Morgunblaðið - 13.05.2021, Síða 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021
Dj Dóra Júlía
djdorajulia@gmail.com
Alexandra Mjöll Guðbergsdóttir er dansari,
íþróttakona og mikil fagkona. Hún fór af
stað með svokallaða mömmutíma á dög-
unum og ég fékk að forvitnast aðeins um
námskeiðið hjá henni.
Alexandra segir að hugmyndin hennar að
mömmutímunum hafi upprunalega kviknað
þegar hún sjálf fór í gegnum það ferli að
fæða barn og upplifa þær breytingar sem
áttu sér stað í líkamanum. Sjálf hafði hún
verið í íþróttum nánast alla sína ævi og
hafði klárað ýmsa menntun á þeim sviðum.
Má þar meðal annars nefna Masters of
Athletic training, eða íþróttameiðsla með-
höndlun, og var Alexandra búin að þjálfa
bæði hóptíma og einkaþjálfun í nokkur ár.
Þrátt fyrir það fannst henni hana skorta
almennilega þekkingu á líkamanum eftir
fæðingu og þótti einnig vanta almenna
þekkingu í samfélaginu hvað það varðar.
Gríðarlegt álag á líkamann
að ganga með barn
„Þessi íslenska hugsun um að þetta redd-
ist og ekkert væl stjórnar svolítið ferðinni.
En í rauninni er það gríðarlegt álag á lík-
amann að ganga með og fæða barn, þó svo
það séu vissulega forréttindi,“ segir Alex-
andra.
Hún segist hafa tekið eftir því að margar
af þeim konum sem hún var með í þjálfun
sökum meiðsla og þess háttar áttu það flest-
ar sameiginlegt að þær hugsuðu ekki mjög
vel um líkamann eftir fæðingu, vegna skorts
á þekkingu eða tíma. Margar hverjar hættu
alveg að hreyfa sig sem var ýmist vegna
verkja eða vanlíðanar sem þær tengdu flest-
ar við hreyfingu eftir barnsburð.
Alexandra segir að auðvitað geti margt
skapað verki og vanlíðan en hún heldur að í
grunninn sé þetta skortur á þekkingu á
þessum nýja líkama sem konur öðlast eftir
fæðingu og skortur á fræðslu í þessum mál-
um.
Lét egóið ráða för
Hún fór svolítið að tengja við þessar kon-
ur eftir að hún varð sjálf móðir og segist
hún sjálf hafa gert þau mistök að láta egóið
sitt ráða og fara allt of hratt af stað eftir
barnsburð.
„Ég tók mér ekki nægan tíma til að kynn-
ast líkamanum mínum upp á nýtt og ég
hugsaði að ef ég gerði það þá hljóta margar
konur að vera í sömu sporum,“ segir hún.
Þetta varð til þess að Alexandra sótti sér
aukin réttindi í svokölluðu PCES (Pregn-
ancy and Post Natal Corrective Exercise
Specialist) sem er þjálfun á meðgöngu og
eftir fæðingu.
„Til þess að reyna að hjálpa konum að
skilja magnaða líkamann sinn aðeins betur,“
segir Alexandra að lokum.
Mömmutímanámskeiðið hófst þann 11.
maí í World Class Tjarnarvöllum og er á
þriðjudögum og fimmtudögum frá 10 til 11
og stendur yfir í fjórar vikur.
Skráning fer fram á www.worldclass.is
undir námskeið.
„Gríðarlegt álag á
líkamann að ganga
með og fæða barn“
Skjáskot/Instagram/Alexandramjo
Námskeið Alexandra Mjöll fór af stað með
svokallaða mömmutíma á dögunum.
Alexandra Mjöll Guðbergsdóttir fór af stað með mömmutíma
eftir að hún eignaðist sjálf barn og upplifði breytingar á líkama
sínum. Henni finnst skorta almennilega þekkingu á líkama
kvenna eftir fæðingu.
Fór of hratt af stað Alexandra lét egóið ráða för þegar hún hóf æfingar eftir barnsburð.
Alexandra Mjöll Guðbergsdóttir Elskar ekkert meira en að vera móðir.
Lifandi
píanótónlist
öll föstudags- og
laugardagskvöld
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Borðapantanir í síma 558 0000
eða á www.matarkjallarinn.is
TAKE AWAY
25% afsláttur
af sérstökum Take Away matseðli ef þú sækir
Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
gildir ekki með öðrum tilboðum.