Morgunblaðið - 13.05.2021, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 13.05.2021, Qupperneq 55
asta ári. Ólöf, sem er 18 ára gömul, var þá í láni frá Val og var næst- markahæsti leikmaður Þróttar í deildinni með sex mörk. Hún lék með Val í fyrstu umferð deildarinnar á dögunum en er nú komin aftur í Laug- ardalinn. Ólöf á að baki 20 leiki með yngri landsliðum Íslands og hefur skorað í þeim níu mörk. _ Aron Pálmarsson var í aðalhlutverki þegar Barcelona vann Meshkov Brest, 33:29, í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslit- um Meistaradeildar Evrópu í hand- knattleik í Hvíta-Rússlandi í gær. Barcelona er þar með í kjörstöðu til að komast í úrslitahelgina í Köln eða Final four í júní þar sem liðið á heimaleikinn eftir í Barcelona. Aron á ekki lítinn þátt í því að liðið sé í þessari stöðu því hann var í aðalhlutverki. Aron gaf fjórtán stoðsendingar á samherja sína í leiknum og skoraði auk þess 5 mörk sjálfur. Dika Mem var markahæstur hjá Barcelona með 10 mörk. _ Knattspyrnumaðurinn Arnar Sveinn Geirsson er kominn til Fylkis á ný frá Breiðabliki en hann var í láni hjá Árbæ- ingum frá Kópavogsfélaginu á síðasta tímabili og spilaði tíu leiki með því í úr- valsdeildinni. _ Grindvíkingar styrktu lið sitt í gær fyrir baráttuna í 1. deild karla í fótbolta með því að fá til sín Laurens Symons, nítján ára gamlan belgískan framherja frá Mechelen. _ Efsti kylfingur heimslistans, Dustin Johnson frá Bandaríkjunum, glímir við hnémeiðsli og dró sig út úr Byron Nel- son-mótinu sem hefst á PGA- mótaröðinni í dag. Johnson sagðist í yfirlýsingu finna fyrir óþægindum í hnénu og í samráði við lækni og sjúkraþjálfara hafi verið tekin sú ákvörðun að hvíla um sinn. _ Serena Williams, ein sigursælasta tenniskona sögunnar, keppti í þús- undasta sinn í gær sem atvinnumað- ur. Williams keppti á Opna ítalska mótinu en mátti sætta sig við tap í þúsundustu viðureigninni. Nadia Podoroska hafði betur. Williams þótti ekki mjög áköf í leiknum enda í lítilli keppn- isæfingu en hún keppti síðast á móti í febrúar. Næst á dagskrá hjá Serenu Willi- ams verður Opna franska meist- aramótið sem hefst 30. maí en hún gaf í skyn við fjölmiðlamenn eftir leik- inn að hún myndi möguleika keppa á öðru móti í millitíðinni úr því svona fór á Ítalíu. Serena Williams er 39 ára gömul og hefur tuttugu og þrisvar unnið einliðaleikinn á risamótunum í tennis og státar að auki af fernum gullverðlaunum frá Ólympíuleikum. ÍÞRÓTTIR 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021 VESTURBÆRINN Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Sóknarmaðurinn Kjartan Henry Finnbogason samdi í gær við upp- eldisfélag sitt KR og mun leika með liðinu næstu þrjú árin. Hann fékk samningi sínum rift hjá danska B- deildarliðinu Esbjerg í fyrradag þrátt fyrir að enn séu þrír leikir eft- ir af B-deildinni. Kjartan Henry gekk til liðs við Esbjerg frá danska úrvalsdeild- arliðinu Horsens 1. febrúar síðast- liðinn og gerði stuttan samning sem átti upphaflega að renna út í lok júní á þessu ári. Um síðustu helgi varð það ljóst að Esbjerg ætti ekki lengur möguleika á að komast upp í dönsku úrvalsdeildina og eftir það gerðust hlutirnir hratt þegar Kjart- an Henry náði að fá sig lausan fyrr. „Þetta gekk mjög fljótt fyrir sig hérna úti. Það hefur mikið gerst á fáum dögum en KR-ingar voru bún- ir að hafa samband við mig fyrir löngu síðan þar sem ég fékk að vita að þegar ég væri tilbúinn að koma heim væri ég velkominn aftur og svo var þetta ekki lengi gert,“ sagði Kjartan Henry í samtali við Morg- unblaðið. Hann sagði það ekki hafa verið inni í myndinni að framlengja samning sinn við Esbjerg. „Nei, ég sendi fjölskylduna heim eftir að ég hætti hjá Horsens og þá var planið að koma heim sjálfur en svo fékk ég þetta tækifæri hjá Esbjerg. Ég er bara tilbúinn og spenntur að koma heim. Ég vildi ekki koma til Íslands í hjólastól, ég vildi koma heim í góðu standi og finnst það mjög spennandi.