Morgunblaðið - 13.05.2021, Page 38

Morgunblaðið - 13.05.2021, Page 38
38 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021 Atvinnuhúsnæði er okkar fag S. 511 2900 Jón G. Briem hrl. og löggiltur fasteignasali Guðlaugur Ö. Þorsteinsson rekstrarverkfræðingur og löggiltur leigumiðlari Erum með í einkasölu um 1.200 m² steinsteipt verslunar- og lagerhúsnæði á tveimur hæðum á frábærum stað miðsvæðis í Reykjavík með góðri aðkomu og nægum bílastæðum. Um er að ræða 4 verslunareiningar sem eru samtals um 800 m² og hægt væri að breyta í eina stóra verslun ef þörf væri á. Stærsta einingin er um 448 m² með innkeyrsludyrum að aftanverðu, en hinar eru á bilinu 100-130 m². Auk verslunarhúsnæðissins er um 400 m² nýuppgert lagerrými í kjallara með innkeyrsludyrum og góðu aðgengi um upphitaðan ramp. Möguleiki á skrifstofuhúsnæði í sama húsi ef þörf er á. Eignin er öll í ótímabundinni útleigu. Nánari upplýsingar veitir Guðlaugur í s. 896-0747. Verð tilboð. Til sölu gott 1.200 m² verslunar- og lagerhúsnæði í Hátúni 6a Frelsari þessa heims er Jesús Kristur, sem við mörg leggjum allt okkar traust á í blíðu og stríðu, í lífi sem dauða. Á hátíðunum í lífi okk- ar, sem og í hversdeg- inum og á sjúkrabeði og dauðastund, gaf hann okkur nýtt boðorð sem full ástæða er til að skerpa á daglega og minna sig á hverja stund þegar kem- ur að samskiptum við fólkið okkar og þau önnur sem samferða okkur eru um stundarsakir á ævinnar göngu. „Elskið hvert annað. Eins og ég hef elskað ykkur skuluð þið elska hvert annað. Á því munu allir þekkja að þið eruð mínir lærisveinar ef þið berið elsku hvert til annars.“ Og þá höfum við það, hversu ein- falt eða flókið það kann nú að hljóma eða reynast. Framtíðarsýn Svo sagði Jesús við fylgjendur sína að hann færi brátt burt úr þessum heimi til að búa okkur öruggan sælu- stað til framtíðar svo við myndum einnig fá að vera þar sem hann er. Þar sem við fengjum að njóta okkar með okkar hætti í allri þeirri dýrð með honum sem Guð hefur búið öll- um hans elskuðu börnum. Öllum þeim sem þiggja vilja og á hann trúa. Að loknum okkar tíma hér á jörð, sem greinilega er mislangur og eng- inn skilur, kæmi hann og tæki okkur til sín. Og svo sagði hann eitthvað á þá leið að við þekktum veginn sem við ættum að fara til að komast af og rata heim í dýrðina. Tómas, sem var einn af lærisvein- um hans, spurði hann þá: „Við vitum ekki hvert þú ferð. Hvernig getum við þá þekkt veginn?“ Jesús sagði þá við hann: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins nema fyrir mig.“ „Ég er dyrnar. Sá sem gengur inn um mig mun frelsast. Og hann mun ganga inn og út og finna haga.“ „Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri heldur hafa ljós lífsins.“ „Hjarta ykkar skelfist ekki né hræð- ist. Trúið á Guð og trú- ið á mig. Í húsi föður míns eru margar vistarverur. Væri ekki svo hefði ég þá sagt ykkur að ég færi burt að búa ykkur stað. Þeg- ar ég er farinn burt og hef búið ykkur stað kem ég aftur og tek ykkur til mín svo að þið séuð einnig þar sem ég er.“ „Ég mun ekki skilja ykkur eftir munaðarlaus.“ „Ég lifi og þið munuð lifa.“ Hver á annars meiri kærleika en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína? Hvað þá svo þeir fái lifað um eilífð? Verð með ykkur alla daga „Og Jesús sagði við þau: „Allt vald er mér gefið á himni og á jörðu. Far- ið því og gerið allar þjóðir að læri- sveinum. Skírið þau í nafni föður, sonar og heilags anda og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið ykkur. Sjá, ég verð með ykkur alla daga allt til enda veraldar.“ Síðan fór hann með þau út í nánd við Betaníu, hóf upp hendur sínar og blessaði þau. En það varð á meðan hann var að blessa þau að hann skild- ist frá þeim og var uppnuminn til himins.“ Takk, Jesús. Dýrð sé Guði. Með einlægri kærleiks- og friðar- kveðju. - Lifi lífið! Eftir Sigurbjörn Þorkelsson » „Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri heldur hafa ljós lífsins. Og ég er dyrnar. Sá sem gengur inn um mig mun frelsast.“ Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Vegurinn, sann- leikurinn og lífið Það er gaman að eldast. Þegar ákveðnum aldri er náð, þá tökum við til dæmis að líta jafn- aldra okkar í nýju og dálítið öðru vísi ljósi en áður. Við förum að gera okkur skýra grein fyrir því, að al- veg eins og við sjálf, þá muna þau eftir hansahillunum, Melavellinum, Smart spæjara, gömlu Akraborg- inni og tónstundaþættinum hans Jóns Pálssonar, – og þar að auki muna þau þá tíð, þegar læknir- inn blés tóbaksreyk framan í sjúklinginn; og þau muna ekki bara eftir Kaffibrúsa- körlunum, heldur líka Baldri og Konna og Bjarna Björnssyni og Bílvísunum hans, og Dairy Queen-mjólkur- ísnum vestur á Hjarð- arhaga. Þau muna meira að segja eftir því, þegar Guðmundur Jónsson hélt langa tóninum í „Hraustir menn“, Gestur Þorgrímsson söng dúettinn úr óperu Verdis, La trav- iata, og Vilhjálmur útvarpsstjóri sagði að hlutirnir væru „merkilegt rannsóknarefni“ og „í Guðs friði“. Og eins og við muna þau eftir kanasjónvarpinu og þau muna líka þegar Vilhjálmur Einarsson stökk 16,26 metra í þrístökkskeppninni í Melbourne. Með árunum komum við ein- hvern veginn alltaf og alls staðar auga á þessa jafnaldra okkar, sama þótt við séum stödd innan um mikinn mannfjölda. En þeim hefur fækkað talsvert með árun- um; þau eru ekki jafn mörg og einu sinni var. Það er eins líklegt, að ekkert sé sagt, að hvorki höf- um við orð á nokkrum sköpuðum hlut, né heldur segi þau neitt. En þrátt fyrir það er eins og það hangi einhver leyniþráður á milli okkar og þeirra. Þau eru af sama meiði og við. Þau hafa orðið vitni að mörgu því sama og við. Og þau eru á leiðinni í þann áfangastað, sem telja má líklegt að við munum komast þangað um svipað leyti og þau. Sumum þeirra mundum við kannski ekkert endilega bjóða heim, en þau eru ómótmælanlega og samt sem áður og þrátt fyrir allt samferðamenn okkar. Og við getum ekki annað en óskað þeim alls góðs. Það er dapurlegt til þess að hugsa, að það skuli hafa tekið okk- ur svo mörg ár og langan tíma að komast að jafn sjálfsagðri niður- stöðu. Páll postuli ritaði þeim í Kól- ossuborg eftirfarandi: „Fyrst þið því eruð uppvakin með Kristi, þá keppist eftir því sem er hið efra þar sem Kristur situr við hægri hönd Guðs. Hugsið um það sem er hið efra en ekki um það sem á jörðinni er. Því að þið eruð dáin og líf ykkar er fólgið með Kristi í Guði. Þegar Kristur, sem er líf ykkar, opinberast, þá munuð þið og ásamt honum opinberast í dýrð.“ (Kól. 3,1-4.) Uppstigningardagur – dagur aldraðra Eftir Gunnar Björnsson Gunnar Björnsson » „Þegar Kristur, sem er líf ykkar, opinber- ast, þá munuð þið og ásamt honum opinber- ast í dýrð.“ Höfundur er pastor emeritus. Á blaðsíðu 14 í Morgunblaðinu hinn 11. maí er grein eftir menntamálaráðherra Íslands, Lilju Dögg Alfreðsdóttur, sem ber titilinn „Endur- reisn hafin!“ Á blaðsíðu 16 er grein eftir dr. Ragn- heiði Jónsdóttur, for- stjóra og eiganda Hannesarholts, sem ber titilinn „Líf- ið í Hannesarholti – í þátíð“. Og til hliðar við grein Ragnheiðar í sama blaði er svo þriðja greinin, sem er eftir Gunnar Kvaran selló- leikara. Hún ber heitið: „Ákall til forsætisráðherra og ráðherra mennta- og menningarmála“. Grein- in hefst með þessum orðum: „Það er með hryggð og eftirsjá í hjarta er mér berast nú þær fréttir frá Hann- esarholti, að frá og með 20. júní blasi við lokun þessa merka menningarseturs.“ Augu mín fylltust tárum, og mín fyrsta hugsun var – þetta má aldrei verða. Hannesarholt hefur með tím- anum skráð sig inn í sögu Reykja- víkur og er orðið ómissandi í hráslaga- legum hversdagsleik- anum, sem umlykur allt í gerbreyttum miðbæ. Húsið hefur sál – gamla sál, sem er enn á meðal vor og á enn erindi við okkur. Mér er það í fersku minni, þegar ég steig þar inn fyrir dyr í fyrsta sinn. Mér fannst ég vera komin heim – eftir langa fjarveru. Hver hlutur hafði sögu að segja, borðin og stólarnir á neðri hæðinni, bækurnar á þeirri efri, myndirnar á veggjunum – og tónlistin, sem end- urómaði um ganga og stiga. Ragnheiður tók á móti mér með opinn faðminn, leiftrandi augnsvip og fallegt bros. Ég var velkomin, fékk athvarf um stund í þessu sögu- fræga húsi. Ég gat ekki annað en dáðst að dugnaði, hugviti og atorku þessa hrífandi gestgjafa, sem sá inn í framtíðina og lét sig dreyma stóra drauma. Hannesarholt er hennar verk, hún er Hannesarholt, sem ber vitni um stórhug hennar, næmt söguskyn og bjartsýni. Hannesarholt hefur áunnið sér veglegan sess í menningarlífi Reykjavíkurborgar. Hannesarholt varðveitir hina sögulegu arfleifð og þar með líftaug þess blómaskeiðs, sem við nú upplifum. Við megum ekki láta það um okkur spyrjast, að framtíðin komi þar að luktum dyr- um. Kæra Lilja. Í dag skrifar þú um endurreisn og boðar okkur bjarta framtíð. Á leiðinni þangað verðum við að halda reisn okkar. Þess vegna biðjum við þig einlæg- lega að koma í veg fyrir það menn- ingarslys, sem óneitanlega yrði, ef við kæmum að lokuðum dyrum Hannesarholts. Þetta má ekki verða Eftir Bryndísi Schram Bryndís Schram »Hannesarholt hefur með tímanum skráð sig inn í sögu Reykja- víkur og er orðið ómiss- andi í hráslagalegum hversdagsleikanum, sem umlykur allt í ger- breyttum miðbæ. Höfundur er rithöfundur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.