Morgunblaðið - 13.05.2021, Síða 58

Morgunblaðið - 13.05.2021, Síða 58
58 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021 Kíktu við! Gott úrval af gæðakjöti á grillið Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími 8:00-16:30 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Ef lýsa ætti myrkva er heiti sýn- ingar sem verður opin í Ásmundar- safni við Sigtún frá og með deginum í dag. Með sýningunni verður safnið vinsæla, sem reist var í kringum verk, heimili og vinnustofu Ásmund- ar Sveinssonar (1893-1982), opnað að nýju eftir talsverðar breytingar. Á sýningunni nýtir Sirra Sigrún um- fangsmesta skúlptúr Ásmundar, kúluhúsið og skeifulaga skemmuna að baki þess, og notar speglaða geisla sólarinnar til að búa til risa- vaxna teikningu í formi sólúrs. Ný verk Sirru eiga í samtali við valin verk eftir Ásmund og, eins og segir í lýsingu á sýningunni, kinka þau „kolli til hugmyndaheims hans og einlægs áhuga á tækni og vísindum“. Verk Sirru, sem er fædd 1977, eru sögð kosmísk í eðli sínu og tengjast gjarnan vangaveltum um stöðu okk- ar í gangverki náttúrunnar, eðlis- fræðinnar og þeirra afla sem halda heiminum gangandi. Sýningarstjóri er Ingibjörg Sigurjónsdóttir. Ótrúlega skemmtileg áskorun „Ég byrjaði á að fara í skjalasafn safnsins, þar sem eru til dæmis geymdar ljósmyndir, bréf og ann- að,“ segir Sirra þegar spurt er hvernig hún hafi ákveðið að tengja verk þeirra Ásmundar saman. „Svo las ég aftur bækur og ýmislegt sem tengist Ásmundi og list hans, sem var mjög skemmtilegt. Í þessu grúski rakst ég til dæmis á kort sem hann hefur gert í skissubók á ferða- lagi um Grikkland, og póstkort sem hann hefur eignast á því ferðalagi, og það urðu kveikjur fyrir mig og í framhaldinu tengingar að bygging- unni hér. Það er talað um að við hönnun þessa sérstaka húss hafi hann notað hugmyndir frá Grikk- landsferðinni. Ég hafði verið að þvælast þar á svipuðum slóðum – 90 árum á eftir Ásmundi. Ég fann ýmsa þræði á milli okkar.“ Sirra kaus að skoða byggingar Ásmundar sérstaklega sem skúlptúr og fara í sínum verkum í samtal við það rými. „Ég kaus að nota bogann sem bogaskemman myndar hér og breyta því í sólúr,“ segir hún. Hvernig fer hún að því? „Þarna uppi á þakinu er hringlaga spegill sem er tölvustýrður; hann fylgir sólinni eftir á hverjum tíma og þegar sólin skín þá beinir spegillinn sólargeislanum á langvegginn í bogasalnum.“ Og þá ferðast sólar- blettur rangsælis eftir veggnum. Þar inni í salnum, rétt eins og í tengibyggingunni, eru sýnd verk eftir Ásmund sem Sirra og sýning- arstjórinn Ingibjörg hafa valið inn í það samtal en sum verka hans sitja nú á litríkum stöplum. Á hina stóru glugga í skeifulaga sýningarsalnum hefur Sirra líka dregið upp litríkar teikningar, með sólarformum og línum. „Teikningin er í raun gagnvirk með sólinni sem er varpað gegnum hana frá morgni til kvölds,“ segir hún. En er í teikn- ingunni einhvers konar formrænt samtal Sirru við verk Ásmundar? „Ekki beinlínis en ég hef verið að skoða alls kyns útgáfur af sólúrum, þau geta verið mjög fjölbreytileg þó að í þeim sé verið að kortleggja hreyfingu skuggans. Þessi stóra teikning er abstrakt sólúr, sem vísar í hugmyndir um sólúr.