Morgunblaðið - 15.05.2021, Side 8

Morgunblaðið - 15.05.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021 á - y i s.is Útboð verkefna á sviði jarðhita, rafvæðingu heimila og grænnar nýsköpunar í Rúmeníu á vegum Uppbyggingarsjóðs EES, verður kynnt á veffundi 19. og 20. maí kl. 8:00-16:00 Sjá nánari upplýsingar á os.is Markmið verkefnanna er að auka endurnýjanlega orku, græna nýsköpun og auka samstarf milli Íslands, Lichtenstein, Noregs og Rúmeníu Veittur er stuðningur við verkefni með eftirfarandi áherslur: • auka uppsett afl frá jarðhita • auka fjölda nýrra eða endurnýjaðra mannvirkja til að auka notkun jarðhita • rafvæðingu heimilanna • græn nýsköpun Einnig verður boðið upp á samstarfsfundi aðila. Mikilvægt er að aðilar skrái þátttöku á os.is Sum verkalýðsfélög eru að hitaupp fyrir alþingiskosning- arnar í haust og hyggjast að því er virðist taka þátt í þeim með áður óþekktum hætti. Drífa Snædal, for- seti ASÍ, er til að mynda farin að senda út viðtöl á vef samtakanna og fyrsta viðtalið var huggulegt drottn- ingarviðtal við aðal- eiganda Sósíal- istaflokksins þar sem hann fékk að fabúlera á sinn hátt undir mikilli velþóknun spyr- ilsins. - - - Svo sendi Drífa í gær frá sérpistil þar sem hún ítrekaði þá afstöðu að það væri nóg til og sýndi því jafn lítinn skilning og áð- ur að framleiða þurfi verðmætin áður en þau verði til skiptanna. - - - Þessi pistill mun líka hafa átt aðvera svar við þeirri ábendingu Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, að launahækkanir síð- ustu ára hefðu verið „úr kortunum miðað við samkeppnislöndin“. Hann nefndi að hér hefði launa- hækkunin verið 10% en 0-2% í sam- keppnislöndunum, sem hann sagði gera samkeppnina „krefjandi“ fyr- ir Icelandair. Það er örugglega ekki ofmælt. - - - Loks hjólaði Drífa í Ísrael fyrirað verja sig gegn árásum Ha- mas og við það vakna spurningar. Hvað mundi Drífa vilja að gert væri ef hún byggi í Ísrael og sætti árásum hryðjuverkasamtakanna? - - - Og: Hvernig gagnast það launa-mönnum á Íslandi að ASÍ taki þátt í baráttu með tilteknum öflum fyrir botni Miðjarðarhafs? Nú eða blandi sér í innanlandspólitík? Eru allir sem greiða til ASÍ á einu máli í stjórnmálum? Drífa Snædal Launþegahreyfing eða stjórnmálaafl? STAKSTEINAR Ríkisskattstjóri og ónefndur málsaðili hafa náð samkomulagi um sátt vegna brota á lögum um aðgerðir gegn pen- ingaþvætti og fjármögnun hryðju- verka. Var viðkomandi gert að greiða eina og hálfa milljón króna í sekt og framkvæma úrbætur á rekstri sínum innan gefins frests. Greint er frá þessu á vefsíðu Skattsins. Um var að ræða brot gegn ákvæðum laga nr. 140/2018, um að- gerðir gegn peningaþvætti og fjár- mögnun hryðjuverka og 7. gr. laga nr. 64/2019, um frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunar- aðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðing- arvopna. Brotin fólust í að viðkomandi hafði hvorki framkvæmt áhættumat á rekstri sínum né innleitt innri reglur og verkferla með fullnægjandi hætti, hann hafði ekki framkvæmt áreiðan- leikakönnun á viðskiptamönnum eins og kveðið er á um í lögunum og ekki innleitt ferla og aðgerðir til að meta hvort viðskiptamenn hans væru á list- um yfir þvingunaraðgerðir. Fram kemur að málsaðilinn hafi greiðlega veitt ríkisskattstjóra um- beðin gögn og aðgang að starfsstöð sinni og í engu dregið undan í upplýs- ingagjöf sinni til ríkisskattstjóra. omfr@mbl.is Sátt um 1,5 milljóna sektargreiðslu - Braut gegn lögum um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka Morgunblaðið/sisi Skatturinn Í ljós kom að ekki hafði verið gert fullnægjandi áhættumat. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Starfshópur um efnahagstækifæri á norðurslóðum afhenti í gær Guð- laugi Þór Þórðarsyni, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, skýrsl- una Norðurljós. Guðlaugur Þór seg- ir í tilkynningu ráðuneytisins að áhugi umheimsins á norðurslóðum sé sífellt að aukast og ljóst sé að miklar breytingar muni eiga sér stað á svæðinu á næstu árum og áratug- um. Því sé mikilvægt að huga að því hvernig best megi búa í haginn svo að Ísland geti nýtt þau tækifæri sem muni felast í svæðinu í framtíðinni, en þar sé landið í algjörri lykilstöðu. Árni Sigfússon leiddi starfshóp- inn, en þar voru einnig Ísak Einar Rúnarsson og Sigþrúður Ármann. Þau leggja m.a. til að nýr loft- ferðasamningur verði gerður á milli Grænlands og Íslands og að sá sem er í gildi milli Íslands og Kína verði uppfærður. Þá er lagt til að við- ræðum verði haldið áfram um yfirflugsheimildir fyrir Rússland. Þá er lagt til að leita eftir fríverslunar- og viðskiptasamningum við Græn- land og Bandaríkin, og einnig hugað að samningum við ríki á borð við Kanada og Rússland. Morgunblaðið/Árni Sæberg Norðurslóðaskýrsla Árni Sigfússon og Guðlaugur Þór Þórðarson kynntu niðurstöður starfshópsins í gær. Ísland er í lykilstöðu - Ný skýrsla um efnahagstækifæri á norðurslóðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.