Morgunblaðið - 13.05.2021, Page 37

Morgunblaðið - 13.05.2021, Page 37
UMRÆÐAN 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021 Blóðgjafafélag Ís- lands var formlega stofnað hinn 16. júlí 1981 að frumkvæði þá- verandi forstöðu- manns Blóðbankans, Ólafs Jenssonar yfir- læknis, sem var fyrsti formaður félagsins. Blóðgjafafélag Ís- lands, skammstafað BGFÍ, hefur það markmið að efla blóðgjafarstarfsemi og gæta hags- muna blóðgjafa, sem lengi hafa verið mikilvægur og traustur hlekkur í heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Tilgangur þess var og er annars vegar að efla tengsl íslenskra blóð- gjafa og almennings við Blóðbank- ann og hins vegar að fræða bæði þá sömu aðila og stjórnvöld um mikil- vægi blóðs til lækninga. Auk blóð- gjafa eru aðrir þeir sem vilja styrkja blóðbankastarfsemi í lækninga- og rannsóknaskyni og blóðsöfnunar- störf mikilvægir liðsmenn. BGFÍ hefur sinnt því að standa vörð um málefni er snúa að blóðgjöfum, en rétt er að minna á þá sjálfsögðu stað- reynd að blóðgjafar eru sjálfboða- liðar og fá ekki greitt fyrir blóðgjöf eins og enn tíðkast víða annars stað- ar í heiminum. Markmið okkar er að gæta ýtrasta heilbrigðis blóðgjafa og starfa í góðri samvinnu við Blóðbankann að því að efla blóðgjafarstarfsemi og tryggja heilbrigt blóð. Aðalfundur BGFÍ Það var gleðistund þegar tilkynning barst um aðalfund Blóðgjafa- félags Íslands sem hald- inn verður miðvikudag- inn 19. maí næstkomandi kl. 19.30 í Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti. Covid-19-faraldurinn hefur gert okkur öllum skráveifu varðandi sam- komur. Nú er bjartara fram undan í þeim efn- um. Gætt verður að öll- um sóttvarnareglum. Nú standa von- ir til þess að hægt verði að halda alþjóðablóðgjafadaginn hátíðlegan í ár, en hann er 14. júní ár hvert. Einn- ig er mikilvægt að minnast þess að 40 ár eru liðin frá stofnun BGFÍ og nýta þá tækifærið til þess að efla starfsemi félagsins og fá til liðs við það þá sem styrkja og efla vilja blóðsöfnun, blóð- gjafa og Blóðbankann. Að þessu sinni verður fundurinn einnig með rafrænum hætti og þeir sem skrá sig á hann með því að nýta hlekkinn sem birtist hér í sviga (https://forms.gle/buYLUDsCDs5yWQmr8) munu fá sendan hlekk á rafrænt fundarboð. Með þeim hætti gefst kostur á að fylgjast með fundar- störfum þótt ekki sé mætt í eigin per- sónu á fundinn. Blóðgjafar og aðrir áhugasamir eru hvattir til þess að nýta sér þenn- an möguleika. Aðalfundarstörf eru með hefðbundnum hætti; skýrslur fluttar og ársreikningar lagðir fram, stjórn kosin og síðast en ekki síst eru hetjublóðgjöfum veittar viður- kenningar fyrir fjölda blóðgjafa. BGFÍ er mikilvægur félagsskapur fyrir blóðgjafa, velunnara Blóðbank- ans og Blóðbankann, þennan mikil- væga máttarstólpa í heilbrigðis- kerfinu. Aðalfundirnir eru ánægjulegar samverustundir þeirra sem leggja líf- inu lið með blóðgjöf, gjöf sem bjargar lífi. Blóðgjafafélag Íslands 40 ára í júlí Eftir Ólaf Helga Kjartansson »Blóðgjafafélag Ís- lands var formlega stofnað 16. júlí 1981 og verður 40 ára í sumar. Félagið, sem gætir hags- muna blóðgjafa, heldur aðalfund 19. maí nk. Ólafur Helgi Kjartansson Höfundur er blóðgjafi og fyrrverandi formaður BGFÍ. olafur.helgi.kjartansson@outlook.com Mikið hefur verið þrengt að kristinni trú í okkar samfélagi. Bæði í fjölmiðlum og skólum hefur okkar aldagömlu kristnu arfleifð verið nánast úthýst og talin óþarfa fræðsla fyrir börnin okkar. Þess vegna gladdi það svo innilega þegar Halldór Laxness Halldórsson lýsti því yfir í þætti Gísla Marteins að hann vildi halda kirkjunni í sinni hefðbundnu mynd. Það er ekki oft að maður heyri slíka einarða skoðun um þessi mál því það er ekki í tísku í nú- tímanum að flíka trú sinni, síst kristninni. Hvernig má það vera að afneita því haldreipi sem kristnin er manninum í lífsins ólgusjó? Á sama tíma virðist þörfin til að leita leiða til að öðlast lífshamingjuna og tilgang endalaus og framboðið og gylliboðin ótæmandi í þeim efnum. Við þurfum á kristinni trú að halda og megum ekki láta það gerast að henni sé nánast útrýmt úr skólakerf- inu, eins og það sé í lagi að henda henni eins og einhverjum gömlum úr- eltum kenningum. Kristin trú er hluti af okkar menningarsögu og við eigum að kenna hana börnum frá unga aldri því hún er það dýrmætasta sem hver manneskja á innra með sér. Við erum óþyrmilega minnt á það þessa dagana í þessum heimsveiru- faraldri að allt í einu og eins og hendi sé veifað fer tilveran á hliðina. Við ráðum engu og höfum enga stjórn þar sem þjóðfélagið okkar og okkar nánasti umheim- ur er í einhvers konar hægagangi með enda- lausum takmörkunum og skilyrðum. Í lífinu verðum við fyrir svo mörgu sem við höfum enga stjórn á eins og áföllum, sjúkdómum eða styrjöldum. Einmitt þá er það svo óendanlega dýrmætt að eiga þessa bjargföstu trú um að allt fari vel. Bænin býr yfir miklu afli og hjá okkur sem erum kristin er það Jesús Kristur sem verður okkar bjargræði og klettur sem aldrei bregst þó svo við skiljum ekki alltaf leiðina sem hann velur. Manninum var aldrei ætlað að vera einn og þess vegna höfum við öll guðsanda innra með okkur. Hvort sem við kveikjum á þeim anda eða ekki þá er hann þarna. Það hefur margsannast að þegar öll sund virð- ast lokuð hrópar fólk á Guð sér til hjálpar þótt því hefði aldrei komið það til hugar þegar lífið var gott og viðráðanlegt. Þegar Geir Haarde bað Guð að blessa Ísland þegar hrunið blasti við, þá vorum við bænheyrð. Við erum blessuð þjóð, gleymum því ekki. Klettur í lífsins ólgusjó Eftir Guðrúnu R. Axelsdóttur Guðrún R. Axelsdóttir » Að standa með kristinni trú. Höfundur er kaupmaður. Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.