“ Hlakka til að byrja Líkt og Kjartan Henry bendir á er hann í góðu formi eftir að hafa spilað reglulega undanfarna mánuði með Esbjerg. „Ég er búinn að spila þrjá leiki á tiltölulega stuttum tíma og hefur gengið fínt. Formið verður bara betra og betra og ég hlakka til að komast í góðar aðstæður í faðmi fjölskyldunnar og vina og byrja að spila og hafa gaman.“ Hann flaug heim til Íslands í gær og er nú í fimm daga sóttkví. Kjart- an Henry losnar úr henni næstkom- andi mánudag, þegar KR á leik gegn Val um kvöldið, og á því möguleika á að ná þeim leik en væri þá ekki búinn að ná neinni æfingu með liðinu og því ekki víst að hann verði í leikmannahópnum. „Ég verð víst að fara í sóttkví eins og allir aðrir þótt ég sé búinn að fara í skimun tvisvar í viku í rúmlega ár. Það voru kröfurnar til þess að deildirnar í Danmörku fengju að halda áfram, einhverjar svaka viðmiðunarreglur þar sem við vorum skimaðir tvisvar í viku í rúmt ár. Svo fór maður í skimun í fyrra- dag og í gær og svo fer maður aftur í skimun þegar maður lendir heima á Íslandi og þarf samt að fara í sóttkví. En það er eins og það er, það er ekkert verra,“ sagði Kjartan Henry í léttum tón. KR alltaf númer eitt Fleiri íslensk félög báru víurnar í Kjartan Henry. „Já, bæði ég per- sónulega og umboðsmaðurinn minn fengum nokkur símtöl. Það var al- veg eitthvað svoleiðis í gangi en KR voru alltaf númer eitt hjá mér og ég hefði aldrei getað séð mig fyrir mér í einhverjum öðrum búningi en KR- búningnum heima á Íslandi. Það er bara augljóst,“ sagði hann. Kjartan Henry sagðist ekki vita til þess að erlend félög hafi spurst fyrir um hann en að það hafi einu gilt þar sem hann var þegar búinn að ákveða að koma heim. „Ég bara eiginlega veit það ekki. Ég var hvorki að sækjast eftir því né að spyrjast fyrir um það. Þetta gerðist ótrúlega fljótt. Ég rifti samningnum í gær og var tilbúinn að koma heim. Það var bara ein leið fyrir mig og það var að koma heim.“ Beðinn um að meta tímabilið fram undan hjá KR sagði Kjartan Henry að lokum: „Þetta er búið að byrja þokkalega. Þetta er auðvitað alltaf erfitt og skrítið í byrjun. Það eru leikir á gervigrasi og svo grasi og fá- ir áhorfendur. Það er ekki mikið stopp milli leikja til þess að ná upp tempói. Því er ég ótrúlega feginn að geta komið strax til þess að hjálpa í stað þess að ég gæti ekki komið fyrr en á miðju tímabili eins og útlit var fyrir. Það er mikill áhugi fyrir deildinni heima og við vitum alveg hvað KR stefnir á, það þarf eiginlega ekki að segja það.“ Ég vildi ekki koma til Íslands í hjólastól - Kjartan Henry snýr aftur í Vesturbæinn - KR eina liðið sem kom til greina Morgunblaðið/Eggert KR-ingur Kjartan Henry Finnbogason lék síðast með Vesturbæjarliðinu árið 2014 og varð þá bikarmeistari. Umspil kvenna Undanúrslit, fyrri leikir: HK – Fjölnir/Fylkir ............................. 27:15 Grótta – ÍR............................................ 16:15 Meistaradeild karla 8-liða úrslit, fyrri leikir: Meshkov Brest – Barcelona ............... 29:33 - Aron Pálmarsson skoraði 5 mörk fyrir Barcelona og gaf 14 stoðsendingar. Kiel – París SG...................................... 31:29 Þýskaland Leverkusen – Kurpfalz....................... 26:25 - Hildigunnur Einarsdóttir lék ekki með Leverkusen. B-deild: Wilhelmshavener – Bietigheim ......... 29:34 - Aron Rafn Eðvarðsson varði 3 skot í marki Bietigheim. Grosswallstadt – Aue.......................... 24:33 - Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 3 mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson kom ekki við sögu í marki liðsins. Rúnar Sig- tryggsson þjálfar Aue. .$0-!)49, NBA-deildin Charlotte – Denver........................... 112:117 Detroit – Minnesota ......................... 100:119 Boston – Miami................................. 121:129 Toronto – LA Clippers....................... 