“ Var ekki skemmtileg áskorun að takast á við þetta sögulega rými? „Það er jú ótrúlega skemmtileg áskorun. Þetta er mjög óvenjulegt og fallega úthugsað af Ásmundi,“ svarar hún. Meðan við spjöllum eru aðstoðarmenn Sirru að draga litrík- ar lóðréttar línur á langvegg salarins og segir hún þær marka hverjar fimm mínútur á ferð sólargeislans eftir veggnum. „Þetta er allt sama verkið sem teygir sig um rýmið,“ segir hún og bendir á gluggateikn- inguna, litríka fletina sem hún varp- ar um salinn og línurnar sem mynda sólúrið á langveggnum. Hvað varðar verk Ásmundar á sýningunni segir hún þær Ingibjörgu hafa valið verk sem þeim finnst tengjast til að mynda þessum hugmyndum um sólarganginn. „Mörg eru frá sjötta og sjöunda áratugnum, þegar Ásmundur fór alveg yfir í abstrakt, þótt önnur eldri séu líka með. Ásmundur var svo forvitinn um heiminn og um vísindi og það spegl- ast fallega í verkunum hans.“ Í tengibyggingunni hafa verið settar upp geómetrískar teikningar eftir Ásmund sem Sirra segir ekki hafa verið sýndar áður. Þar er líka röð teikninga Sirru sem hún gerði í Kína fyrir tveimur árum en hún seg- ir þær hafa „smellpassað inn í allar hugmyndirnar um þessa sýningu“. Á þeim má sjá kleinuhring með bleik- um glassúr breytast í kosmísk form. „Við að skera hlut upp með þessum hætti birtist eitthvað sem er falið í forminu,“ segir Sirra um verkin. „Ég nota mikið lit en í verkum Ásmundar sést varla litur. Mér fannst áhugavert að sjá um litinn í samtali okkar. Ég mála með sólinni,“ segir hún að lokum. „Ég mála með sólinni“ - Ásmundarsafn opnað að nýju eftir breytingar með sýningunni „Ef lýsa ætti myrkva“ þar sem Sirra Sigrún Sigurðardóttir á í sjónrænu samtali við verk og byggingar Ásmundar - Litríkt sólúr í salinn Morgunblaðið/Einar Falur Skaparinn „Þetta er allt sama verkið sem teygir sig um rýmið,“ segir Sirra Sigrún um marglaga samtalið í salnum. Í tilefni af 90 ára afmæli Sólheima og leikfélags Sólheima verður afmælissýning Leikfélags Sól- heima, Árar, álfar og tröll, sýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins mánu- daginn 24. maí kl. 18. „Leikritið Árar, álfar og tröll var frumsýnt í Sólheimaleikhúsinu á sumardaginn fyrsta, 22. apríl sl. Sýningin sló rækilega í gegn og uppselt varð á allar sýningarnar fimm. Verkið er skrifað af Hannesi Blandon og Guðmundi Lúðvík Þorvaldssyni en Lárus Sigurðsson gerði tónlistina. Verkið er skrifað sérstaklega í tilefni 90 ára afmælis Sólheima og er byggt á sögu Sess- elju Hreindísar Sigmundsdóttur, stofnanda Sólheima. Sagan er sett í ævintýralegan búning. Guðmundur Lúðvík leikstýrir verkinu en hann er leikfélaginu að góðu kunnur þar sem þetta er í fimmta sinn sem hann leikstýrir á Sólheimum. Fjöldi íbúa Sólheima kemur að verkinu, bæði í leikhlutverkum og bak við tjöldin,“ segir í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu. Þar kemur fram að verkið sé ævintýri sem fjalli um „baráttukon- una Sesselju sem á sér þann draum að opna barnaheimili þar sem allir geta lifað í sátt og samlyndi. Til þess að láta draum sinn rætast þarf hún að takast á við konungsríki og alls kyns verur, svo sem álfa og tröll. Leikfélag Sólheima var stofn- að árið 1931 og á því 90 ára afmæli í ár. Löng hefð er fyrir því að frum- sýna á sumardaginn fyrsta og var engin undantekning á því í ár. Leik- hópurinn er sérstaklega spenntur fyrir hátíðarsýningu í Þjóðleikhús- inu þann 24. maí nk. á 90 ára afmæli sínu.“ Í tilkynningunni kemur fram að Þjóðleikhúsið, sem er leikhús allra landsmanna, „fagnar komu hins kraftmikla leikfélags Sólheima, sem hefur unnið mikilvægt starf í gegnum tíðina, og árnar félaginu heilla á stórafmælinu“. Árar, álfar og tröll sýnd í Þjóðleikhúsinu Ævintýri Í sýningunni er sögð saga Sesselju Hreindísar Sigmunds- dóttur, stofnanda Sólheima.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.