Morgunblaðið - 13.05.2021, Síða 48

Morgunblaðið - 13.05.2021, Síða 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021 Það er mér ljúft og skylt að kveðja Ólaf Örn Arnarson, samstarfsmann og félaga til fjölda ára, sem lézt 1. maí síðastliðinn. Ég heyrði Ólafs fyrst getið árið 1969. Hann var nýkominn heim frá námi í þvagfæraskurðlækning- um. Hann lærði þvagfæraskurð- lækningar við Cleveland Clinic Educational Foundation í Ohio. Við komuna heim vakti hann strax athygli fyrir vönduð lækn- isstörf, fyrst og fremst á Landa- koti, sem varð hans helzti starfs- vettvangur. Þegar ég fór í framhaldsnám Ólafur Örn Arnarson ✝ Ólafur Örn Arnarson fæddist 27. júlí 1933. Hann lést 1. maí 2021. Útför hans fór fram 12. maí 2021. leitaði ég aðstoðar hjá Ólafi. Ólafur hvatti mig til að læra þvagfæra- skurðlækningar. Við Ólafur urðum síðan nánir sam- starfsmenn á Landakoti um tutt- ugu ára skeið. Sam- starf okkar var með ágætum. Ólafur var far- sæll skurðlæknir. Hann gerði all- ar aðgerðir mjög snyrtilega og af lipurð. Ólafur tók virkan þátt í uppbyggingu Landakotsspítala. Ólafur áttaði sig strax á nauðsyn þess, að sterk göngudeildarstarf- semi þrifist við hlið sjúkrahúss- ins. Það þótti engan veginn sjálf- sagt á þessum árum. Hann vann því ötullega að því, að Landakots- spítali keypti nokkur hús í ná- grenninu til að reka læknastofur. Landakotsspítali keypti einnig húsnæði fyrir barnaheimili. Til aðstoðar við kaupin lögðu læknar spítalans til 4% af mánaðarlaun- um sínum. Ólafur og fleiri komu því einnig svo fyrir, að læknum spítalans var skylt að uppfylla reglur um símenntun. Starfsferill Ólafs var því sterkt samofinn Landakoti. Starfsfólk Landa- kotsspítala minnist spítalans ætíð með væntumþykju. Þegar rekstur Landakotsspít- ala naut ekki lengur stuðnings hins opinbera sneri Ólafur sér af krafti að stofnun Sjúkrahúss Reykjavíkur. Mikil skipulagsgáfa Ólafs hefði getað komið þeirri stofnun að mun meira gagni en varð. Þetta voru Landakotsfólki erfiðir tímar. Ólafur þurfti oft við sameiningu Landakots og Borg- arspítala að glíma á tvennum víg- stöðvum. Hann sagði mér síðar frá þeim áhyggjum, sem hann hann bar á þessum tímum. Ólafur hafði ekki aðeins mikla skipulagsgáfu heldur var hann líka fylginn sér með afbrigðum. Þegar hann veiktist fyrir all- nokkrum árum og var sagt, að engin lækning væri í boði hér- lendis vegna mikillar áhættu, hafði hann samband við sinn gamla spítala í Cleveland og fann þar lausn. Nokkru síðar ræddum við Ólafur saman um nafna hans og móðurafa, Ólaf Ó. Lárusson lækni, en hjá honum í Arnar- drangi í Vestmannaeyjum bjó Ólafur Örn nýfæddur. Ólafur Örn sagði þá: „Hann var þverhaus hann afi minn,“ og bætti síðan við: „En það er ég líka.“ Ég full- yrði hins vegar, að þverhaus var Ólafur ekki, en einbeittur og fylginn sér. Ólafur fylgdist alltaf vel með nýjungum. Þegar fyrstu Apple- tölvurnar komu á markað var hann ekki seinn að stökkva á þann vagn. Og tók fleiri með sér. Ólafur skrifaði nokkrar greinar í fagrit. Merkast á þeim vettvangi finnst mér grein um síðkomna berkla í nýrum, tugum árum eftir lungnaberkla. Ólafur var heið- ursfélagi í Félagi íslenskra þvag- færaskurðlækna. Ég kveð Ólaf vin minn með þökk í huga. Það er gæfa og mannbætandi að hafa verið sam- ferða slíkum manni. Aðstandendum öllum sendi ég samúðarkveðjur. Þorsteinn Gíslason. Við kveðjum í dag kæran vin og félaga. Við Ólafur Örn unnum hlið við hlið hvor í sínu sérfagi og bar aldrei teljandi skugga á um ald- arfjórðungs skeið. Það var gæfa okkar beggja að sinna störfum á stofnun þar sem samvinna og virðing milli kollega og starfsstétta var í heiðri