Morgunblaðið - 13.05.2021, Side 50

Morgunblaðið - 13.05.2021, Side 50
50 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021 ✝ Marta Sig- urjónsdóttir fæddist 5. febrúar 1936 á Kirkjuvegi 86 í Vestmannaeyj- um. Hún lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum 26. apríl 2021. Foreldrar Mörtu voru Ingibjörg Guð- rún Högnadóttir, f. 23. desember 1904, d. 3. september 1991, og Sigurjón Sigurðsson, f. 6. mars 1890, d. 8. júní 1959. Bróðir hennar var Sigurjón Sigurjónsson, f. 12. maí 1932, d. 31. janúar 1951. Hálfsystkini hennar í föðurætt voru: Sig- urbjörg (Stella), f. 27. desember 1910, d. 24. júní 1971, Sigurður Óli, f. 24. janúar 1912, d. 16. júní 1981, Aðalheiður, f. 7. apríl 1914, d. 14. febrúar 1917, Jóhanna (Hanna), f. 21. ágúst 1915, d. 28. Eiginkona hans er Helga Barða- dóttir, f. 11. maí 1968, og eiga þau synina Hákon og Kára. Barnabarnabörnin eru í dag sex talsins. Marta bjó alla tíð í Vest- mannaeyjum, ef frá eru skildir nokkrir mánuðir árið 1973 á meðan eldgosið stóð yfir. Fyrstu árin bjó hún á Kirkjuvegi 86 en flutti síðan 1959 á Fjólugötu 4 með eiginmanni sínum í þá ný- byggt hús þeirra og bjó hún þar til æviloka. Marta starfaði við ýmislegt í Eyjum. Á yngri árum var hún fiskverkakona og passaði börn en mestan hluta starfsævi sinnar starfaði hún sem heima- vinnandi húsmóðir. Síðar á lífs- leiðinni vann hún við skúringar í framhaldsskólanum. Hún var fé- lagi í Kvenfélagi Landakirkju og sá um minningarkort fyrir félag- ið í rúm 30 ár, einnig var hún fé- lagi í Oddfellowreglunni. Útför Mörtu fer fram frá Landakirkju í dag, 13. maí 2021, klukkan 11. Vegna aðstæðna í samfélaginu verður hægt að fylgjast með streymi frá athöfn- inni: https://www.landakirkja.is/ Streymishlekk má nálgast á: htpps://www.mbl.is/andlat mars 1989, Ragn- hildur, f. 16. júlí 1918, d. 4. júlí 2009, drengur f. 16. júlí 1918, d. 16. júlí 1918, Margrét (Maggý), f. 20. des- ember 1923, d. 21. nóvember 2016, og Aðalheiður (Lalla), f. 16. maí 1926, d. 19. ágúst 2020. Eftirlifandi eig- inmaður Mörtu er Ingólfur Þór- arinsson f. 24. október 1935. Syn- ir Mörtu og Ingólfs eru: 1) Sigurjón Ingi, f. 7. júní 1956. Eig- inkona hans er Sigurrós Sverr- isdóttir, f. 15. nóvember 1957, og eiga þau börnin Sverri Örn, Mörtu og Ingibjörgu. 2) Þór- arinn, f. 18. apríl 1958. Eiginkona hans er Anna Guðmundsdóttir, f. 4. september 1959, og eiga þau synina Ingólf og Guðmund. 3) Gunnar Örn, f. 18. janúar 1969. Það er erfitt að koma orðum á blað til að tjá tilfinningar sínar nú þegar móðir mín er fallin frá. Kærleikur og elskulegheit fylgdu henni alla tíð, jafnvel eftir að hún fékk hinn skæða og ólæknandi sjúkdóm alzheimer. Mamma fæddist í Vestmanna- eyjum og ólst þar upp í faðmi fjöl- skyldu sinnar, foreldra, ömmu og bróður. Fyrir átti hún 6 hálfsystk- ini í föðurætt. Æskan var yndis- leg, eins og hún sagði sjálf, en áföllin voru ekki langt undan. Ömmu sína missti hún þegar hún var 12 ára og var það henni mikið áfall. Ekki minna áfall var það þegar hún missti bróður sinn í flugslysi 31. janúar 1951. Hún var þá að verða 15 ára og hann 19 ára. En öll él birtir upp um síðir. Árið 1955 kynntist hún eftirlifandi eig- inmanni sínum, Ingólfi Þórarins- syni, sem átti eftir að verða gæfa þeirra beggja. Fyrstu sambúðar- árin bjó unga parið hjá ömmu og afa á Kirkjuvegi 86 en fluttu árið 1959 í nýbyggt hús á Fjólugötu 4 með tvo unga syni. Árið 1964 flutti amma Ingibjörg á Fjólugötuna og árið 1969 bættist enn einn sonur- inn í hópinn. Áhugamál mömmu voru ýmis- konar. Hún saumaði í, saumaði