Morgunblaðið - 13.05.2021, Síða 35

Morgunblaðið - 13.05.2021, Síða 35
35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021 Eitt mikilvægasta verkefni lögreglunnar á næstu árum er bar- áttan gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Lög- reglan telur að 15 slíkir hópar séu að störfum í landinu. Margir þeirra stunda rekstur sam- hliða lögbrotunum til að styðja við ólöglegu starfsemina og til að þvætta peninga. Hóp- arnir eru af ýmsum þjóðernum og starfa flestir bæði innanlands og ut- an. Þessi veruleiki kallar á nýja nálgun í löggæslu og afbrotavörnum. Í stað þess að afbrot séu öðru fremur tilfall- andi verknaðir einstaklinga, stundum undirbúin og framin af yfirlögðu ráði, þá þarf lögregla nú að takast á við hópa manna sem nálgast afbrot og ólöglega starfsemi eins og viðskipti eða rekstur. Í tíð minni sem dómsmálaráðherra hef ég lagt sérstaka áherslu á að styrkja og efla lögregluna til að tak- ast á við þessa ógn. Lögreglan verður að hafa burði, getu og þekkingu til að takast á við þau flóknu verkefni sem við blasa í harðnandi heimi af völdum skipulagðrar glæpastarfsemi. Breytt vinnubrögð og nýjar áherslur Nýr veruleiki kallar á breytingar á vinnubrögðum lögreglu. Land- fræðilega afmörkuð lögreglulið sem horfa aðeins þröngt á einstaka brota- flokka án samhengis við önnur afbrot ná ekki ár- angri í baráttu við þessa hópa. Starfsemi þeirra teygir anga sína víða og felur í sér ýmiss konar afbrot á borð við fíkni- efnabrot, pen- ingaþvætti, mansal og ógnanir. Ég hef lagt áherslu á að lögreglan endurskoði og breyti því samstarfi sem verið hefur á milli einstakra lögregluliða. Sett hefur verið á stofn lögregluráð sem fundar reglulega um samstarf lögregluliðanna og sameig- inleg mál lögreglunnar. Í fyrsta skipti frá stofnun embættis ríkislög- reglustjóra árið 1997 hefur verið sett reglugerð um embættið þar sem m.a. er kveðið á um hlutverk, verkefni og samskipti þess við önnur lögreglu- embætti. Samnýting mannafla og aukin skilvirkni Síðastliðið sumar fól ég ríkislög- reglustjóra að efla sérstaklega sam- starf innan lögreglu með því að sam- nýta mannafla og búnað í því skyni að vinna markvissar að aðgerðum gegn skipulagðri brotastarfsemi. Fundir voru haldnir með fulltrúum stærstu lögregluembættanna til að auka sam- hæfingu og samvinnu innan lögregl- unnar. Lögð var áhersla á að setja að- gerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi í forgang og efla sam- starf á milli lögregluembætta með því að leggja til mannafla í sameiginlegan aðgerða- og rannsóknarhóp. Sérstakur stýrihópur var stofn- aður, skipaður fulltrúum embætta ríkislögreglustjóra, lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, lögreglustjór- ans á Suðurnesjum og héraðs- saksóknara. Markmið stýrihópsins er að tryggja samræmingu og samhæf- ingu lögreglu á landsvísu til að sporna gegn skipulagðri brota- starfsemi og efla upplýsingaskipti milli embættanna. Stýrihópurinn hef- ur verið að störfum undanfarna mán- uði og hefur það hlutverk að veita lög- reglustjórum stuðning í málum er varða skipulagða brotastarfsemi, efla samvinnu milli lögreglustjóra og samræma verklag. Hann vinnur jafn- framt að því að efla fræðslu til lög- reglustjóra og hafa yfirsýn í mála- flokknum. Þá er það enn fremur hlutverk hópsins að veita öðrum lög- regluembættum aðstoð þegar um skipulagða brotastarfsemi er að ræða. Nýverið voru samþykktar verk- lagsreglur ríkislögreglustjóra um samstarf lögregluembætta og ann- arra viðeigandi stjórnvalda í aðgerð- um gegn skipulagðri brotastarfsemi. Með stofnun stýrihópsins hafa um- rædd embætti sett málaflokkinn í ákveðinn forgang með því að verja mannafla, búnaði og öðrum aðföngum lögreglu til verkefnisins. Auknir fjármunir og aukið samstarf Hvað varðar fjárhagslega getu