byrjun þessa árs
sem er ríflega 33% íbúafjölgun.
Jafnframt eru um 950 fermetrar
af íbúðarhúsnæði á hæðum þrjú til
sex í vesturbyggingunni í Sunnu-
krika 3, alls 11 íbúðir. Þær fóru í sölu
síðustu helgi og hefur mikill áhugi
verið á íbúðunum, að sögn Daníels
Þórs. Íbúðirnar hafi þá sérstöðu á
markaðnum að þær séu settar á sölu
fullbúnar og því möguleiki að flytja
strax inn.
Íbúðirnar afhendist með gólf-
efnum, ísskáp og uppþvottavél. Frá
öllum hæðum sé gott útsýni til Esj-
unnar og fellanna í kring.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýbygging Atvinnurýmið er á hæðum 1 og 2 og íbúðir á efri hæðum.
Ásókn í rými í
Sunnukrikanum
- Búið að leigja út 85% af atvinnurými
Íbúðir Mikið útsýni er á efri hæðum.
SÓLGLERAUGU
frá Aspinal of London
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Tryggingafélagið Sjóvá hagnaðist um 2.065 milljónir á fyrsta fjórðungi
ársins, samanborið við 465 milljóna króna tap yfir sama tímabil í fyrra.
Hagnaður af vátryggingastarfsemi jókst og nam 556 milljónum, saman-
borið við 185 milljónir í fyrra, og fjárfestingastarfsemin sneri við blaðinu.
Hagnaður af henni nam 1.652 milljónum, en tap varð af henni í fyrra sem
nam 552 milljónum.
Rekstrarkostnaður félagsins dróst saman milli ára. Nam nú 1.178 millj-
ónum en nam 1.203 milljónum yfir sama fjórðung í fyrra.
Samsett hlutfall batnaði verulega og reyndist 91,4%, samanborið við
98,5% yfir sama tímabil 2020.
Sjóvá hagnast um 2.065 milljónir