Morgunblaðið - 13.05.2021, Qupperneq 33
FRÉTTIR 33Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Leiðtogar helstu stórvelda heims
hvöttu til stillingar í átökum Ísraels og
Palestínumanna, en óttast var að þau
gætu leitt til „allsherjarstríðs“ fyrir
botni Miðjarðarhafs. Rúmlega sextíu
manns hafa nú látist í átökunum og
rúmlega 300 hafa særst.
Vígamenn Hamas-samtakanna, sem
nú ráða ríkjum á Gaza-svæðinu, hafa
skotið rúmlega þúsund eldflaugum á
Ísrael að sögn ísraelska flughersins,
sem hefur á móti gert hundruð loft-
árása á Gaza-svæðið. Benny Gantz,
varnarmálaráðherra Ísraels, hét því í
gær að loftárásum gegn Hamas og
öðrum samtökum íslamista á svæðinu
myndi ekki linna fyrr en hægt yrði að
tryggja „algjöran og langvarandi frið“.
Sérstök skylda á Ísrael
Að minnsta kosti 56 Palestínumenn
hafa látist í loftárásum Ísraelsmanna á
Gaza-svæðið, þar af 14 börn. Antony
Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, sagði í gær að Ísraelsmönnum
bæri sérstök skylda til að gæta að því
að mannfall yrði ekki meðal almennra
borgara. Sagði hann myndir af látnum
börnum vera hryllilegar, en varði á
sama tíma rétt Ísraelsríkis til þess að
verja sig.
Eldflaugaárásir Hamas-samtak-
anna og annarra öfgasveita hafa fellt
að minnsta kosti sjö manns í Ísrael, en
greint var frá því um kvöldmatarleytið
í gær að sex ára drengur væri á meðal
þeirra, sem hefðu látist í eldflaugaárás
á borgina Sderot í suðurhluta Ísraels.
Þá hefur einn indverskur ríkisborgari
fallið í eldflaugaárásunum, en loft-
varnakerfi Ísraelsmanna hefur náð að
stöðva meirihluta eldflauganna.
Óeirðir og mótmæli hafa skekið Ísr-
ael, sér í lagi í borgum og byggðum þar
sem bæði gyðingar og múslimar búa,
og kom til skæra milli lögreglunnar og
mótmælenda í gær. Þrír Palestínu-
menn létust á Vesturbakkanum í þeim
átökum.
Hamas-samtökin greindu frá því í
gær að nokkrir af helstu leiðtogum
þeirra væru meðal þeirra sem hefðu
fallið í loftárásum Ísraelsmanna. Þar á
meðal var Bassem Issa, helsti herfor-
ingi samtakanna á Gaza-svæðinu.
„Þetta er einungis upphafið,“ sagði
Benjamín Netanyahu, forsætisráð-
herra Ísraels, þegar hann vék að vígi
Issa og hét hann því að Hamas-sam-
tökunum yrðu greidd frekari „þung
högg“ sem þau gætu ekki séð fyrir, en
árásir Ísraelsmanna náðu meðal ann-
ars að eyðileggja bækistöð sem notuð
var til þróunar eldflauga. Þá var einnig
ráðist á lögreglustöð á vegum samtak-
anna, auk þess sem Al-Sharouk-turn-
inn var felldur í loftárásunum, en þar
var palestínsk sjónvarpsstöð til húsa.
Lögðust gegn ályktun ráðsins
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
fundaði í gær um hið grafalvarlega
ástand, en Tor Wennesland, fulltrúi SÞ
í Mið-Austurlöndum, varaði við því í
gær að þau römbuðu á barmi styrj-
aldar. Ekki náðist samkomulag um
sameiginlega ályktun ráðsins, þar sem
Bandaríkjamenn, sem búa yfir neitun-
arvaldi, lögðust gegn því.
Blinken utanríkisráðherra skipaði
hins vegar í gær sérstakan sendifull-
trúa Bandaríkjastjórnar, sem hefur
það hlutverk með höndum að ræða við
bæði Ísraels- og Palestínumenn og
reyna að draga úr spennunni fyrir
botni Miðjarðarhafs.