lög- reglunnar til að sinna verkefnum á þessu sviði hefur lögreglan byggt upp búnað og tæki með fjármunum – um 350 milljónum króna – sem komu í hlut íslensku lögreglunnar sem upp- tökuandlag svonefnds „Silk Road“- máls. Einnig má nefna að sá slaki sem fækkun ferðamanna skapaði hef- ur að hluta til verið nýttur til að berj- ast gegn skipulagðri brotastarfsemi. Á síðasta ári reyndist unnt að setja meiri fjármuni en ella í rannsóknir á þessu sviði – raunar meiri fjármuni en áður hefur þekkst. Það er áskorun til framtíðar að viðhalda þeirri getu eftir að störf lögreglu færast í hefð- bundnara horf. Þess ber einnig að geta að á árinu 2019 var lagt 80 m.kr. framlag til lög- reglustjórans á höfuðborgarsvæðinu með sérstakri áherslu á aðgerðir gegn fíkniefnasölu, innflutningi og framleiðslu. Með fjárlögum 2020 var framlagið gert varanlegt. Embættið er því betur í stakk búið til til að sporna við skipulagðri glæpastarf- semi og styrkja rannsóknir á skipu- lögðum brotahópum bæði hvað varð- ar rannsóknir, beitingu sérstakra rannsóknaraðferða sem og í fjár- málagreiningar og peningaþvætt- isrannsóknir. Bætt lagaumhverfi Á undanförnum árum hefur verið unnið að lagabreytingum sem miða að því að efla getu lögreglunnar í að- gerðum gegn skipulagðri brota- starfsemi. Í því sambandi má nefna umfangsmiklar breytingar á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og öðrum lagabálkum sem tengjast þeim aðgerðum. Árið 2019 voru sett lög um vinnslu persónuupplýsinga í lög- gæslutilgangi auk þess sem sérstök lagastoð fyrir vinnslu og miðlun per- sónuupplýsinga var sett í lög- reglulögin. Þá voru nýlega sett lög um breytingu á lögum um framsal sakamanna og aðra aðstoð í saka- málum sem miða einkum að því að gera málsmeðferð þeirra mála skil- virkari. Auk framangreinds ber að geta þess að frumvarp til breytinga á lög- reglulögum var samþykkt á Alþingi á þriðjudag. Þar er lagt til að efla og skýra heimildir lögreglu til alþjóðlegs samstarfs og samráð lögreglu lögfest. Þá er frumvarp um breytingu á man- salsákvæði hegningarlaganna til meðferðar á Alþingi. Mansal tengist ýmislegri skipulagðri brotastarfsemi og megintilgangur frumvarpsins að bæta vernd þolenda þessara brota. Alþjóðlegt samstarf og öflug liðsheild Í nýlegum skýrslum Europol hefur verið lýst áhyggjum af framvindu mála í mörgum löndum Evrópu. Skipulögð brotastarfsemi kallar á aukna samvinnu og samstarf lög- gæsluyfirvalda þvert á landamæri. Við munum halda áfram á þeirri braut að styrkja lögreglunna, hæfni hennar og getu, til að koma fram sem ein öflug liðsheild í þessari baráttu. Eftir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur » Skipulögð brota- starfsemi kallar á aukna samvinnu og samstarf löggæslu- yfirvalda þvert á landamæri. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Höfundur er dómsmálaráðherra. Skilvirkar aðgerðir gegn skipulögðum glæpum Eðli stjórnmála- og samfélagsumræðu hef- ur breyst mikið á und- anförnum árum. Um- búðir og yfirlýst markmið skipta nú öllu máli á kostnað inni- halds og raunveru- legra áhrifa. Rétttrún- aðurinn er að verða allsráðandi á kostnað rökræðu. Margir stjórnmálamenn leitast nú við að vera það sem enskumælandi fólk kallar woke (vaknir). Þeir nota hvert tækifæri til að sýna að þeir hafi meðtekið rétttrúnaðinn og ótt- ast hræðilega ásakanir um annað. Afleiðinguna mætti kalla nýaldar- stjórnmál. Undir handleiðslu ráðandi flokks- ins er ríkisstjórn Íslands orðin mest „woke“ ríkisstjórn Íslandssögunnar. Ríkisstjórn sem vill banna plast- poka en leyfa eiturlyf. Hún hefur verið meira vakin og sofin yfir rétt- trúnaðinum en síðasta ríkisstjórn (og er þá langt til jafnað). Vinstri- stjórn áranna 2009-13 situr eftir í þriðja sætinu. Áhersla hefur verið lögð á að tikka í hvert box