96:115 Indiana – Philadelphia ....................... 103:94 Chicago – Brooklyn.......................... 107:115 Memphis – Dallas ............................. 133:104 Milwaukee – Orlando ....................... 114:102 Golden State – Phoenix.................... 122:116 Sacramento – Oklahoma City.......... 122.106 LA Lakers – New York............. (frl.) 101:99 _ Í Austurdeild eru Philadelphia, Brook- lyn, Milwaukee og Miami komin áfram og Atlanta, New York, Boston, Charlotte og Indiana örugg í að minnsta kosti umspilið. Washington og Chicago berjast um síðasta sætið. _ Í Vesturdeild eru Utah, Phoenix, LA Clippers, Denver og Dallas komin áfram og Portland, LA Lakers, Golden State og Memphis örugg í að minnsta kosti umspilið. San Antonio, New Orleans og Sacramento berjast um síðasta sætið. _ Sex efstu lið í hvorri deild fara beint í úr- slitakeppnina en liðin í 7.-10. sæti fara í um- spil um tvö síðustu sætin hvoru megin. 57+36!)49, KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Kaplakriki: FH – ÍA............................. 19.15 Kópavogsv.: Breiðablik – Keflavík ..... 19.15 Samsungv.: Stjarnan – Víkingur R..... 19.15 Origo-völlur: Valur – HK..................... 19.15 1. deild karla, Lengjudeildin: Boginn: Þór – Grindavík ........................... 16 1. deild kvenna, Lengjudeildin: Kórinn: HK – KR ...................................... 14 Grindavíkurv.: Grindavík – Haukar ... 19.15 2. deild kvenna: Vopnafjörður: Einherji – Álftanes........... 13 Fjarðabyggðarhöll: FHL – ÍR................. 14 Þróttarvöllur: SR – Völsungur................. 16 3. deild karla: Sauðárkr.: Tindastóll – Höttur/Huginn .. 16 4. deild karla: Grýluvöllur: Hamar – Uppsveitir ............ 14 HANDKNATTLEIKUR 8-liða úrslit kvenna, fyrri leikir: Eyjar: ÍBV – Stjarnan ......................... 13.30 Origo-höll: Valur – Haukar ...................... 15 Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Varmá: Afturelding – KA ......................... 16 KÖRFUKNATTLEIKUR Umspil kvenna, 8-liða úrslit, fyrri leikir: TM-hellirinn: ÍR – Tindastóll................... 16 Kennaraháskóli: Ármann – Hamar/Þór.. 18 Njarðtaksgryfja: Njarðvík – Vestri.... 19.15 HS Orkuhöll: Grindavík – Stjarnan.... 19.15 FRJÁLSÍÞRÓTTIR Víðavangshlaup ÍR hefst kl. 12 í dag og er hlaupið í miðborg Reykjavíkur. Mótið er um leið Íslandsmeistaramótið í 5 km götu- hlaupi. Í DAG! Norski knattspyrnumarkvörðurinn Benedicte Haaland hefur samið við Selfyssinga um að leika með þeim í sumar. Hún kemur frá Bristol City þar sem hún lék í ensku úrvals- deildinni í vetur. Haaland lék áður með Sandviken og Arna-Björnar í Noregi. Þýski markvörðurinn Anke Preuss verður ekki með Selfossi eins og til stóð vegna meiðsla og Guðný Geirsdóttir sem kom í láni frá ÍBV hefur varið mark liðsins í fyrstu umferðunum. Norsk í mark Selfyssinga Kjartan Henry Finnbogason er 34 ára gamall sóknarmaður, fæddur 9. júlí 1986. Hann lék með meistaraflokki KR 2003-04 og aftur 2010-14. Hann er áttundi markahæsti leikmaður KR í efstu deild frá upphafi með 38 mörk í 98 leikjum. Kjartan varð Íslandsmeistari með KR 2003, 2011 og 2013 og bik- armeistari 2011, 2012 og 2014. Kjartan var í röðum Celtic í Skot- landi 2005-07, Åtvitaberg í Svíþjóð 2007, Sandefjord í Noregi 2008-09, Falkirk í Skotlandi 2009-10, Hor- sens í Danmörku 2014-18, Ferenc- város í Ungverjalandi 2018-19, Vejle í Danmörku 2018-20, Horsens í Danmörku 2020 og loks Esbjerg 2021. Hann er markahæstur Íslendinga sem hafa leikið í dönsku úrvals- deildinni með 26 mörk og líka í B- deildinni með 49 mörk. Samtals hefur Kjartan leikið 335 deildaleiki á ferlinum og skorað í þeim 124 mörk. Kjartan á að baki 13 A-landsleiki og hefur skorað í þeim þrjú mörk. Hann spilaði 24 leiki með yngri landsliðum Íslands og skoraði í þeim fjögur mörk. vs@mbl.is Kjartan Henry Finnbogason
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.