Morgunblaðið - 13.05.2021, Qupperneq 42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
„Það var því ekkert annað í stöð-
unni en að stofna eigin fyrirtæki. Í
nóvember 2019 létum við vaða og
draumurinn rættist,“ segir Hrefna
um tilurð þess að Fiskvinnsla
Hrefnu er stofnuð. „Fljótlega eftir
að við hófum rekstur bauðst okkur
að kaupa vörumerkið Ísfirðing sem
fyrrverandi eigandi hafði þá byggt
upp og komið á markað. Við vor-
um afar hrifin af vörunni og sáum
að kaupin myndu auðvelda okkur
verulega að koma okkur af stað í
framleiðslu og dreifingu. Ísfirð-
ingur varð okkar og við fram-
leiðum allar okkar vörur undir því
vörumerki,“ segir Hrefna en Ís-
firðingur hefur vakið athygli fyrir
afar frambærilegar og vandaðar
vörur.
Hrefna segir þetta hafa verið
mikið ævintýri og auðvitað hafi
verið hæðir og lægðir. „Að hefja
rekstur í miðjum heimsfaraldri er
kannski heldur dýpri lægð en við
hefðum kosið en við höfum sett
undir okkur höfuðið og erum stað-
ráðin í að komast upp úr henni.
Sem við munum gera.
Vill breyta því hvernig fólk
borðar reyktan lax
Áhugi fólks á vörunni hefur frá
byrjun verið mikill enda er varan
okkar einstaklega góð. Við vinnum
eingöngu með fyrsta flokks hráefni
úr næsta nágrenni okkar hér á
Flateyri. Laxinn og regnbogasil-
unginn vökvareykjum við og erum
við þau einu á landinu sem notum
þessa framleiðsluaðferð. Vökv-
areykingin felur í sér að trjákurl
er sett í ofn og eimað, reykurinn
þéttist og fellur í vökva. Vegna
framleiðsluaðferðarinnar verður
varan hollari og bragðið mildara.
Það hefur farið afar vel í neyt-
endur.“
Hrefna segir áhugavert að skoða
hvernig fólk notar reyktan og
grafinn laxfisk. Flestir nýti hann
eingöngu sem álegg en því vill hún
breyta. „Reyktur lax og regnboga-
silungur er nefnilega herramanns-
matur sem nota má sem uppistöðu
í ýmsar nýstárlegar uppskriftir
sem elda má við hversdagsleg og
hátíðleg tækifæri. Á vefsvæðinu
okkar, isfirdingur.is, höfum við nú
þegar komið á framfæri tíu upp-
skriftum að afar gómsætum rétt-
um og hyggjumst bæta enn frekar
í og benda neytendum á enn fleiri
leiðir til að nota okkar frábæru
vöru í daglega eldamennsku sem
og tilraunaeldhúsið.“
Hráefni úr heimabyggð
Hrefna segir að hráefnið sé allt
frá fyrirtækjum í næsta nágrenni,
sem heldur kolefnisspori í öflun
aðfanga til framleiðslu í algjöru
lágmarki. Hún sé afar stolt af því
að notast við hráefni úr heima-
byggð. Þessa dagana sé verið að
þróa spennandi nýjungar auk þess
sem markmiðið sé að auka sölu á
þeim vörum sem fyrirtækið fram-
leiðir nú þegar. „Við höfum unnið
að því að koma með ýmsar nýj-
ungar á markaðinn sem við erum
bjartsýn á að muni njóta mikilla
vinsælda. Reyktur laxfiskur er frá-
bær uppspretta prótína, fjöl-
margra vítamína og omega-3-
fitusýra. Með aukinni áherslu á
heilnæmt og hreint fæði má búast
við að áhugi neytenda á neyslu á
eldislaxi og silungi muni halda
áfram að aukast og að mikil tæki-
færi séu í framleiðslu og markaðs-
setningu á mismunandi afurðum
úr þessum tegundum. Við erum þó
og viljum vera smáframleiðandi
sem starfar í heimabyggð, nálægt
uppruna hráefnisins sem við
vinnum með. Þannig tryggjum við
áfram þau gæði sem við erum stolt
af og stuðlum á sama tíma að at-
vinnuuppbyggingu í okkar dásam-
lega þorpi.“
Leggja allt í sölurnar
Fyrirtækið og framleiðslan
skapa í dag atvinnu fyrir Hrefnu
sem framkvæmdastjóra og tvo
starfsmenn til viðbótar auk þess
sem tveir eru í hlutastarfi við sölu
og dreifingu á höfuðborgarsvæð-
inu. „Unnusti minn og foreldrar
eru meðeigendur í fyrirtækinu og
vinnum við öll saman við áfram-
haldandi þróun þess enda höfum
við öll mikla reynslu í öllu sem
tengist fiskverkun og -vinnslu. Við
höfum öll lagt mikið á okkur til að
láta þennan draum rætast og
leggjum allt í sölurnar til að halda
honum lifandi.“
Vestfirsku valkyrjurnar
Blaðamaður getur ekki varist
því að spyrja hvort um sé að ræða
vestfirskt fyrirbæti að skíra fyrir-
tæki í höfuðið á konum. Besta
dæmið um þetta sjálfsagt Mjólk-
urvinnslan Arna.