höfð. Á Landakotsspítala voru boð- leiðir stuttar og gagnkvæmt sam- ráð fór fram við kaffiborðið innst á skurðstofugangi í bland við fróðleik og lífsreynslu, sem þeir miðluðu okkur af kynslóðinni á undan, dr. Bjarni, Úlfar, Þórður Þ. og Björn Guðbrandsson. Það voru forréttindi að mæta þessu viðmóti þegar tekin voru fyrstu skrefin í sjálfstæðu starfi að loknu sérnámi. Ólafur var einstaklega farsæll í starfi, vandasamar aðgerðir á nýrum og þvagvegum gátu verið krefjandi, er mér minnisstætt varfærnislegt handbragð hans við aðgerðir á nýrnahettum, einn- ig leysti hann ótrúlegustu verk- efni með blöðruspeglun. Ekki man ég að nokkurn tíma þyrfti að kalla út skurðstofu til að bjarga misgripum við hans að- gerðir, nokkuð sem ekki verður sagt um þann sem hér skrifar. Sjálfur kvaddi ég hann til hjálpar þegar í nauðir rak og getið er í endurminningum mínum. Einnig á ég honum að þakka aðgerð á sjálfum mér og hef ég notið góðrar ævi með eitt nýra æ síðan. Við nutum forystu hans við stofnun læknastofunnar í Marar- götu og við starfslok dr. Bjarna tók hann við forystu okkar lækna. Féll það í hans hlut ásamt Loga Guðbrandssyni, forstjóra spítalans, að vera í forsvari fyrir okkur á stormasömum tíma þeg- ar yfirvöld heilbrigðismála ákváðu að loka spítalanum og sameina Borgarspítala eftir miðj- an tíunda áratuginn. Ekki skal orðlengja að þetta var ekki aðeins þungt högg fyrir okkur lækna heldur allt starfslið spítalans. Nokkru síðar fór Ólafur að kenna meinsemdar, æðaflækju í heila, sem ekki var talin á valdi lækna hérlendis að leysa. Hann fór því á stúfana sjálfur og þurfti ekki að leita langt yfir skammt því á hans fyrri heima- slóð, Cleveland í Ohio, fann hann lækni, sem taldi fært að leysa þetta með þræðingu. Aðgerðin hafði tilætluð áhrif og skamm- vinn brottfallsáhrif gengu til baka en létu samt á sér kræla eft- ir aðgerð í svæfingu nokkrum ár- um seinna, en gengu til baka þó, án eftirkasta. Eftir að leiðir skildi á Landa- koti lauk að mestu okkar sam- skiptum. Báðir höfum við séð á bak okkar lífsförunautum auk þess sem aldur og heilsufarsleg áföll hafa sett mark á okkar líf. Ég kveð vin minn Ólaf Örn með söknuði og votta fjölskyldu hans mína dýpstu samúð. Sigurgeir Kjartansson. Elsku amma mín, ég trúi því ekki ennþá að við munum ekki hittast aftur en ég veit að þú ert ennþá hjá okkur. Þú varst svo yndisleg kona, svo hlý og vildir allt fyrir mann gera. Þú talaðir alltaf svo fallega til mín og ég gleymi því aldrei þegar þú sást Ísold mína í fyrsta skiptið. Þú fylltist af gleði í hvert sinn sem þú sást okkur barnabörnin þín og svo síðar meir langömmubörnin þín. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar afa, manni leiddist aldrei og aldrei var maður svangur. Það var hreinlega ekki í boði. Það voru alltaf nýbakaðar pönnsur, rúg- Erna Bergmann Gústafsdóttir ✝ Erna Berg- mann Gúst- afsdóttir fæddist 18. nóvember 1940. Hún lést 2. maí 2021. Útför Ernu fór fram 12. maí 2021. brauð með smjöri og kæfu og svo kakó með, skyr og rjómi eftir kvöldmat og kvöldkaffi áður en maður fór að sofa, enda völdum við Sessa oftast að gista hjá ykkur þegar hún var í Keflavík. Ég er svo þakklát fyrir all- ar minningarnar sem við eigum sam- an. Öll ferðalögin sem við Oddur og Sessa fórum með ykkur afa á Vestfirðina, á Akureyri, sumarbú- staðarferðirnar í Munaðarnesi og á öll ættarmótin. Takk fyrir allt saman, elsku amma mín, fyrir að hafa gert æskuna mína fulla af dásamlegum minningum og takk fyrir að hafa verið góð fyrirmynd fyrir mig, ég mun alltaf líta upp til þín. Þar til við hittumst aftur. Þín Eva. Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MATTHILDAR INGVARSDÓTTUR, Möttu á Bjargi, Lóulandi 9, Garði. Magnús Þór Magnússon Einar Jón Pálsson Hildur Hauksdóttir Elmar Þór Magnússon Helga Andersen Harpa Lind Magnúsdóttir Sigmar Víðir Magnússon Ingibjörg María Ólafsdóttir Sveinn H. Zophoníasson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, REYNIR GUNNAR HJÁLMTÝSSON vélfræðingur, Dvergholti 3, Mosfellsbæ, lést fimmtudaginn 29. apríl. Útförin fer fram frá Lágafellskirkju föstudaginn 14. maí klukkan 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðeins fjölskylda og nánustu vinir viðstaddir en streymt verður frá www.streyma.is Anna M. Charlesdóttir Aron Reynisson Ragnheiður B. Sigurðard. Arna Reynisd. Goldsmith Bruce Goldsmith barnabörn og barnabarnabarn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BRYNHILDUR SÆMUNDSDÓTTIR, Fannafold 77, Reykjavík, lést mánudaginn 12. apríl. Útförin fer fram í Grafarvogskirkju mánudaginn 31. maí, á 93 ára afmælisdegi hinnar látnu, klukkan 13. Öll velkomin. Streymt verður frá athöfninni á facebook.com undir Grafarvogskirkja. Ólína M. Ásgeirsdóttir Sighvatur Lárusson Helga F. Ásgeirsdóttir Kári Guðmundsson Sturla Sighvatsson Una Sighvatsdóttir Kári Sighvatsson Brynhildur Sighvatsdóttir Arna Dögg Arnardóttir Aron Jarl Arnarson Ásgeir Örn Arnarson Atli Fannar Arnarson og barnabarnabörn Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR HALLGRÍMSSONAR rafvirkjameistara, Hlíðargötu 38, Fáskrúðsfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Uppsala Fáskrúðsfirði fyrir frábæra umönnun og þá alúð og hlýju sem honum var sýnd. Guð blessi ykkur öll. Dóra Gunnarsdóttir og fjölskylda Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, systir og mágkona, HUGRÚN HÖGNADÓTTIR, Grænukinn 5, Hafnarfirði, lést á krabbameinsdeild Landspítalans þriðjudaginn 4. maí. Útförin fer fram þriðjudaginn 18. maí klukkan 13 frá Hafnarfjarðarkirkju. Útförinni verður streymt á https://www.youtube.com/watch?v=-zDmyMyn_80 Víkingur A. Erlendsson Viðar Örn Víkingsson Brynjar Víkingsson Elfar Högnason Sigurlaug Valdís Jóhannsd. Helena Högnadóttir Ólafur Árni Torfason Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÖF HULDA SIGFÚSDÓTTIR, Hólabergi 84, lést þriðjudaginn 4. maí í faðmi eiginmanns síns og barna. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju mánudaginn 17. maí klukkan 13. Starfsfólki á Miklatorgi á Hrafnistu eru færðar sérstakar þakkir fyrir góða umönnun. Kristinn Eyjólfsson Jóna S. Kristinsdóttir Ragnar Breiðfjörð Gyða Kristinsdóttir Sigurður L. Stefánsson Kristinn Kristinsson Birna Andrésdóttir Bryndís H. Kristinsdóttir Snorri Guðmundsson ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, HÖRÐUR AGNAR KRISTJÁNSSON húsasmíðameistari, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 9. maí. Útförin fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi þriðjudaginn 18. maí klukkan 15. Vegna fjöldatakmarkana verður athöfninni streymt á www.lindakirkja.is/utfarir. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Blindrafélagið, rn. 0115-26-47017, kt. 470169-2149. Sigríður Birna Lárusdóttir Bjarni Lárus Harðarson Nína Vilborg Hauksdóttir Kristján Þór Harðarson Geirlaug B. Geirlaugsdóttir og barnabörn Stjúpfaðir og bróðir okkar, MAGNÚS Þ. JÓNSSON málari, Hjarðarhaga 38, lést á hjartadeild Landspítala við Hringbraut laugardaginn 8. maí. Útför fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi mánudaginn 17. maí klukkan 15. Guðmundur Guðbjörnsson Friðbjörg Blöndahl Hallur Steinar Jónsson Jóhanna Valgerður Magnúsd. Ragnheiður Hrefna Jónsd. Magnús Stefánsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.