ímyndarstjórnmál- anna. Hér fylgja nokkur dæmi: Umhverfismál Umhverfismálin hafa einkennst af þeirri yfirborðsmennsku sem áður var fyrst og fremst beitt af öfga- mönnum. Í stað þess að nálgast mál- in af skynsemi eru stöðugt kynnt ný boð og bönn og ný „græn“ gjöld, þau svo hækkuð og refsisköttum beitt til að hegna fólki fyrir að lifa daglegu lífi. Endalaust eru boðuð aukin út- gjöld til málaflokksins (tugir millj- arða) án þess að það sé ljóst hvernig það bæti umhverfi. Boðaðar eru skaðlegar (en sýnilegar) aðgerðir á borð við að moka ofan í skurði. Á meðan eru leikskólabörn farin að þjást af loftslagskvíða og telja að heimsendir sé í nánd. Borgarlína og samgöngur Í samgöngumálum virðist borgarstjórn- armeirihlutanum í Reykjavík hafa verið falin stjórnin. Borg- arstjóri útskýrir fyrir ríkisstjórninni að hún sé í raun búin að fall- ast á brotthvarf Reykjavíkurflug- vallar. Stjórnin þakk- ar fyrir sig með því að styrkja borgarstjór- ann um 50 milljarða af ríkisfé (til að byrja með) til að hjálpa honum að standa við helsta kosningaloforð Samfylkingarinnar í Reykjavík. Gal- in áform um að eyða endalausum peningum í tvöfalt strætisvagna- kerfi í Reykjavík og auka enn á um- ferðarteppur. Almenningur fær að borga með nýjum veggjöldum á þá sem sitja fastir í umferðinni. Kerfið og báknið Kerfisræðið eykst og báknið stækkar (það hefur aldrei verið stærra). ESB fer sínu fram enda jaðrar það við guðlast að styggja ESB að mati rétttrúnaðarmanna. Evrópu- sambandið styrkir þannig völd sín jafnt og þétt, meðal annars yfir orkumálum landsins á sama tíma og sambandið útskýrir að það þurfi að hafa vald yfir orkumálum og allir skuli leggja sitt af mörkum. Rík- isstjórninni virðist þykja tal um full- veldi óþægilegt og gamaldags. Lýðræði minnkar og Ísland líka Nú áformar ríkisstjórnin að taka stóran hluta landsins undan lýðræð- islegri stjórn með stofnun svokall- aðs hálendisþjóðgarðs. Landsmenn munu þurfa leyfi til að njóta eigin lands (og svo eflaust borga fyrir það). Eftir mótbárur Miðflokksins lýstu nokkrir þingmenn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks yfir efasemd- um um málið. En ætli megi ekki bú- ast við gamla trikkinu, gerðar verði málamyndabreytingar svo menn geti sagst hafa bætt málið og til- kynnt að eitt og annað verði skoðað síðar (en kerfið mun sjá um það)? Lýðræði og fjölmiðlar Nú áformar ríkisstjórnin að gera einkarekna fjölmiðla háða ríkinu, í stað þess að létta af þeim álögum og rétta samkeppnisstöðu þeirra, undir stefnunni „ríkið í alla miðla“. Þó á Ríkisútvarpið að halda yfirburða- stöðu sinni („skoðum það seinna“) enda öflugt við að boða rétttrún- aðinn og ráðherrar geta verið róleg- ir á meðan þeir halda sig á réttri línu. Heilbrigðisþjónusta Marteins Mosdal Ríkisstjórnin vill frekar borga allt að þrefalt verð fyrir að senda sjúk- linga í aðgerðir á heilbrigðisstofn- unum erlendis en að leyfa sams kon- ar stofnunum á Íslandi að framkvæma aðgerðirnar og spara þannig peninga og létta undir með Landspítalanum. Sjálfstæður rekst- ur virðist vera eitur í beinum heil- brigðisráðherrans og þar með rík- isstjórnarinnar. Það er talið skárra að styrkja slíkan rekstur erlendis til að geta svelt hann hér á landi. Frjáls félagasamtök sem áratugum saman hafa gert samfélaginu gríð- arlegt gagn, Krabbameinsfélagið, SÁÁ osfrv. virðast nú einnig litin hornauga af ríkisvaldinu. Lögleiðing fíkniefna Á sama tíma og landsmenn hafa sameinast um að fylgja leiðsögn sér- fræðinga í viðureigninni við einn faraldur vill ríkisstjórnin nú fara þvert á leiðsögn sérfræðinga með því að lögleiða annan og ekki síður hættulegan faraldur. Hér er stefnt að einhverri róttækustu lögleiðingu fíkniefna í víðri veröld. Eins og jafn- an í nýaldarmálum ríkisstjórn- arinnar er það fyrst og fremst