föt á strákana sína og prjónaði peys- ur. Einnig var hún fyrirtaks kokk- ur og veisluborðin hennar voru glæsileg. Árið 1979 gekk hún í Oddfellow og var í mörg ár með minningarkort fyrir Kvenfélag Landakirkju. Allt sem hún gerði gerði hún af mikilli samviskusemi. Samband mömmu og pabba var einstakt alla tíð. Nokkuð hrein verkaskipting var á milli þeirra sem kom nokkuð af sjálfu sér. Hann aflaði tekna til heimilisins, hún sá um eldamennsku, tiltektir, innkaup til heimilisins, tók á móti strákunum sínum þegar þeir komu skítugir heim, huggaði þeg- ar á þurfti að halda o.fl. Heilsufar- ið á heimilinu var einstaklega gott og er nánast hægt að segja að for- eldrar mínir hafi aldrei kennt sér meins. Á áttræðisaldri skildi mamma t.d. aldrei í því þegar fólk talaði um að það væri með höfuð- verk. Sjálf hafði hún aldrei fengið höfuðverk. Kannski hjálpaði til að hún var alla tíð reglusöm. Fyrir ca. 10 árum fór að bera á breytingum hjá mömmu. Hún treysti sér ekki til að gera hluti sem hún fór létt með áður. Það má segja að heilsa hennar hafi farið hægt niður á við en síðustu 5 ár reyndu mjög á hana og pabba. Eftir sem áður stóð hann eins og klettur við hlið hennar en þegar máttur hennar fór þverrandi á síð- asta ári þá kom að því að hún varð að flytja frá Fjólugötunni á Hraunbúðir í Vestmannaeyjum. Frá janúar sl. var hún á Hraun- búðum og hlaut þar einstaka umönnun. Þessi skelfilegi sjúk- dómur, alzheimer, náði ekki að taka frá mömmu eðlislæga elsku og væntumþykju sem hún sýndi fjölskyldu sinni, vinum og kunn- ingjum. Hún hafði alla tíð gaman af tónlist og gátum við sungið saman nánast þangað til hún kvaddi. Dauðinn getur verið líkn þegar enginn möguleiki er á bata. Þrátt fyrir það er sárt að kveðja þá sem hafa reynst manni svo afskaplega vel eins og mamma gerði. Elsku mamma. Nú ert þú laus við þann klafa sem alzheimers- sjúkdómurinn lagði á þig. Hvíldu í friði. Þinn sonur, Sigurjón Ingi. Mig langar að minnast með nokkrum orðum móður minnar Mörtu Sigurjónsdóttur sem lést mánudaginn 26. apríl í faðmi fjöl- skyldunnar á Hraunbúðum í Vest- mannaeyjum. Mamma var fædd og uppalin í Vestmannaeyjum. Á Fjólugötu 4 bjuggu mamma og pabbi okkur bræðrum yndislegt heimili og bjó mamma þar allt þar til hún varð að fara á Hraunbúðir í Eyjum í upp- hafi árs 2021 vegna veikinda sinna. Mamma vildi hvergi annars staðar búa en í Eyjum og fannst henni Eyjarnar vera himnaríki á jörð. Ég var svo heppinn að fá að alast upp hjá þessari stórkostlegu konu sem mamma var. Hún var kletturinn í mínu lífi sem ávallt var til staðar. Mamma var heimavinn- andi húsmóðir og sinnti öllum hlut- um af kostgæfni. Það var ekki dónalegt að koma heim drulluskít- ugur upp fyrir haus, opna dyrnar og kalla inn „mamma“ og þá birtist hún og aðstoðaði mig af öllum mætti. Hún skammaði mig ekki fyrir þetta heldur hafði fullan skilning á því að ungur peyi eins og ég kæmi stundum (reyndar mjög oft) skítugur heim eftir leiki dags- ins. Þannig var mamma. Hlýja og breiður faðmur einkenndu hana og framkomu hennar. Allir sem kynntust mömmu fengu að finna fyrir gæðum henn- ar og fór hún aldrei í manngrein- arálit. Hjá henni voru allir jafnir. Gott var að leita til hennar með ýmis mál því það sem hún sagði stóðst og þurfti ekki að hafa áhyggjur af því að hún myndi ekki klára sig af einhverju sem hún hafði lofað að gera. Mamma hafði ákveðin góð gildi í hávegum og kenndi okkur þau með því að fara eftir þeim sjálf þannig að segja má að hún hafi kennt okkur bræðrum með framkomu sinni. Þegar ég fór að eldast fór ég að heiman