Aðrar þjóðir sem eiga fastafulltrúa í
öryggisráðinu hafa einnig lýst yfir
áhyggjum sínum af ástandinu. Boris
Johnson, forsætisráðherra Bretlands,
hvatti í gær báðar fylkingar til þess að
„taka skref til baka“ frá styrjaldar-
barminum. Lýsti hann yfir sérstökum
áhyggjum sínum af mannfalli meðal
óbreyttra borgara.
Jean-Yves Le Drian, utanríkisráð-
herra Frakklands, sagði að leita yrði
allra leiða til þess að koma í veg fyrir að
ný styrjöld brytist út í Mið-Austur-
löndum.
Þá hvatti Vladimír Pútín Rússlands-
forseti bæði Ísraels- og Palestínumenn
til að stöðva skærur sínar og leita frið-
samra lausna, en hann ræddi við Re-
cep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta
í síma um ástandið. Sagði Erdogan að
heimurinn yrði að veita Ísraelsmönn-
um „sterka“ ráðningu vegna loftárása
þeirra.
AFP
Loftárásir Al-Sharouk-turninn á Gaza-svæðinu sést hér hrynja til grunna eftir loftárás Ísraelsmanna í gær.
Ramba á barmi styrjaldar
- Rúmlega sextíu manns hafa fallið í átökum Ísraels og Palestínumanna - Örygg-
isráðið náði ekki saman um ályktun - Stórveldin hvetja fylkingarnar til stillingar
Sérfræðingaráð á vegum Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar WHO
greindi í gær frá þeirri niðurstöðu
sinni að hægt hefði verið að koma í
veg fyrir að kórónuveirufaraldurinn
yrði að heimsfaraldri, hefðu rétt
skref til varna verið stigin í upphafi
hans.
Sagði í skýrslu ráðsins að röð
slæmra ákvarðana hefði orðið til
þess að ýta faraldrinum á hættu-
legra stig, en nú hafa rúmlega 3,3
milljónir manna farist af völdum
veirunnar. Þannig hefðu ráðstafanir
í Wuhan-borg verið of hægvirkar í
upphafi, en slæleg viðbrögð ríkja í
febrúar juku einnig á skaðann.
WHO
AFP
Bólusetning Kórónuveiran hefur haft
mikil áhrif á heimsbyggðina.
Hefði verið hægt að
afstýra faraldrinum
Repúblikanar í
fulltrúadeild
Bandaríkjaþings
samþykktu í gær
að víkja Liz Che-
ney, fulltrúa
flokksins fyrir
Wyoming-ríki, úr
forystusveit
sinni. Cheney,
sem er dóttir
Dicks Cheney, fyrrverandi varafor-
seta Bandaríkjanna, hefur verið af-
ar gagnrýnin á Donald Trump,
fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og
ásakanir hans um víðtæk svik í for-
setakosningunum í nóvember.
Cheney, sem gegndi þriðju æðstu
stöðu flokksins í deildinni, sagði að
hún myndi halda áfram að berjast
fyrir íhaldssömum gildum, en sagði
að hún myndi jafnframt gera allt
sem í sínu valdi stæði til þess að
halda Trump frá forsetaembættinu.
BANDARÍKIN
Cheney vikið úr
forystu repúblikana
Liz Cheney
Mörkin 6 - 108 Rvk.
s:781-5100
Opið: 11-18 virka daga
og 11-15 laugardaga
www.spennandi-fashion.is
20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM TOPPUM OG PEYSUM
- GILDIR ÚT 19.MAÍ -
Ársfundur 2021
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður
haldinn föstudaginn 28. maí 2021 kl. 14 að
Stórhöfða 23, 4. hæð, Reykjavík.
Dagskrá:
• Venjuleg ársfundarstörf.
• Stjórnarkjör skv. samþykktum.
• Önnur mál.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til fundarsetu.
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda
Lífeyrissjóður bænda | Stórhöfða 23 | 110 Reykjavík
Sími 563 1300 | lsb@lsb.is | www.lsb.is