stutt af vinstriflokkunum á þingi, einkum pírötum sem hafa barist fyrir sams konar máli um árabil. Hælisumsóknum beint til Íslands Nú hyggst ríkisstjórnin innleiða grundvallarbreytingu á hælisleit- endakerfinu. Til stendur að tryggja öllum sem fá hæli eða dvalarleyfi jöfn réttindi hvort sem þeir fara lög- formlegu öruggu leiðina og er boðið til Íslands eða koma með öðrum hætti, ólögmætum eða lögmætum. Þetta gengur þvert á stefnu annarra Norðurlanda ekki hvað síst Dan- merkur undir stjórn jafnaðarmanna þar sem markmiðið er nú að enginn komi til Danmerkur til að sækja um hæli. Öllum skuli beint í löglegu öruggu leiðina. Hælisleitendur eru þegar orðnir sexfalt fleiri á Íslandi en í Noregi og Danmörku. Stefna ríkisstjórnarinnar mun enn auka þann mun. Fóstureyðingar Lengi hafði ríkt friður um fóstur- eyðingalöggjöfina á Íslandi. Ein- hverra hluta vegna sá ríkisstjórnin ástæðu til að setja heimsmet í því hversu lengi mætti eyða fóstri. Eng- in rök voru færð fyrir hinum nýju viðmiðum og forsætisráðherra lýsti því ítrekað yfir að hann teldi að eng- in tímamörk ættu að vera á fóstur- eyðingum. Þær ættu að vera heim- ilar fram að fæðingu barnsins. Yfirlýsing sem víðast hvar annars staðar teldist til öfgahyggju og hefði vakið mikil viðbrögð. Samstarfs- flokkarnir héldu fyrir eyru, augu og munn og tryggðu heimsmetið. Jafnréttið gleymdist Á toppi nýaldarstjórnmálanna tróna málefni transfólks. Erlendis hefur verið mikil umræða um þann málaflokk árum saman. Transfólk hefur tekið virkan þátt í þeirri um- ræðu og margir úr þeim hópi gagn- rýnt stjórnvöld fyrir að nálgast mál- ið ekki af skynsemi. Femínistar og jafnréttissinnar hafa einnig látið mikið til sín taka. En íslenska rík- isstjórnin stökk fram nánast án um- ræðu með frumvarp þar sem öllum var gert kleift að ákveða hvoru kyn- inu þeir tilheyrðu fyrirvaralaust. Það lá svo á að gorta sig af heims- metinu að það gleymdist einu sinni sem oftar að huga að raunveruleg- um áhrifum málsins, t.d. á íþróttir kvenna, aðgengi að svæðum sem eingöngu eru ætluð konum, ýmsum jafnréttissjónarmiðum o.s.frv. Nútímalæknavísindum fórnað Svokölluð lög um kynrænt sjálf- ræði voru svo notuð til að innleiða öfgastefnu sem hefur fyrst og fremst áhrif á aðra en transfólk. Ríkisstjórn Íslands leiddi í lög bann við því að börn (sem ekki hafa aldur til að biðja sjálf um læknisaðstoð) nytu nútímaheilbrigðisþjónustu sem í mörgum tilvikum hefur verið veitt áratugum saman. Málið sneri að lækningum sem varða kyn- og þvag- færi. Oft er mikilvægt að hægt sé að veita lækningu sem fyrst. Helsta framlag ríkisstjórnarinnar við af- greiðslu málsins var að árétta að skoðað yrði hvort þær tvær und- antekningar sem þó voru heimilaðar (með ýmsum hindrunum) skyldu af- numdar. Einkenni nýaldar- stjórnmálanna Brugðist var við tilraunum til verja nútímalæknavísindi með því að skilgreina slíkt sem öfgar og aft- urhald. Rétttrúnaðurinn skipti meira máli en lækningar og vísindi. Þegar skynsemi er endurskírð öfgar er orwellsk þróun rétttrúnaðarins fullkomnuð. Ég hvet því borgaralega sinnað fólk á Íslandi til að staldra við, verja grunngildi samfélagsins og frjáls- lyndi, þá hugmynd að skoðanaskipti séu af hinu góða. Annars höldum við áfram niður braut raunverulegra öfga. Látum svo ekki blekkjast af því þegar nýaldarpólitíkusar mæta fyrir kosningar og segjast ætla að gera eitthvað allt annað en þeir hafa ver- ið að gera. Af ávöxtunum skulið þér þekkja þá. Ákall til borgaralega sinnaðs fólks Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson »Undir handleiðslu ráðandi flokksins er ríkisstjórn Íslands orðin mest „woke“ ríkisstjórn Íslandsögunnar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Höfundur er formaður Miðflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.