í heimavistarskóla og var ég þá að heiman á veturna og kom síðan til Eyja í fríum og á sumrin. Á milli okkar mömmu var alltaf sterkur strengur og ávallt þegar ég kom heim settist ég niður með mömmu og við fórum yfir ýmis mál. Gott var að leita til hennar og hafði hún ótrúlegan skilning á þeim vandamálum sem ég var að glíma við á unglingsárunum. Eftir að ég og Anna mín stofn- uðum fjölskyldu komum við oft til Eyja með strákana okkar, Ingólf og Guðmund, og fengu þeir að njóta samvista við mömmu, sem sýndi þeim alltaf mikla þolinmæði og hlýju. Minnast þeir ömmu sinn- ar með þakklæti í huga fyrir „dúkkubrauðin“ og allt annað sem hún gerði fyrir þá. Mamma hafði gaman af tónlist og söng. Hún spilaði sjálf á gítar og tróðu hún og Maggý systir hennar upp á góðum stundum með spili og söng. Eftir að mamma veiktist og nánast allt til síðasta dags söng hún með okkur bræðr- um þegar við spiluðum fyrir hana og hljómaði þá hin fallega milli- rödd hennar við lögin sem spiluð voru. Síðustu ár var mamma að glíma við heilabilun og því hvarf hún að vissu leyti frá okkur. Hvernig pabbi hugsaði um mömmu á þessum árum var aðdá- unarvert og var yndislegt að sjá þessi sterku bönd þeirra sem héld- ust allt til loka. „Hvunndagshetjan“ hún mamma er farin á vit feðra sinna, þar hittir hún fyrir gott fólk. Takk fyrir allt gott, elsku mamma mín, megi góður guð varðveita þig. Þórarinn Ingólfsson. Hjartans Marta mín. Ég á eftir að sakna þín mikið. Þú hefur verið í lífi mínu síðan ég kynntist Sig- urjóni og flutti til Vestmannaeyja 1978. Og það sem þið Ingi tókuð vel á móti okkur Sverri. Börnin okkar, Sverrir, Marta og Ingi- björg, hafa öll notið þess að þú passaðir þau og eyddir ómældum tíma í þau. Það eru ógleymanlegar stundir sem þau eiga eftir að geyma í minningum sínum. Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. (Hugrún) Betri tengdamömmu en þig var ekki hægt að fá. Takk fyrir allt. Sigurrós. Enginn er fullkominn, jú reynd- ar. Amma Marta var fullkomin í mínum huga. Það er ekki hægt að lýsa með orðum allri ástinni og umhyggjunni sem hún sýndi mér og öllum sem á vegi hennar urðu. Brosið og knúsin frá ömmu gerðu allt betra og á ég eftir að sakna þeirra allra mest. Ég og amma vorum mjög nánar og á mínum æskuárum kom ég alltaf við á Fjólugötunni hjá ömmu og afa og fékk fisk í hádeginu og auðvitað eftirrétt líka. Seinna meir buðu amma og afi peyjunum mínum í fisk af og til og er ég þakklát fyrir þann gæðatíma sem þeir fengu með ömmu/langömmu. Það komst enginn með tærnar þar sem amma hafði hælana í að matreiða soðna ýsu með kartöflum og smjöri og þegar peyjarnir mínir voru litlir var ég oftar en ekki spurð hvort ég hefði ekki örugglega nætursaltað ýsuna þegar ég ætlaði að bjóða upp á „ömmufisk“ í matinn. Ég mun aldrei gleyma gleðinni, söngnum og útgeisluninni sem ein- kenndu hana. Rúmlega áttræð var hún ennþá mætt upp í brekku á Þjóðhátíð og svo var farið inn í tjald að syngja. Það jafnast enginn á við þessa dýrmætu manneskju sem ég fékk að hafa í mínu lífi. Ef amma hefði fengið að velja ljóð í lokin þá hefði hún valið kvöld- bæn en hún bað alltaf kvöldbæn með barnabörnunum sínum þegar við vorum svo heppin að fá að gista hjá ömmu og afa. Elska þig að ei- lífu, elsku amma mín. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Marta Sigurjónsdóttir (yngri). Ég vissi alltaf að einn daginn þyrfti ég að setjast niður og skrifa þessi orð. Nú er elsku besta amma mín farin. Amma hefur samt alltaf verið engill í mínum augum. Ég sá hana aldrei reiða eða pirraða. Hún gekk um fallegu eyjuna sína með poka svo hún gæti tekið upp rusl ef það yrði á vegi hennar. Hún safn- aði afgangsmylsnu af eldhúsborð- inu handa smáfuglunum og þegar annar gullfiskurinn minn dó setti hún spegil í búrið svo þetta yrði ekki jafn erfitt fyrir fiskinn sem eftir lifði. Amma hefur alltaf verið mér svo góð og hafði endalausan tíma fyrir mig. Þegar ég var í pössun las hún oft fyrir mig bókina Kött- urinn með höttinn og söng svo Ó Jesú bróðir besti fyrir svefninn. Hún kenndi mér að spila Svarta Pétur og ég kenndi henni Hæ gosa. Hún fór með mig á jólaböll og að baka laufabrauð á hverju ári þangað til maður varð of gamall í það. Mikið vildi ég óska þess að ég gæti farið á eitt jólaball í viðbót með ömmu. Amma var meistarakokkur. Hún eldaði besta mat í heimi og var þekkt fyrir pönnukökurnar sínar. Hún eldaði líka besta fisk í heimi, hrossakjöt og dúkkubrauð. Ég er þakklát fyrir að amma fékk að hitta Einar Inga í nokkur skipti og gat haldið á honum. Litla ljósálfinum eins og hún hefði kall- að hann. Hann fær að heyra marg- ar sögur af langömmu sinni í framtíðinni og smakka dúkku- brauð, sem einhvern veginn gerir alltaf allt betra. Það eru engin orð nógu falleg til þess að lýsa því hversu falleg amma var. Það vita allir sem þekktu hana. Heimurinn verður aldrei jafn góður og hann var með henni og ég mun sakna hennar alla daga alla mína ævi. Sem betur fer sögðum við hvor annarri hvað okkur þætti vænt hvorri um aðra í hvert skipti sem við hittumst og oft fór maður með tárin í augunum frá ömmu og afa eftir allar ást- arjátningarnar og fingurkossana fyrir utan. Gleðitár yfir því hvað maður væri heppin að eiga svona góða ömmu og afa. Hvíldu í friði elsku amma og langamma. Ingibjörg og Einar Ingi Sigþórsson. Elsku Marta „systir“ Þá er komið að leiðarlokum hjá þér. Sumarið 2020 varstu enn að fara í þínar göngutúra með honum Inga þínum, þið leiddust eins og ung- lingar og alltaf jafn ástfangin og blíð við hvort annað. Hann var kletturinn þinn. En fljótt skiptast veður í lofti. Í janúar á þessu ári ertu komin og Hraunbúðir og nú ertu farin í draumalandið. En það er líka gott að vita ekki hvað lífið ber í skauti sér, taka því sem höndum ber. Þú hefur alltaf verið partur af mínu lífi og við áttum okkar fal- lega samband. Þegar ég var lítil stelpa fórum við fjölskyldurnar í kartöflugarðana saman fyrst að setja niður á vorin og svo að taka upp á haustin. Þá var sko gaman, farið á vörubílnum hans Inga með nesti og verið allan daginn saman. Mér fannst þetta stórkostlegt. Stundum þegar mamma og pabbi fóru upp á land fékk ég að vera í pössun á Fjólugötunni. Veislurnar hafa verið margar í gegnum tíðina og alltaf gaman. Við ólumst öll saman strákarnir þínir og við Við- ar bróðir. Þú tókst mér eins og ég væri dóttir þín, umhyggjusöm og góð. Eftir að ég gekk í Oddfellow- stúkuna Vilborgu áttum við ein- stakt samband sem aldrei bar skugga á. Þarna gat ég kallað þig „systur“ mína með virktum. Nú varstu ekki bara systir hennar mömmu heldur, frænka, „systir“ og móðursystir. Ógleymanlegur var hittingurinn í maí 2016 á Tún- götunni þegar við hittumst öll, Lalla, Marta, mamma og afkom- endur sem voru í eyjum. Það var trallað og sungið eins og enginn væri morgundagurinn og var þetta síðasta skiptið sem þær systur hittust. Þessa minningu mun ég geyma í hjarta mínu. Elsku Ingi, strákarnir og fjöl- skyldur. Innilegar samúðarkveðj- ur til ykkar allra. Ég þakka Mörtu systur sam- fylgdina. Björk Elíasdóttir. Sumarið 1976 bankaði ég upp á á Fjólugötu 4 í Vestmannaeyjum til að heimsækja