„Já, þú segir nokkuð,“ segir
Hrefna. „Vestfirskar konur eru
auðvitað engir aukvisar og hafa
margar verið áberandi í gegnum
tíðina. Svo mjög að um það hafa
verið skrifuð merkileg fræðirit. Ef
ég man rétt er nafnið á Örnu kom-
ið frá dóttur stofnanda fyrir-
tækisins sem heitir Arna. Okkur
þótti nafnið Fiskvinnslan Hrefna
eiga hreint ágætlega við og setja
einhvern persónulegan blæ á fyrir-
tækið, eitthvað sem okkur er annt
um að halda í. Ég kem stolt fram
fyrir hönd fyrirtækisins. Við
stundum heiðarleg viðskipti í sátt
við náttúruna og samfélagið hér
enda er það forsenda þess að
fyrirtækið fái blómstrað á Flat-
eyri,“ segir Hrefna en þeir sem
þekkja Flateyri vita að það er ein-
stakur staður og tekur Hrefna
heilshugar undir það. „Hér er ynd-
islegt að búa. Þorpið er ein-
staklega staðsett eyri í ægifögrum
Önundarfirðinum. Hér er vítt til
fjalla og náttúran alltumlykjandi
og á nokkrum mínútum erum við
komin út í guðsgræna náttúruna
til að njóta. Flateyri er rólegur
staður, hér er einstök kyrrð. Hér
er lítil umferð og tíminn einhvern
veginn lengur að líða en annars
staðar. Hér er frábært að ala upp
börn, í þorpi þar sem allir þekkja
alla og vel er haldið utan um sam-
félagið.“
Ísfirðing finnur fólk í verslunum
Hagkaupa, Iceland og Nettó, í
Krambúðum og Kjörbúðum um
allt land. Vörur fást einnig í Mela-
búðinni, í Fjarðarkaupum, í sæl-
kerabúðinni Gott og blessað og í
netverslun Heimkaupa auk smærri
verslana hér á svæðinu og víðar.
Draumurinn að stofna fiskvinnslu
Það hafði alltaf verið
draumur Hrefnu Valde-
marsdóttur að stofna
fiskvinnslu enda hafði
hún unnið í fiski nánast
allt sitt líf. Þegar at-
vinnuástandið bauð ekki
upp á marga möguleika
ákvað hún að leggja allt
í sölurnar til að geta bú-
ið áfram á Flateyri og
látið draum sinn rætast.
Heimabyggð Hrefna leggur mikla áherslu á að nota hráefni úr nærumhverfinu.
Lét drauminn rætast Hrefna Valdemarsdóttir er konan á bak við fiskvinnsluna Hrefnu á Flateyri.
Vinsælar Vörurnar eru fáanlegar
víða um land.
STOFNAÐ 1953
Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is
www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími 553 1380
20% afsláttur
af vetrarflíkum
Tilboðið gildir út maí