Morgunblaðið - 15.05.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021
www.kofaroghus.is - sími 553 1545
369.750 kr
.
Tilboðsverð
697.500 kr
.
Tilboðsverð
449.400 kr
.
Tilboðsverð
34mm
34mm44mm
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
má finna á vef okkar
Afar einfalt er
að reisa húsin
okkar
Uppsetning te
kur aðeins ein
n dag
BREKKA 34
- 9 fm
STAPI - 14,98 fm NAUST - 14,44
fm
25%
afsláttur
25%
afsláttur
30%
afsláttur
TILBOÐ Á GARÐHÚSUM!
TIL Á LAGER VANTAR
ÞIGPLÁSS?
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fimm vikur eru nú liðnar frá því að tíkin
Rampen’s Upf Nína gaut ellefu hvolpum. Er
það í annað sinn sem hún gýtur en í fyrra
skiptið voru þeir einnig ellefu talsins. Fað-
irinn er Heiðabergs Bylur von Greif sem er
margverðlaunaður veiðimeistari. Bylur og
Nína eru bæði snögghærðir Vorsteh eða þýsk-
ir bendar. Tegundin er þekkt veiðihundakyn
sem eru svokallaðir veiðihundar innan teg-
undarhóps sjö hjá Hundaræktarfélagi Íslands.
Þykir tegundin henta mjög vel til veiða á
rjúpu, önd og gæs. Hún þarfnast nokkurrar
hreyfingar en þykir einnig frábært heim-
ilisdýr.
Gotið er undir merkjum Veiðimelarækt-
unar og er það þriðja á þeim vettvangi. Annað
got Nínu og þá hefur tíkin Zeta Jökla einnig
átt 10 hvolpa. Eigendur Nínu eru Pétur Alan
Guðmundsson og Sóley Ragna Ragnarsdóttir
en eigandi Byls er Jón Garðar Þórarinsson.
Ljósmynd/Pétur Alan Guðmundsson
Ellefu alhliða veiðisnillingar á rjúpu, önd og gæs
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Farþegum fjölgar með hverjum
deginum sem líður,“ segir Stefán
Jón Sigurgeirsson, framkvæmda-
stjóri Norðursiglingar á Húsavík. Á
vegum fyrir-
tækisins er nú
farið í eina hvala-
skoðunarferð á
dag með bátnum
Náttfara. Farið
er út á Skjálf-
andaflóa og í
flestum ferðum
sjást hvalir, þótt
aldrei sé á vísan
að róa því náttúr-
an er duttlunga-
full. Mest og helst sést hnúfubakur
á Skjálfanda, en einnig bregður fyr-
ir hrefnum og hnísum. Einnig hafa
langreyðar og háhyrningar sést í
vor, en þó ekki oft.
Margir frá Bandaríkjunum
Náttfari leggur úr höfn á hverj-
um degi klukkan 13 og tekur ferðin
þrjár klukkustundir. Alls tekur bát-
urinn 90 manns, en 47 voru með í
ferð gærdagsins. Margir farþeg-
anna voru erlendir, ekki síst Banda-
ríkjamenn, en með fjöldabólusetn-
ingum vestra eru leiðir til Íslands
þaðan nú greiðar. „Við byrjuðum
aftur með eina ferð á dag fyrir
nokkrum síðan og vonandi er stutt í
að við getum bætt annarri við. Ís-
lendingar leggjast í ferðalög strax
þegar starfi grunnskólanna lýkur,“
segir Stefán Jón.
Góðar vísbendingar
„Þessa dagana sjáum við ýmsar
vísbendingar um að ferðaþjónustan
sé að komast aftur í gang. Umsvifin
núna eru hins vegar ekki nema um
5% af því sem gerist í meðalári,“
segir Rannveig Grétarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Eldingar hvalaskoð-
unar í Reykjavík. Bátur fyrir-
tækisins sem tekur liðlega 100
farþega er notaður í skoðunarferðir
út á Faxaflóa, sem nú eru að jafnaði
þrjár í viku. Litlir plastbátar eru
svo notaðir í ferðir sem eru daglega.
Slíkir taka tíu manns, en í ferðum
nú eru gjarnan 2 til 8 farþegar um
borð.
„Mig grunar að í sumar verði
nokkuð áberandi að fólk stimpli sig
inn og bóki í ferðir með mjög
skömmum fyrirvara. Þegar kemur
svo fram á haustið er bók-
unarstaðan hjá okkur mjög góð,“
segir Rannveig.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Húsavík Ein ferð á dag út með Náttfara, sem hér sést koma inn til hafnar úr leiðangri þar sem hvalavöður sáust.
Bókanir berast og hvala-
skoðunarferðum fjölgar
- Bjartsýni í ferðaþjónustu - Langreyðar nú á Skjálfanda
Morgunblaðið/Ófeigur
Ferðamenn Daglega frá Reykjavík á rib-bátum út á Faxaflóa í hvalaskoðun.Rannveig
Grétarsdóttir
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Framboðsfrestur til prófkjörs Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík rann út
klukkan fjögur síðdegis í gær. Próf-
kjörið fer fram daga 4. og 5. júní
næstkomandi.
Ljóst er að baráttan um efstu
sætin verður hörð: Í 1. sæti gefa
kost á sér Guðlaugur Þór Þórðar-
son, utanríkis- og þróunarsamvinnu-
ráðherra, og Áslaug Arna Sigur-
björnsdóttir dómsmálaráðherra.
Í 2. sæti gefa kost á sér þing-
mennirnir Brynjar Níelsson og Sig-
ríður Ásthildur Andersen. Birgir
Ármannsson þingmaður gefur þá
kost á sér í 2.-3. sæti.
Diljá Mist Einarsdóttir, aðstoðar-
maður utanríkisráðherra, sækist
eftir þriðja sætinu, en í 3.-4. sæti
gefa kost á sér Hildur Sverrisdóttir,
sem sat á þingi 2017, og Kjartan
Magnússon, fyrrverandi borgar-
fulltrúi.
Í 4. sæti gefa kost á sér Friðjón R.
Friðjónsson almannatengill og Ingi-
björg H. Sverrisdóttir, formaður
Félags eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni. Í 4. - 5. sæti gefur kost á
sér Herdís Anna Þorvaldsdóttir,
varaþingmaður og athafnakona.
Tveir efstu verða oddvitar
Á yfirstandandi kjörtímabili hefur
Sjálfstæðisflokkurinn haft fimm
þingmenn alls í Reykjavík, þrjá í
Reykjavíkurkjördæmi norður en tvo
í Reykjavíkurkjördæmi suður. Sjálf-
stæðismenn í Reykjavík kjósa um
einn Reykjavíkurlista sem skiptist
síðan að prófkjörinu loknu á kjör-
dæmin tvö. Þannig verða tveir hlut-
skörpustu frambjóðendurnir í próf-
kjörinu oddvitar flokksins í hvoru
Reykjavíkurkjördæminu fyrir sig.
Slegist um efstu
sætin í borginni
- Framboðsfresturinn rann út í gær
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Valhöll Hart barist í borginni.