skólabróður minn frá Menntaskólanum á Laugarvatni. Til dyra kom Marta, glaðleg og gefandi, með hlýjan faðm, þarna hófust kynni okkar Mörtu og það var sannarlega mitt lán. Marta var einstök manneskja og það veit ég að allir sem hana þekktu geta borið vitni um. Marta elskaði Eyjarnar sínar og ekki var verra að hafa Heima- klett í beinni sjónlínu úr eldhúsinu af Fjólugötunni. Þegar von var á gestum var engin eins glöð og hún ef veður var gott því þá skörtuðu Eyjarnar sínu fegursta og hægt var að sýna gestum þessar perlur sem Eyjarnar eru. Marta var mörgum góðum eig- inleikum gædd. Hún var jákvæð og skemmtileg, hlý, nægjusöm, fé- lagslynd, samviskusöm og reglu- söm í öllu sínu. Alltaf er hægt að ganga að öllum hlutum á sínum stað á Fjólugötunni. Mér er minnisstætt atvik fyrir mörgum árum, en þá voru hún og Ingi að koma úr utanlandsferð og komu við hjá okkur á Selfossi á leið sinni til Eyja. Ég var að leggja hádegismatinn á borðið þegar uppgötvaðist að Herjólfur færi kl. 13:00 en ekki 18:00 eins og þeim hafði verið sagt. Upphófst mikill hamagangur að koma töskum út í bíl og Tóti brunar með þau í Þor- lákshöfn. Þegar þau eru farin upp- götva ég að Marta hafði gleymt handtöskunni sinni. Þetta var fyr- ir tíma farsímanna og þegar þau er eru komin til Eyja hringi ég í hana og segi „velkomin í hópinn“. Ég er nefnilega ein þeirra sem gleyma oft hinu og þessu, hér og þar. Þá segir Marta hlæjandi: „Ég er sko ekki í þessum hópi,“ sem var auðvitað alveg rétt. Þetta var undantekningin sem sannar regl- una. Marta var einstaklega barngóð og yndisleg amma, það var alltaf mikil eftirvænting þegar strák- arnir okkar Tóta voru að fara til Eyja til ömmu og afa, og þar voru þau samvalin Marta og Ingi eins og í svo mörgu öðru. Strákarnir okkar Tóta hafa tengst Eyjunum sterkum böndum. Gummi spilaði fótbolta með ÍBV í tvö ár og Ing- ólfur hefur stjórnað brekkusöng- num á Þjóðhátíð sl. ár og alltaf hafa þeir átt gott athvarf á Fjólu- götunni. Fyrir um það bil 10 árum fór að bera á veikindum hjá Mörtu og hefur það verið þung raun fyrir hana, Inga og okkur fjölskylduna þar sem Marta hvarf smám saman frá okkur. Ingi stóð sannarlega eins og klettur við hlið Mörtu og annaðist hana af miklum kærleik þar til yfir lauk. Í mars sl., þegar Marta var komin á Hraunbúðir, minnið að mestu farið og hún átti orðið erfitt með að tjá sig, komum við að heimsækja hana. Hún var ekki í herberginu sínu og Ingi fer inn á setustofu til að sækja hana, þá segir hún um leið og hún sér hann: „I love you.“ Ástin og kær- leikurinn þeirra á milli hvarf aldr- ei. Elsku Ingi, fjölskyldan öll og vinir sem syrgja Mörtu. Þótt sorg- in sé sár núna vorum við sannar- lega öll heppin að eiga þessa konu í lífi okkar og yndislegar minning- ar sem munu ylja okkur. Blessuð sé minning Mörtu Sig- urjónsdóttur. Anna Guðmundsdóttir. Með miklum söknuði og þakk- læti fyrir ævilanga órofa vináttu sendi ég kveðjur á útfarardegi Mörtu minnar með fallegu ljóði sem segir allt sem ég vildi sagt hafa. Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum það yrði margt, ef telja skyldi það. Í lífsins bók það lifir samt í minnum er letrað skýrt á eitthvert hennar blað. Ég fann í þínu heita stóra hjarta, þá helstu tryggð og vináttunnar ljós. Er gerir jafnvel dimma vetur bjarta úr dufti lætur spretta lífsins rós. (Margrét Jónsdóttir) Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar. Kristjana Þorfinnsdóttir. Marta Sigurjónsdóttir Minningarkort fæst á nyra.is eða í síma 561 9244

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.